Jæja, nú er ég búinn að skoða Windows 8 aðeins, hvernig maður býr til app fyrir það og þess háttar, og ég sé ekki betur en að það sé smá vesen að gera þetta gadget að appi. Vandinn liggur ekki í forrituninni heldur því að gefa app út, því eina leiðin til þess er að setja það í app store hjá Microsoft og þegar ég ætlaði að skrá mig sem developer þar þá var ekki hægt að velja Ísland
Er einhver hér sem hefur skráð sig sem app developer þarna? Er kannski ekki hægt að skrá sig sem app developer á Íslandi?
Þar til ég finn einhverja lausn á því vandamáli þá vil ég benda á að það er hægt að setja sidebar inná Windows 8 svo það er hægt að nota þetta tól á desktopinu þar alveg eins og í Windows 7. Það eina sem þarf að gera er að fara á
þessa síðu, ná í forritið sem er þar og setja það upp, svo þarf bara að ná í tólið og gera install á því og þá er það komið
Þess má geta að það er líka hægt að setja sidebar inná Windows XP, ef einhver vill vita hvernig það er gert þá get ég komið með sér leiðbeiningar fyrir það.
En svo varðandi þá sem eru nettengdir hjá Símanum, er tólið enn ekki að virka rétt? Og eru allir hjá Símanum að lenda í þeim vanda? Er netþjónustuaðili í stillingunum stillt á sjálfvikrt eða Síminn?