Vantar aðstoð með Excel tímaútreikninga

Skjámynd

Höfundur
urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Vantar aðstoð með Excel tímaútreikninga

Pósturaf urban » Mið 05. Ágú 2015 17:28

Jæja, það hljóta einhverjir excel snillingar að vera hérna inni, ég er það nefnilega engan vegin en dauðlangar að leysa útúr þessu vandamáli hjá mér.

Málið er að ég er með app sem að mér finnst helvíti þægilegt að nota til þess að fylgjast með vinnutímum hjá mér.
það skilar útúr sér á hinum og þessum formötum og álíka

Hérna er appið

Málið er að ég er að exporta þessu yfir í excel og fatta bara hreinlega ekki hvernig ég á að láta reikna út fyrir mig dagvinnu og yfirvinnutíma.

sjá þessa mynd
Mynd

Málið er semsagt að ég vill endilega getað látið excel reikna út fyrir mig reit F1 og G1 (og svo auðvitað áfram niður)
en það þarf að vera þá að vera með eftirfarandi formerkjum.

yfirvinna er allt fyrir 08:00 og allt eftir 17:00
yfirvinna er auðvitað alltaf á laugardögum og sunnudögum.
og síðan er náttúrulega ekki verra ef að hægt er að reikna það líka eftir því hvort að það sé almennur frídagur eða ekki (þessir fjölmörgu íslensku frídagar (en þetta er svo sem aukaatriði sem að er ekkert bráðnauðsynlegt))

Vandamálið er bara fyrst og fremst að það er svo helvíti langt síðan að ég fiktaði eitthvað í excel að ég bara kann andskotann ekkert á þetta, sem að er náttúrulega virkilega slæmt, þar sem að þetta er eitt albesta forrit í heiminum.


Mig grunar all snarlega að þetta sé einhver sáraeinföld formúla sem að ég er bara ekki að fatta, ég er nú búinn að prufa að googla þetta aðeins, en ég er að gera mig alveg endanlega gráhærðann á því, þar að auki þá er heilsan enþá ekkert neitt rosalega frábær eftur þjóðhátíð.

Ef að einhver ykkar gæti bjargað mér með þetta, þá væri það bara alveg vægast sagt frábært.

Með fyrirfram þökkum og kveðju.
urban


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1780
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 75
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð með Excel tímaútreikninga

Pósturaf axyne » Mið 05. Ágú 2015 21:23

Ég hef bjargað mér stundum með logiskum formúlum þegar ég gefst upp að nota flottu formúlurnar. IF, OR, AND


Electronic and Computer Engineer


vatr9
Nörd
Póstar: 121
Skráði sig: Fim 18. Sep 2008 13:34
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð með Excel tímaútreikninga

Pósturaf vatr9 » Mið 05. Ágú 2015 21:42

Ég prófaði þetta og kom með svona formúlu til að reikna tímann fyrir 8 og eftir 17:

=IF((TIME(8;0;0)-A2)>0;(TIME(8;0;0)-A2);0)+IF(B2-TIME(17;0;0)>0;B2-TIME(17;0;0);0)

Hér geri ég ráð fyrir að byrjun sé í dálk A og endir í dálk B og gögnin byrji í röð 2.
Þú verður svo að formata dálkinn sem tíma til að fá eitthvað vit í svarið.



Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1363
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 192
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð með Excel tímaútreikninga

Pósturaf nidur » Mið 05. Ágú 2015 22:12

Þetta er nú alveg slatti af formúlum til að uppfylla allt sem þú baðst um :)


Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7064
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð með Excel tímaútreikninga

Pósturaf rapport » Mið 05. Ágú 2015 22:22

Það sem ég geri er að leggja línurnar í efstu línum svona skjals, köllum það "forsendur".

Ég þoli ekki þegar ég sé að fastar forsendur eru slegnar inn í formúlurnar.

Þar sem þú ert að láta a.m.k. tvær forsendur virka á sama reitinn þá þarftu að vera með einhverskonar skilyrðisformúlu.

Til að finna yfirvinnu pr. dag þá mundi ég líklega gera:

=MAX(E2-D2-8;E2-16:00;0)

Í stað þess að nota "8" þá mundi ég vísa annað reit kallaðan "dagvinnutímar" þar sem ég gæti breytt fjölda dagvinnutíma á einum stað.

Í stað þess að setja inn "16:00" þá mundi ég setja vísa í annan reit "Yfirvinna byrjar kl." þar sem ég gæti breytt því auðveldlega.

En málið er að þessi formúla finnur þá hámarksyfirvinnutíma, nema yfirvinnu að morgni dags.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7064
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð með Excel tímaútreikninga

Pósturaf rapport » Mið 05. Ágú 2015 22:35

=max(F2-E2-E6,F2-max(E5,E2),0)

Mynd

Bætti við öðru max til að tækla það ef þú bryjar eftir kl. 16: að vinna...



Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1363
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 192
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð með Excel tímaútreikninga

Pósturaf nidur » Fim 06. Ágú 2015 18:54

Ég myndi skoða að nota time recording pro, getur líka sett það upp með tasker til að stimpla þig inn og út sjálfkrafa þegar þú ert á vissum stað.


Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.

Skjámynd

joker
Fiktari
Póstar: 77
Skráði sig: Þri 20. Okt 2009 22:59
Reputation: 23
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð með Excel tímaútreikninga

Pósturaf joker » Fim 06. Ágú 2015 21:19

Hér hef ég lært mikið í Excel https://www.youtube.com/user/ExcelIsFun