Síða 6 af 6

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mið 08. Feb 2012 15:34
af BjarkiB
Er nokkuð hægt að laga það , þegar ég set custom bakgrunn þá verða stafirnir alltaf með bleikan/fjólubláan border? Gat greinilega ekki sett mynd þar sem opacity-ið var ekki 100%.

og er hægt að hafa fídus þar sem maður getur sjálfur valið lit á línunni, þar að þessari grænu á myndinni?

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mið 08. Feb 2012 18:45
af DoofuZ
BjarkiB skrifaði:Er nokkuð hægt að laga það , þegar ég set custom bakgrunn þá verða stafirnir alltaf með bleikan/fjólubláan border? Gat greinilega ekki sett mynd þar sem opacity-ið var ekki 100%.

Bjóst einmitt við því að eiga eftir að fá þessa spurningu einhverntímann. Það er því miður eini gallinn á Windows Sidebar að ef maður vill hafa eitthvað transperancy þá fer það svona illa með texta. Það er að vísu hægt að komast hjá því en það er smá vesen, vil frekar sleppa því að láta transperancy virka nema það sé mikil eftirspurn eftir því.

BjarkiB skrifaði:og er hægt að hafa fídus þar sem maður getur sjálfur valið lit á línunni, þar að þessari grænu á myndinni?

Það verður hægt að gera það í næstu útgáfu ;) Eins og er get ég ekki alveg sagt til um hvenær næsta útgáfa kemur en fyrir þá sem eru með Makka þá er kannski Dashboard útgáfa á leiðinni... er amk. að skoða það :)

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mán 25. Jún 2012 10:21
af mundivalur
Heyrðu ég veit ekki hvort það hefur verið talað um það að þetta gadget truflar video áhorf ss. maður er að horfa á mynd full screen þá er td. taskbarinn og stundum(nokkra mínútna fresti) fleira á desktop að koma inn á myndina ! Þetta er á tveimur tölvunum með win 7 64bit og um leið og ég slekk á þessu Icemonitor gadget þá er allt í fína !

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mán 25. Jún 2012 10:31
af Moldvarpan
mundivalur skrifaði:Heyrðu ég veit ekki hvort það hefur verið talað um það að þetta gadget truflar video áhorf ss. maður er að horfa á mynd full screen þá er td. taskbarinn og stundum(nokkra mínútna fresti) fleira á desktop að koma inn á myndina ! Þetta er á tveimur tölvunum með win 7 64bit og um leið og ég slekk á þessu Icemonitor gadget þá er allt í fína !



Hef séð þetta koma ör fáu sinnum hjá mér, en ég var nú ekki búinn að tengja það við þetta gadget :P Er þetta að ské svona ferlega oft hjá þér?

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mán 25. Jún 2012 10:38
af DoofuZ
mundivalur skrifaði:Heyrðu ég veit ekki hvort það hefur verið talað um það að þetta gadget truflar video áhorf ss. maður er að horfa á mynd full screen þá er td. taskbarinn og stundum(nokkra mínútna fresti) fleira á desktop að koma inn á myndina ! Þetta er á tveimur tölvunum með win 7 64bit og um leið og ég slekk á þessu Icemonitor gadget þá er allt í fína !

Það er svoldið undarlegt vandamál :-k Það er nokkuð pottþétt að þetta er gerast þegar tólið er að uppfæra stöðuna en það er einmitt gert á 5 mínútna fresti. Þegar það er gert þá keyrir tólið falinn Internet Explorer glugga til að nálgast upplýsingarnar og það er greinilega að stela aðeins fókusinum.

Hvaða forrit ertu að nota til að spila mynd í fullscreen? Ertu að nota VLC? Hefuru prófað aðra spilara? Ef þú ert að nota VLC, prófaðu þá að fara í Video í menu og merkja þar við "Always on Top" og athugaðu hvort það breyti einhverju. Ég hef einmitt ekki lent í þessu og er sjálfur að nota Windows 7 64bita, nota VLC og er með merkt við "Always on Top". Dettur ekkert annað í hug eins og er.

