Síða 1 af 1

combine .png to pdf

Sent: Mán 30. Júl 2018 08:54
af Hjaltiatla
Sælir/Sælar

Var að pæla hvort það væri til einhver hugbúnaður sem gerir það auðvelt fyrir mann bæði að merge-a sirka 80 pdf skjölum (í réttri röð) en einnig bjóða að merge-a inná milli PNG myndir inní sama Pdf skjal.

Er með sirka 80 pdf skjöl sem ég hafði hugsað mér að sameina í eitt skjal en besta í stöðunni væri að geta einnig bætt inn .png myndum í skjalið.

Hef nú þegar náð að merge-a pdf skjölin með pdftk í bash á Ubuntu en sá ekki einfalda leið að bæta inn .Png myndum

Kóði: Velja allt

pdftk file1.pdf file2.pdf cat output mergedfile.pdf


Þetta eru skjöl sem ákveðið E-learn platform bíður uppá Study notes en eru með fjöldan af file-um sem er ekki alveg að henta þegar maður er að lesa efni yfir (eftirá).

Re: combine .png to pdf

Sent: Mán 30. Júl 2018 12:37
af davida
Þú getur apt-get installað imagemagick pakkanum, farið inn í möppuna með öllum skjölunum og gert "convert *.* out.pdf" sýnist mér.

Re: combine .png to pdf

Sent: Mán 30. Júl 2018 12:42
af Hjaltiatla
davida skrifaði:Þú getur apt-get installað imagemagick pakkanum, farið inn í möppuna með öllum skjölunum og gert "convert *.* out.pdf" sýnist mér.



Hljómar legit , þ.e að converta .png í pdf og combine-a með hinum pdf skjölunum :)

Var ekki búinn að hugsa þetta útfrá þessu sjónarhorni , tékka á þessu í kvöld.

Takk fyrir

Re: combine .png to pdf

Sent: Mán 30. Júl 2018 15:51
af DJOli
Þetta gæti líka verið sniðugt...
https://pdf2png.com/

Re: combine .png to pdf

Sent: Mán 30. Júl 2018 16:00
af Viktor
Ég hef notað svona vefþjónustur sem finnast á Google og virkar fínt t.d. https://www.pdfmerge.com/

Re: combine .png to pdf

Sent: Mán 30. Júl 2018 20:23
af zedro
Fá sér áskrift að Adobe Acrobat Pro DC í mánuð $14.99

Re: combine .png to pdf

Sent: Mán 30. Júl 2018 21:10
af Hjaltiatla
Takk fyrir svörin.

pdftk og imagemagick urðu fyrir valinu og það virkar ágætlega í það sem ég er að gera. Ekki verra að forritin eru CLI based þar sem ég reikna með að nýta mér þennan fídus oftar.

Á líklega eftir að detta í flóknari OCR lausnir í framtíðinni (t.d til að geta scrape-að texta úr myndum og þess háttar).

Annars er ég bara góður :)