Sidebar Gadget Útvarp

Skjámynd

Höfundur
DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1127
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Reputation: 8
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Sidebar Gadget Útvarp

Pósturaf DoofuZ » Lau 13. Apr 2013 23:36

Fyrir um tveimur vikum síðan þá byrjaði ég að setja saman gadget fyrir íslenskar útvarpsstöðvar og fyrir um viku síðan eða svo þá var það að mestu tilbúið. Ætlaði nú að vinna eitthvað aðeins meira í þessu áður en ég myndi setja það online en svo rakst ég á annan þráð hér í gær þar sem annar snillingur hefur fengið sömu hugmynd og sett saman forrit fyrir allar íslensku stöðvarnar svo ég ákvað að skella þessari fyrstu útgáfu minni á netið ;)

Ég verð að viðurkenna það að ólíkt hinu forritinu þá er ég eins og er bara með þær útvarpsstöðvar sem eru inná vefútvarpsvefnum á visir.is en hins vegar þá birtir þetta litla gadget þær lagaupplýsingar sem fylgja með þar og maður getur á einfaldan hátt séð hvað er verið að spila á hinum rásunum án þess að skipta um stöð.

iceradio.png
Útgáfa 1.0
iceradio.png (79.17 KiB) Skoðað 855 sinnum

Takkarnir neðst frá 1 uppí 5 eru til að skipta um rás, þegar farið er yfir þá með músinni er hægt að sjá hvað er í gangi á hinum stöðvunum. Ef smellt er á kringlótta takkann lengst til hægri þá fer hljóðið af (mute) en til að setja það aftur á er smellt aftur á takkann. Með því að halda inni Shift takkanum og smella á sama takka er slökkt alveg á útvarpinu þar til það er smellt næst á einhverja stöð með tökkunum neðst. Til að hækka hljóðið er svo smellt á kringlótta takkann lengst til vinstri og með því að halda inni Shift takkanum og smella á sama takka er hljóðið lækkað.

Það er hægt að nálgast fyrstu útgáfuna af þessu góða tóli hér


Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2766
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 123
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sidebar Gadget Útvarp

Pósturaf zedro » Sun 14. Apr 2013 01:40

Eðal hugmynd, fer beinustu leið í side bar'inn EF þú hefur spilarann aðeins nútímalegri :happy


Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

Höfundur
DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1127
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Reputation: 8
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Re: Sidebar Gadget Útvarp

Pósturaf DoofuZ » Þri 16. Apr 2013 09:13

Já, ég setti þetta upphaflega saman í flýti. Er nú ekkert svakalega flinkur í Photoshop en ætla að reyna að setja eitthvað betra útlit saman fyrir næstu útgáfu :) Ef einhver vill hjálpa með það þá er það alveg velkomið ;)


Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]

Skjámynd

eriksnaer
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 394
Skráði sig: Mið 01. Ágú 2012 12:28
Reputation: 3
Staðsetning: Mosfellsbær
Staða: Ótengdur

Re: Sidebar Gadget Útvarp

Pósturaf eriksnaer » Þri 16. Apr 2013 09:17

Er það bara ég sem fæ ekki hljóð úr þessu..... koma upp stöðvarnar ef ég fer með músina yfir takkana, en ekkert hljóð og ekki hægt að spila neina....


Intel® Core™ i5-9400F - RTX™ 2060 6GB - 16GB DDR 4 2666 Mhz ( Dual channel) - 500GB Samsung SSD M.2 Nvme

Skjámynd

Höfundur
DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1127
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Reputation: 8
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Re: Sidebar Gadget Útvarp

Pósturaf DoofuZ » Þri 16. Apr 2013 22:44

Hvað gerist ef þú smellir á einhverja af stöðvunum? Helst þá logo-ið og lagaupplýsingarnar inni þegar þú ferð með músina frá tökkunum? Ef það helst þá geturu prófað að smella á kringlótta takkann hægra meginn, hann er til að hækka og lækka, ef þú ferð með músina yfir þann takka kemur líka fram á hvað volume er stillt á. Virka útvarpsstöðvarnar ef þú opnar http://vefutvarp.visir.is?


Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]