Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu


Höfundur
dbox
Ofur-Nörd
Póstar: 256
Skráði sig: Þri 18. Jún 2013 12:37
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf dbox » Sun 26. Mar 2017 22:05

Ég er þá aðalalega að hugsa um auglýsingapósta sem lenda ekki í spam.
Ég er að hugsa um t.d að geta sent 100 pósta í einu.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf dori » Sun 26. Mar 2017 22:13

Mailchimp er mjög gott til halda utan um og senda tölvupóstherferðir. SendGrid á líka að vera eitthvað svipað. Ef þú þarft bara að senda póstinn þá gæti eitthvað eins og mailgun verið nær því sem þú þarft.




Höfundur
dbox
Ofur-Nörd
Póstar: 256
Skráði sig: Þri 18. Jún 2013 12:37
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf dbox » Mið 29. Mar 2017 10:57

Þakka fyrir góð svör.
Veit einhver hvaða fyrirtæki eru með stóra netfangalista til sölu er búinn að leita víða á netinu finn ekkert.



Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf upg8 » Mið 29. Mar 2017 11:06

Það getur varla verið löglegt


Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf rapport » Mið 29. Mar 2017 11:10

dbox skrifaði:Þakka fyrir góð svör.
Veit einhver hvaða fyrirtæki eru með stóra netfangalista til sölu er búinn að leita víða á netinu finn ekkert.


http://wwwtest.skra.is/thjodskra/urtok- ... a-kannana/

Alveg örugglega einhver með póstlista



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf dori » Mið 29. Mar 2017 11:30

dbox skrifaði:Þakka fyrir góð svör.
Veit einhver hvaða fyrirtæki eru með stóra netfangalista til sölu er búinn að leita víða á netinu finn ekkert.

Þó svo að þessi fyrirtæki séu rosalega góð í að senda pósta sem fara ekki í spam loka þau á þig á stundinni ef þú ferð að senda spam.

Basic regla að senda ekki fólki póst sem hefur ekki beðið um hann eða verið í viðskiptum við þig.



Skjámynd

gissur1
Geek
Póstar: 858
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 20:36
Reputation: 12
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf gissur1 » Mið 29. Mar 2017 11:45

Zenter eru góðir í svona málum - https://www.zenter.is/is


Microsoft Surface Pro 2017 [i7 - 16GB RAM - 512GB SSD] + Thinkvision P27Q

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf jonsig » Mið 29. Mar 2017 16:17

Merkilegt að þetta sé eitthvað í lagi.



Skjámynd

gissur1
Geek
Póstar: 858
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 20:36
Reputation: 12
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf gissur1 » Mið 29. Mar 2017 16:51

jonsig skrifaði:Merkilegt að þetta sé eitthvað í lagi.


Já ég er nokkuð sammála þér en þetta er bara eins og með hverja aðra leið til að hafa samband við fólk, þessar leiðir eru flestar opinberar á einhvern hátt, sama hvort það sé símanúmerið þitt í símaskránni eða tölvupóstfangið þitt á einhverri spjallsíðu einhverstaðar á netinu eða þessvegna heimilisfangið þitt í þjóðskrá.

Spurningin er bara hvort að fyrirtæki nýti sér þessar upplýsingar á góðan og skilvirkan hátt sem skila viðskiptum sem báðir aðilar eru sáttir með eða að þau fæli fólk burt frá viðskiptum við sig og minnki traust og trúverðuleika með því að senda þér óviðeigandi upplýsingar, t.d. hef ég marg oft fengið markpósta frá icelandair þar sem þau reyna að selja mér golf ferðir eða kanarí 60+ ferðir... og ekki er ég orðinn sextugur og ég hef aldrei á ævinni gengið inn á golfvöll.

Fyrirtæki verða virkilega að passa sig á þessu þar sem orðspor þeirra er í húfi auk þess sem að flestir eru búnir að blokka þessa pósta áður en þau loksins hefðu fengið raunverulega viðeigandi póst sem hefði mögulega skilað viðskiptum.


Microsoft Surface Pro 2017 [i7 - 16GB RAM - 512GB SSD] + Thinkvision P27Q

Skjámynd

ZiRiuS
Of mikill frítími
Póstar: 1796
Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
Reputation: 387
Staðsetning: Við tölvuna
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf ZiRiuS » Mið 29. Mar 2017 17:05

Það kom einu sinni upp mál þar sem Heimkaup fékk "lánaðann" póstlista Hópkaups og var það dæmt brot á persónuverndarlögum svo ef þú ert að fara að senda einhverjum tölvupóst ánþess að viðkomandi skráði sig hjá þér ertu að brjóta persónuverndarlög.

