Síða 5 af 6

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Fim 29. Des 2011 00:46
af zedro
Bug report: Jæja ég er nokkuð viss um að þetta gadget eigi sökina á því að IE opnast reglulega yfir daginn
og sýnir mér gagnamagssíðuna hjá Vodafone (er þar). Hafa fleiri lent í svipuðu?

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Fim 29. Des 2011 01:03
af DoofuZ
cozened skrifaði:Í hverju er þetta forritað? , hvaða mála þar að segja.

Þetta er forritað svotil eingöngu í JavaScript með smá hjálp frá jQuery :) Þeir sem hafa annars áhuga á að skoða kóðann bakvið tólið geta gert það með því að opna "%LOCALAPPDATA%\Microsoft\Windows Sidebar\Gadgets\IceNet.Gadget\" í explorer (þar sem %LOCALAPPDATA% er C:\Users\Notandi\AppData\Local) en þar er meðal annars hægt að finna HTML skrár, stílsniðsskrár (.CSS) og svo að sjálfsögðu JavaScript skrár (.JS) en í þeim er aðalkóðinn sem stjórnar öllu.

Svo fyrir þá sem hafa áhuga á að læra að gera gadget þá er Microsoft með ansi góðar upplýsingar hér og hér en þessar síður komu mér að mjög miklum notum.

Zedro skrifaði:Bug report: Jæja ég er nokkuð viss um að þetta gadget eigi sökina á því að IE opnast reglulega yfir daginn
og sýnir mér gagnamagssíðuna hjá Vodafone (er þar). Hafa fleiri lent í svipuðu?

Hvurslags, það á bara alls ekki að geta gerst :shock: Endilega ef einhverjir fleiri eru að lenda í því látið vita, skal skoða þetta hið snarasta :-k

Hvernig er það svo annars, er ekki kominn tími á að þessi ágæti þráður sé límdur (sticky)? 8-[

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Fim 29. Des 2011 02:27
af slubert
virkar hjá mér núna. :happy hvernig gat ég lifað ánþess að hafa þetta app?

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Fim 29. Des 2011 02:52
af zedro
DoofuZ skrifaði:Hvernig er það svo annars, er ekki kominn tími á að þessi ágæti þráður sé límdur (sticky)? 8-[

Aðeins hágæða þræðir með hágæða forritum fá sticky. [-(

Skal klístra þig undir því yfirskini að þetta blessaða popup hætti í nýrri útgáfum :shock:
Svo væri ekkert vera að hafa quicklink á appinu sem sendir mann á yfirlitssíðuna.
Oft sem maður vill geta séð hvað maður sótti mikið daginn áður.

Önnur pæling væri að appið gæti varað mann við að maður eigi á hættu að fara yfir
gagnamagnið sitt miðað við núverandi notkun.

Dæmi:

Kóði: Velja allt

TotalUsage / DaysOfMonthPassed = AverageDailyUsage(ADU) [Shows your average daily usage ]
AverageDailyUsage * DaysOfMonthRemaining = ApproxRemainingUsage [Show aproximate usage untill the end of the month if you dont change your daly usage ]
TotalUsage + ApproxRemainingUsage = ApproxFinalUsage [Shows aproximate total usage for the month]

RemainingAllowance = UsageAllowance - TotalUsage [Shows how much allowance you have left]
ADUExpDays = RemainingAllowance / AverageDailyUsage [Days untill you allowance runs out]

DateOfUsageExp = Date + ADUExpDays [Gives date you go over your allowance]

RemDailyAllowance = RemainingAllowance / DaysOfMonthRemaining [Show how much you can use every day untill the end of the month without busting your limit]

IF ( ApproxFinalUsage > UsageAllowance )
        DateOfUsageExp;
ELSE
        RemDailyAllowance;

Smá flipp svakalega langt síðan ég hef forritað eitthvað, fékk bara smá impulse að rissa þetta upp.
Hefði verið fallegra að henda inn klössum en ég er ekki alveg að nenna því einsog er.

Þú skilur samt vonandi hvað ég er að reyna koma á frammfæri 8-[

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Fim 29. Des 2011 03:00
af Flinkur
Zedro skrifaði:Bug report: Jæja ég er nokkuð viss um að þetta gadget eigi sökina á því að IE opnast reglulega yfir daginn
og sýnir mér gagnamagssíðuna hjá Vodafone (er þar). Hafa fleiri lent í svipuðu?