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mán 25. Jún 2012 11:39
af mundivalur
Þetta kemur nokkrum sinnum í einum TV Þætti, nota vlc, bsplayer,prófaði lika splayer og man ekki með Media player Cl. , var með allt á Always on Top og þurfti líka að láta taskbar í auto-hide og þetta eru bæði tölvur tengdar beint í Tv skjá , það lagast allarvegna allt bara við að taka þitt gadget í burtu :klessa

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mán 25. Jún 2012 14:08
af DoofuZ
mundivalur skrifaði:... þetta eru bæði tölvur tengdar beint í Tv skjá , það lagast allarvegna allt bara við að taka þitt gadget í burtu :klessa

Hefuru eða geturu prófað venjulegan tölvuskjá? Gætir líka prófað að slökkva á Aero, sjónvarpssjárinn höndlar kannski ekki allt saman. Hvernig sjónvarp er þetta annars og hvernig er það tengt?.

Hvernig ert þú með þetta hjá þér Moldvarpa? Ert þú líka að nota TV skjá?

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Lau 19. Jan 2013 22:39
af Moldvarpan
Er að lenda í vandræðum með þetta Gadget núna, kemur alltaf "Innskráning mistóks - Athugaðu stillingar".

Stillingarnar eru eins og þær voru áður, alveg réttar. Er hjá Símanum.

Eru fleirri að lenda í þessu?

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Lau 19. Jan 2013 23:15
af Nariur
Eru einhver plön fyrir win8 app?

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Sun 20. Jan 2013 00:23
af lifeformes
Er að lenda í vandræðum með þetta Gadget núna, kemur alltaf "Innskráning mistóks -Athugaðu stillingar".

Stillingarnar eru eins og þær voru áður, alveg réttar. Er hjá Símanum.


x2

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Þri 22. Jan 2013 03:28
af cure
lifeformes skrifaði:
Er að lenda í vandræðum með þetta Gadget núna, kemur alltaf "Innskráning mistóks -Athugaðu stillingar".

Stillingarnar eru eins og þær voru áður, alveg réttar. Er hjá Símanum.


x2


sama er að gerast hjá mér

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Þri 22. Jan 2013 04:21
af DoofuZ
Það er ansi leiðinlegt að heyra að þetta sé hætt að virka fyrir þá sem eru hjá Símanum en það er bara góð ástæða til þess að fara að huga að næstu uppfærslu á tólinu, fer í það fljótlega ;)

Nariur skrifaði:Eru einhver plön fyrir win8 app?

Ég er ekki persónulega búinn að koma nálægt Windows 8 svo ég get ekki sagt til um það eins og er en það fer í skoðun :)

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Sun 24. Feb 2013 19:56
af DoofuZ
Jæja, nú er ég búinn að skoða Windows 8 aðeins, hvernig maður býr til app fyrir það og þess háttar, og ég sé ekki betur en að það sé smá vesen að gera þetta gadget að appi. Vandinn liggur ekki í forrituninni heldur því að gefa app út, því eina leiðin til þess er að setja það í app store hjá Microsoft og þegar ég ætlaði að skrá mig sem developer þar þá var ekki hægt að velja Ísland :| Er einhver hér sem hefur skráð sig sem app developer þarna? Er kannski ekki hægt að skrá sig sem app developer á Íslandi?

Þar til ég finn einhverja lausn á því vandamáli þá vil ég benda á að það er hægt að setja sidebar inná Windows 8 svo það er hægt að nota þetta tól á desktopinu þar alveg eins og í Windows 7. Það eina sem þarf að gera er að fara á þessa síðu, ná í forritið sem er þar og setja það upp, svo þarf bara að ná í tólið og gera install á því og þá er það komið :)

Þess má geta að það er líka hægt að setja sidebar inná Windows XP, ef einhver vill vita hvernig það er gert þá get ég komið með sér leiðbeiningar fyrir það.

En svo varðandi þá sem eru nettengdir hjá Símanum, er tólið enn ekki að virka rétt? Og eru allir hjá Símanum að lenda í þeim vanda? Er netþjónustuaðili í stillingunum stillt á sjálfvikrt eða Síminn?

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Sun 28. Apr 2013 18:45
af nesitech
Mjög gagnlegt gadget :) takk fyrir