Úrskurðurinn:
https://www.personuvernd.is/efst-a-baug ... ar/nr/1820
Síðast breytt af ZiRiuS á Mið 29. Mar 2017 19:49, breytt samtals 1 sinni.



Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf jonsig » Mið 29. Mar 2017 18:33

Sama concept og nígeríu svindl. Að dreifa nógu mörgum önglum og vona að einhver bíti á. Að því leiti að þetta er helv. ágangur. Og gefið kúk í friðhelgi einkalífs í leiðinni

Í fullkomnum heimi eru engar auglýsingar, bara gott orðspor sem selur.þar sem jú við borgum allan þennan auglýsinga hernað. En það er ekki hægt á dögum yfirdráttarvaxta, það þarf 500% hagnað asap og verða ríkur.




Fungus
Fiktari
Póstar: 74
Skráði sig: Mán 06. Feb 2017 11:38
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf Fungus » Mið 29. Mar 2017 21:27

Það sé ólöglegt að senda auglýsingapóst á netfang sem hefur ekki skráð sig á póstlista.

Góð lesning: https://www.pfs.is/neytendur/oumbedin-fjarskipti-hvada-reglur-gilda/

Óheimilt er að nota óumbeðin fjarskipti í markaðslegum tilgangi nema viðtakandi hafi gefið fyrirfram samþykki sitt fyrir að taka á móti slíkum sendingum.


Samþykki hefur verið skilgreint með eftirfarandi hætti:

„Sérstök, ótvíræð yfirlýsing sem einstaklingur gefur af fúsum og frjálsum vilja um að hann sé samþykkur vinnslu tiltekinna upplýsinga um sig og að honum sé kunnugt um tilgang hennar, hvernig hún fer fram, hvernig persónuvernd er tryggð, um að honum sé heimilt að afturkalla samþykki sitt o.s.frv.“




rbe
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 347
Skráði sig: Fös 06. Des 2013 00:11
Reputation: 73
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf rbe » Mið 29. Mar 2017 23:03

þessi þráður var til þess að ég fór að skoða þetta.
http://wwwtest.skra.is/thjodskra/urtok- ... a-kannana/
síðan er meingölluð hjá þeim. bannlista linkurinn virkar ekki.
ekki annarsstaðar heldur á síðunni.
prófaði að skrá mig inn með rafrænum skilríkjum.
það gekk ekki vel , loggaðist ekki inn og fór á http síðu ? virkaði fínt um daginn þegar ég skipti um trúfélag.
sendi þeim email um þetta.

en varðandi svona auglýsingapóst. þá er þetta spam að skemma meira fyrir en gera gagn ?
fólk verður bara pirrað, nema það hafi skráð sig á t.d netklúbb.
fæ ekkert svona nema frá vodafone . þeir senda á gmail adressuna ekki internet.is emailin ?
hef aldrei gefið þeim gmail adressuna mína að mér vitandi ?
eða gefið þeim leyfi til að senda mér póst ?



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3093
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 442
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf hagur » Mið 29. Mar 2017 23:53

rbe skrifaði:þessi þráður var til þess að ég fór að skoða þetta.
http://wwwtest.skra.is/thjodskra/urtok- ... a-kannana/
síðan er meingölluð hjá þeim. bannlista linkurinn virkar ekki.
ekki annarsstaðar heldur á síðunni.
prófaði að skrá mig inn með rafrænum skilríkjum.
það gekk ekki vel , loggaðist ekki inn og fór á http síðu ? virkaði fínt um daginn þegar ég skipti um trúfélag.
sendi þeim email um þetta.

en varðandi svona auglýsingapóst. þá er þetta spam að skemma meira fyrir en gera gagn ?
fólk verður bara pirrað, nema það hafi skráð sig á t.d netklúbb.
fæ ekkert svona nema frá vodafone . þeir senda á gmail adressuna ekki internet.is emailin ?
hef aldrei gefið þeim gmail adressuna mína að mér vitandi ?
eða gefið þeim leyfi til að senda mér póst ?


Þú ert á http://wwwtest.skra.is ....