DoofuZ skrifaði:Hvurslags, það á bara alls ekki að geta gerst :shock: Endilega ef einhverjir fleiri eru að lenda í því látið vita, skal skoða þetta hið snarasta :-k

Hvernig er það svo annars, er ekki kominn tími á að þessi ágæti þráður sé límdur (sticky)? 8-[

Er einning að lenda í því að IE opnist en samt mjög sjaldan, kom líka fyrir hjá félaga mínum. Erum báðir á ljósi frá Vodafone.
Samt snildar forrit sem ég er vel sáttur með :happy

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Fim 29. Des 2011 03:44
af Krisseh
Zedro skrifaði:Bug report: Jæja ég er nokkuð viss um að þetta gadget eigi sökina á því að IE opnast reglulega yfir daginn
og sýnir mér gagnamagssíðuna hjá Vodafone (er þar). Hafa fleiri lent í svipuðu?

Er að lenda í því sama, er hjá vodafone í ljósi.

náði í þetta Gadget í dag, sniðugt og vel nothæft.

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Fim 29. Des 2011 07:47
af DoofuZ
Zedro skrifaði:
DoofuZ skrifaði:Hvernig er það svo annars, er ekki kominn tími á að þessi ágæti þráður sé límdur (sticky)? 8-[

Aðeins hágæða þræðir með hágæða forritum fá sticky. [-(

Bara hágæða forrit? Er þetta eitthvað annað en hágæða forrit? 8-[

Zedro skrifaði:Skal klístra þig undir því yfirskini að þetta blessaða popup hætti í nýrri útgáfum :shock:
Svo væri ekkert vera að hafa quicklink á appinu sem sendir mann á yfirlitssíðuna.
Oft sem maður vill geta séð hvað maður sótti mikið daginn áður.

Jájá, þetta blessaða popup mun að sjálfsögðu hverfa í nýrri útgáfum, er nú þegar á góðri leið með að finna lausn á því vandamáli ;) Svo er lítið mál að skella hlekk á frekari upplýsingar. Er svo annars að spá í að gera bara viðbót við tólið þannig að maður geti smellt á takka og þá stækki það og sýni þá stærra yfirlit.

Zedro skrifaði:Önnur pæling væri að appið gæti varað mann við að maður eigi á hættu að fara yfir
gagnamagnið sitt miðað við núverandi notkun.

Jájá, ég skil alveg hvað þú ert að meina, forritið frá Hag, sem var að miklu leyti fyrirmyndin að þessu tóli, hefur þann fídus og það ætti ekki að vera mikið mál að bæta þeirri virkni inní þetta :)

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mán 02. Jan 2012 23:18
af DoofuZ
Jæja, gleðilegt nýtt ár kæru vaktarar! :8) :megasmile

Nú er komið að nýrri útgáfu en þar er ég búinn að laga leiðindagallann þar sem Internet Explorer gluggi með gagnamagnsupplýsingasíðu átti það til að opnast öðru hverju. Auk þess hef ég bætt aðeins við tólið en nú er hægt að smella á titilinn og þá opnast gagnamagnsupplýsingasíðan fyrir tenginguna ykkar og svo er núna kominn hlekkur í stillingunum til að athuga með uppfærslu svo þið þurfið ekki að bíða þar til eftir klukkan 18 þegar tólið athugar það sjálft ef það er komin ný útgáfa og þá þurfið þið ekki heldur að fara á síðuna og sækja það þar :)

Hvernig hefur annars uppfærsluathugunin verið að virka, hafið þið alveg fengið uppfærslutilkynningu fyrir síðustu útgáfur eða var ný útgáfa bara sótt beint af síðunni hjá mér? Þið getið alveg prófað það núna með því að loka núverandi útgáfu (smellið bara á X-ið) og setja hana svo aftur inn (hægri smellið á Desktop, veljið Gadgets og tvísmellið á tólið þar eða dragið það yfir á Desktop) en þá ættuð þið að fá uppfærslutilkynningu strax og þurfið þá ekki að fara á síðuna til að sækja nýjustu útgáfuna ;)

Svo er planið að bæta tólið allverulega fyrir útgáfu 2.0 sem ég vonast til að geta hent út seinna í mánuðinum eða í síðasta lagi í byrjun febrúar, en þar er hugmyndin að það verði hægt að smella á takka og þá muni tólið stækka og sýna nánari upplýsingar um gagnamagnið eins og t.d. notkun síðustu daga og hvort gagnamagnið á tengingunni dugi manni út mánuðinn miðað við notkun frá síðustu mánaðarmótum (eins og Zedro var að tala um).

Annars er ég með annað gadget í vinnslu núna sem ég er viss um að velflestir hér eigi eftir að verða mjög ánægðir með og það á pottþétt eftir að koma að góðum notum, en ég ætla ekki að segja meira um það í bili :-$

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Lau 07. Jan 2012 12:53
af BjarkiB
Var að ná mér í þetta, er hjá Símanum og þetta virkar fullkomnlega. Frábært forrit!

