Ná í útvarpsþætti af Vísi


Höfundur
dedd10
vélbúnaðarpervert
Póstar: 939
Skráði sig: Fös 18. Des 2009 21:27
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf dedd10 » Þri 10. Feb 2015 23:53

Er einhver með góða leið til að ná í útvarpsþætti af vísi? eins og t.d http://www.visir.is/section/MEDIA98&fil ... 890FDE2592

Notaði alltaf Jaksta en það virðist ekki virka lengur, einhver með ráð, væri frábært að fá ráð eða link til að ná í amk þennan þátt :)



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf kiddi » Mið 11. Feb 2015 00:10

Þú gætir náttúrulega prófað að taka upp hljóðið sem tölvan gefur frá sér, þannig kemstu framhjá hverju sem er, en ekki sjálfgefið að þessi aðferð virki hjá öllum.

Í stuttu máli, hægri smellir á Volume táknið neðst til hægri og velur Recording Devices og þar ætti að sjást "Stereo Mix", hægri smellir á það og velur Enable. Ef það sest ekki þá þarftu að hægri smella í þennan glugga og haka við "Show Disabled Devices". Þegar þetta er komið í gang þá ættirðu að geta tekið upp með t.d. Windows Sound Recorder, eða einhverju forriti eins og Audacity.

http://www.pcadvisor.co.uk/how-to/windo ... or-laptop/

Ég prófaði þetta sjálfur, þurfti að fara í Playback Devices líka og hægri smella á "Speakers" og velja Properties > Levels > un-Mute'a Microphone og stilla í botn. Passa svo að hljóðstyrkurinn í Speakers væri stilltur í botn og þá gat ég tekið upp þennan FM95Blö straum í dúndurgæðum í Sound Recorder & Adobe Audition :)




Höfundur
dedd10
vélbúnaðarpervert
Póstar: 939
Skráði sig: Fös 18. Des 2009 21:27
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf dedd10 » Mið 11. Feb 2015 00:24

Þarf maður þá ekki að taka þáttinn upp í 2 klukkutíma haha? Helvíti langur tími sem fer í það efm aður ætlar að ná í nokkra. Er á Mac líka,



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf kiddi » Mið 11. Feb 2015 10:17

Já þú þarft þá að láta tölvuna taka þetta upp í rólegheitum í rauntíma, þetta er þó allavega aðferð sem virkar :) Ég veit ekki til þess að neitt annað virki á visir.is. Það eru til sambærilegar aðferðir til að gera þetta á OSX; þegar ég var á Mac þá notaðist ég oft við forrit sem heitir ScreenFlow sem er æðislegt forrit, en það tekur upp skjáinn líka. Þú getur hinsvegar exportað hljóðrásinni einni og sér þegar þú ert búinn að taka upp og hent video rásinni.

En eins og oft hefur verið sagt, Google is your friend! Ef þú googlar "record computer audio OSX" þá færðu fullt af leiðbeiningum:
https://www.google.com/search?q=record+ ... 8&oe=utf-8




jaki
Nýliði
Póstar: 12
Skráði sig: Fös 29. Jún 2012 16:40
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf jaki » Mið 11. Feb 2015 11:13





Höfundur
dedd10
vélbúnaðarpervert
Póstar: 939
Skráði sig: Fös 18. Des 2009 21:27
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf dedd10 » Mið 11. Feb 2015 13:22

jaki skrifaði:http://m.visir.is/SRC/VEFTVMP3/sources/fm95blo/2015_02/fm95blo_2015_02_06.mp3


Vel gert! Var búinn að reyna finna svona link i sourcinu á linknum sem ég senti, hvar fannstu þetta?




jaki
Nýliði
Póstar: 12
Skráði sig: Fös 29. Jún 2012 16:40
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf jaki » Mið 11. Feb 2015 13:40

  • Hægri smella á siðuna og velja "View Page Source"
  • Ctrl + F og leitaðu að mp3, þá ertu komin með SRC/VEFTVMP3/sources/fm95blo/2015_02/fm95blo_2015_02_06.mp3
  • Settu það síðan fyrir aftan m.visir.is/




Höfundur
dedd10
vélbúnaðarpervert
Póstar: 939
Skráði sig: Fös 18. Des 2009 21:27
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf dedd10 » Mið 11. Feb 2015 14:41

Snillingur, takk fyrir þetta!




Höfundur
dedd10
vélbúnaðarpervert
Póstar: 939
Skráði sig: Fös 18. Des 2009 21:27
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf dedd10 » Þri 02. Jún 2015 14:56

Jæja, Nú er vísir líklega búinn að breyta þessu eitthvað.

Virkar amk ekki á þennan þátt: http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP36621

Getur einhver hjalpað?



Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2208
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 166
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf kizi86 » Þri 02. Jún 2015 20:16

nei ekkert breyst.. http://m.visir.is/CLP/36621_5.mp3 gerði nákvæmlega það sama og var bent á hér fyrir ofan..


ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV


Höfundur
dedd10
vélbúnaðarpervert
Póstar: 939
Skráði sig: Fös 18. Des 2009 21:27
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf dedd10 » Þri 02. Jún 2015 20:36

Ah þvilik heimska í mér haha, en takk fyrir þetta ;)!




Höfundur
dedd10
vélbúnaðarpervert
Póstar: 939
Skráði sig: Fös 18. Des 2009 21:27
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf dedd10 » Fim 03. Des 2015 23:57

Jæja, nú er þetta "trix" hætt að virka.. hvað er nú til ráðs!



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf kiddi » Fös 04. Des 2015 00:09

Ég er að nota núna þessa viðbót fyrir Firefox:
https://addons.mozilla.org/en-US/firefo ... ostpopular

Ég náði í 30mín brot úr Harmageddon á núlleinni með þessu, engin fyrirhöfn. Ýtti bara á play á klippunni og þá lifnaði við lítið tákn í slánni í Firefox þar sem ég gat valið að vista niður .MP3 skrána að baki þessu :) Idiotproof!




Höfundur
dedd10
vélbúnaðarpervert
Póstar: 939
Skráði sig: Fös 18. Des 2009 21:27
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Ná í útvarpsþætti af Vísi

Pósturaf dedd10 » Fös 04. Des 2015 00:29

Snilld, þetta græjaði málið! Þakka.