Farðu á https://www.skra.is

https://www.skra.is/einstaklingar/eg-og ... taklingum/



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf rapport » Fim 30. Mar 2017 00:04

https://www.zenter.is/is/kerfid#tolvupostur

Vísa á 46.gr laga um fjarskipti

Lög um Fjarskipti skrifaði: 46. gr. Óumbeðin fjarskipti.
Notkun sjálfvirkra uppkallskerfa, símbréfa eða tölvupósts, [þ.m.t. hvers konar rafrænna skilaboða (SMS og MMS)], 1) fyrir beina markaðssetningu er einungis heimil þegar áskrifandi hefur veitt samþykki sitt fyrir fram.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að nota tölvupóstfang við sölu á vörum eða þjónustu fyrir beina markaðssetningu á eigin vörum eða þjónustu ef viðskiptavinum er gefinn kostur á að andmæla slíkri notkun tölvupóstfanga þeim að kostnaðarlausu þegar skráning á sér stað og sömuleiðis í hvert sinn sem skilaboð eru send hafi viðskiptavinurinn ekki þegar í upphafi hafnað slíkri notkun.

Að öðru leyti en mælt er fyrir í 1. og 2. mgr. eru óumbeðin fjarskipti í formi beinnar markaðssetningar óheimil til þeirra áskrifenda sem óska ekki eftir að taka á móti þeim.

Óheimilt er að senda tölvupóst sem þátt í beinni markaðssetningu þar sem nafn og heimilisfang þess sem stendur að markaðssetningu kemur ekki skýrt fram.

[Þeir sem nota almenna tal- og farsímaþjónustu sem lið í markaðssetningu skulu virða merkingu í símaskrá sem gefur til kynna að viðkomandi áskrifandi vilji ekki slíkar símhringingar í símanúmer sitt. Áskrifandi á rétt á að fá vitneskju um hvaðan þær upplýsingar koma sem liggja úthringingu til grundvallar.] 1)
Síðast breytt af rapport á Fim 30. Mar 2017 22:20, breytt samtals 1 sinni.




rbe
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 347
Skráði sig: Fös 06. Des 2013 00:11
Reputation: 73
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf rbe » Fim 30. Mar 2017 00:27

ahh minn feill hagur. væntalega eru þetta einhverjar leifar af gömlu síðunni ?
síðan leit svona út þegar ég skipti um trúfélag.
virkilega óaðgengileg að mínu mati.
þessi nýrri er betri.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3093
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 442
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf hagur » Fim 30. Mar 2017 00:33

Já þetta er gamli vefurinn þeirra. Hefur greinilega verið hafður áfram aðgengilegur á þessu léni, vonandi tímabundið.




Fungus
Fiktari
Póstar: 74
Skráði sig: Mán 06. Feb 2017 11:38
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf Fungus » Fim 30. Mar 2017 22:06

rapport skrifaði: Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að nota tölvupóstfang við sölu á vörum eða þjónustu fyrir beina markaðssetningu á eigin vörum eða þjónustu ef viðskiptavinum er gefinn kostur á að andmæla slíkri notkun tölvupóstfanga þeim að kostnaðarlausu þegar skráning á sér stað og sömuleiðis í hvert sinn sem skilaboð eru send hafi viðskiptavinurinn ekki þegar í upphafi hafnað slíkri notkun.


Hmm, áhugavert. Getur sú vísað mér á hvar þetta er tekið fram í lögunum?



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7013
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 986
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf rapport » Fim 30. Mar 2017 22:20

Fungus skrifaði:
rapport skrifaði: Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að nota tölvupóstfang við sölu á vörum eða þjónustu fyrir beina markaðssetningu á eigin vörum eða þjónustu ef viðskiptavinum er gefinn kostur á að andmæla slíkri notkun tölvupóstfanga þeim að kostnaðarlausu þegar skráning á sér stað og sömuleiðis í hvert sinn sem skilaboð eru send hafi viðskiptavinurinn ekki þegar í upphafi hafnað slíkri notkun.


Hmm, áhugavert. Getur sú vísað mér á hvar þetta er tekið fram í lögunum?



Þetta "quote" er s.s. beint úr lögunum...

Mynd




Fungus
Fiktari
Póstar: 74
Skráði sig: Mán 06. Feb 2017 11:38
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Eru til einhver tölvupóst forrit sem geta sent á fullt af netföngum í einu

Pósturaf Fungus » Fim 30. Mar 2017 22:53

Þetta "quote" er s.s. beint úr lögunum...

Mynd


Dojj, veit ekki hvernig þetta fór fram hjá mér!
Næs samt, takk :-) Vildi ekki hljóma dónalegur, mér finnst bara gaman að brjóta heilann yfir þessu.

Ég skil þetta sem slíkt: Það má senda fólki auglýsingapóst um eigin vörur ef viðskiptavinur afþakkar það ekki við skráningu.

Er ég að skilja þetta rétt?

Það væri þá svoldið eins og þegar maður er að skrá númerið sitt hjá ja.is en er með það bannmerkt, right?

Áhugavert hvernig sem er, takk fyrir að deila þessu :-)