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Sun 08. Jan 2012 14:14
af BjarkiB
Þetta er verða frekar skrítið, eftir ég installaði þessu þá eiga leikir til að hallast á 5-10 mín fresti, er að gerast fyrst núna. Og líka ef ég er að horfa á eitthvað í fullscreen kemur taskbarinn upp inná milli.

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Sun 08. Jan 2012 21:29
af DoofuZ
BjarkiB skrifaði:Þetta er verða frekar skrítið, eftir ég installaði þessu þá eiga leikir til að hallast á 5-10 mín fresti, er að gerast fyrst núna. Og líka ef ég er að horfa á eitthvað í fullscreen kemur taskbarinn upp inná milli.

Skrítið... Og er það ekki að gerast ef þú lokar tólinu og prófar leik eða að spila eitthvað í fullscreen? Prófaðu eftirfarandi:

1. Ekki vera með neinn Internet Explorer glugga opinn
2. Hafðu tólið í gangi
3. Opnaðu Task Manager
4. Spilaðu eitthvað í fullscreen

Um leið og taskbarinn kemur upp kíktu þá í Task Manager og athugaðu hve mikið af iexplore.exe þú sérð þar, það ættu bara að vera í mesta lagi tvö eintök og þau ættu að hverfa fljótlega. Getur þá líka séð hvort þetta gerist alltaf þegar tólið er að athuga gagnamagnið.

Einhverjir aðrir að lenda í svipuðu? :-k

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Sun 08. Jan 2012 21:44
af Frost
Er ekki að lenda í neinu svipuðu og hann en eina sem er að núna hjá mér er að sjálfvirkt sýnir 80GB tengingu þegar ég er bara með 50GB. Nota yfirleitt bara handvirka stillingu.

Bara koma þessu á framfæri ef þig langar að kíkja á þetta ;)

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Sun 08. Jan 2012 23:31
af DoofuZ
Frost skrifaði:Er ekki að lenda í neinu svipuðu og hann en eina sem er að núna hjá mér er að sjálfvirkt sýnir 80GB tengingu þegar ég er bara með 50GB. Nota yfirleitt bara handvirka stillingu.

Já, ef þú stillir ekkert annað í stillingunum þá er sjálfgefið stillt á 80gb. Mjög einfalt að laga það, fara bara í stillingarnar og setja 50 í gagnamagn þar ;) Tólið getur því miður ekki fundið sjálft út hvaða gagnamagn maður er með, bara hjá hvaða netþjónustu maður er.

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mán 09. Jan 2012 01:13
af Steini B
Þetta virkar ekki hjá mér, glugginn er bara svartur... :-k

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mán 09. Jan 2012 14:51
af BjarkiB
DoofuZ skrifaði:
BjarkiB skrifaði:Þetta er verða frekar skrítið, eftir ég installaði þessu þá eiga leikir til að hallast á 5-10 mín fresti, er að gerast fyrst núna. Og líka ef ég er að horfa á eitthvað í fullscreen kemur taskbarinn upp inná milli.

Skrítið... Og er það ekki að gerast ef þú lokar tólinu og prófar leik eða að spila eitthvað í fullscreen? Prófaðu eftirfarandi:

1. Ekki vera með neinn Internet Explorer glugga opinn
2. Hafðu tólið í gangi
3. Opnaðu Task Manager
4. Spilaðu eitthvað í fullscreen

Um leið og taskbarinn kemur upp kíktu þá í Task Manager og athugaðu hve mikið af iexplore.exe þú sérð þar, það ættu bara að vera í mesta lagi tvö eintök og þau ættu að hverfa fljótlega. Getur þá líka séð hvort þetta gerist alltaf þegar tólið er að athuga gagnamagnið.

Einhverjir aðrir að lenda í svipuðu? :-k

Koma 3 iexplore.exe
btw. Gæti getað vera klaufaskapur hjá mér, var með online en ekki do not disturb, sem lætur kannski leikinn halla :catgotmyballs

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mán 09. Jan 2012 17:30
af DoofuZ
BjarkiB skrifaði:Koma 3 iexplore.exe
btw. Gæti getað vera klaufaskapur hjá mér, var með online en ekki do not disturb, sem lætur kannski leikinn halla :catgotmyballs

Ha? Hvað var stillt á online en ekki do not disturb? MSN Messenger?

Steini B skrifaði:Þetta virkar ekki hjá mér, glugginn er bara svartur... :-k

Þá er mjög líklegt að Internet Explorer hjá þér sé ekki alveg í lagi því þetta tól notar IE mjög mikið. Notaru eitthvað annað en IE á netinu eins og Firefox? Ef svo er, athugaðu þá hvort IE sé ekki örugglega í lagi. Ef allt er í lagi í IE en þú ert ekki með nýjustu útgáfu þá gæti þetta lagast með því að uppfæra. Gætir svosem líka prófað að fara í Internet Options í IE og endurstillt öryggisstillingarnar.

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mán 09. Jan 2012 17:32

Já afsakið gleymdi á segja hvað ](*,) En já ég var að tala um Skype, er nokkuð viss um að þetta var bara það, afsakið þetta.

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mán 09. Jan 2012 21:06
af DoofuZ
BjarkiB skrifaði:Já afsakið gleymdi á segja hvvað ](*,) En já ég var að tala um Skype, er nokkuð viss um að þetta var bara , afsakið þetta.

Hehe, alltílagi, bjóst líka svosem ekki við því að tólið væri að valda þessum vandræðum ;)

En Steini B, er glugginn ennþá svartur hjá þér? Búinn að prófa það sem ég sagði?

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Þri 10. Jan 2012 02:12
af steinarorri
Búinn að komast að því hvað var alltaf að hjá mér... IE var ekki uppsett í vélinni :D Setti aftur upp IE9 og þá virkaði þetta um leið... er ekkert hægt að komast fram hjá því að þurfa IE?

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Þri 10. Jan 2012 09:23
af Steini B
DoofuZ skrifaði:
BjarkiB skrifaði:Já afsakið gleymdi á segja hvvað ](*,) En já ég var að tala um Skype, er nokkuð viss um að þetta var bara , afsakið þetta.

Hehe, alltílagi, bjóst líka svosem ekki við því að tólið væri að valda þessum vandræðum ;)

En Steini B, er glugginn ennþá svartur hjá þér? Búinn að prófa það sem ég sagði?

Jebb, hann er enþá svartur...
Nota vanalega Firefox, en IE virkar eðlilega og ég fiktaði í öllum stillingum en ekkert gerist...

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Þri 10. Jan 2012 15:04
af DoofuZ
steinarorri skrifaði:Búinn að komast að því hvað var alltaf að hjá mér... IE var ekki uppsett í vélinni :D Setti aftur upp IE9 og þá virkaði þetta um leið... er ekkert hægt að komast fram hjá því að þurfa IE?

Nei, því miður. Það gæti verið að Sidebar prógrammið þurfi reyndar ekki á IE að halda til að virka en tólið sjálft notar IE óspart, í raun er tólið einfaldlega að opna falinn IE glugga til að nálgast nýjustu upplýsingarnar svo það er frekar mikilvægt að IE sé uppsett og í lagi á tölvunni.

Steini B skrifaði:
DoofuZ skrifaði:En Steini B, er glugginn ennþá svartur hjá þér? Búinn að prófa það sem ég sagði?

Jebb, hann er enþá svartur...
Nota vanalega Firefox, en IE virkar eðlilega og ég fiktaði í öllum stillingum en ekkert gerist...

Ok, og hvaða útgáfu af IE ertu með? Gætir prófað að setja nýjustu útgáfuna inn.

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Lau 14. Jan 2012 02:42

Er með nýjustu uppfærslu af IE9

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Lau 14. Jan 2012 17:57
af DoofuZ
Steini B skrifaði:Er með nýjustu uppfærslu af IE9

Ok, en hvað með önnur gadgets, virka öll önnur gadget hjá þér eins og t.d. klukkan og veðrið?

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Mið 01. Feb 2012 12:30
af Harkee
Sæll flott forrit, fæ reyndar þetta IE pop up en það böggar mig ekkert svo mikið

Ég var að pæla í hvort einhver viti um forrit þannig ég get fylgst með downloadi bara á minni tölvu, erum 3 að leigja saman og væri til í að sjá hvað ég er að downloada sér svo þeir geti hætt að skamma mig fyrir að downloada og mikið, held það sé nefnilega ekki ég :D

Re: Sidebar Gadget til að fylgjast með (erlendu) gagnamagni

Sent: Fim 02. Feb 2012 01:08
af DoofuZ
Harkee skrifaði:Sæll flott forrit, fæ reyndar þetta IE pop up en það böggar mig ekkert svo mikið

Það ætti ekki að getast, var einmitt að enda við að laga það í síðustu útgáfu. Ertu alveg pottþétt með nýjustu útgáfuna, 1.3.3.8? Og gerist þetta eitthvað oft eða bara öðru hverju?

Harkee skrifaði:Ég var að pæla í hvort einhver viti um forrit þannig ég get fylgst með downloadi bara á minni tölvu, erum 3 að leigja saman og væri til í að sjá hvað ég er að downloada sér svo þeir geti hætt að skamma mig fyrir að downloada og mikið, held það sé nefnilega ekki ég :D

Ég hef verið að nota DU Meter í mörg ár, það sýnir þér þessar upplýsingar og meira til ;)