Síða 5 af 6

Re: UPDATE #6! Forrit til að fylgjast með erlendu dl hjá Voda

Sent: Fös 26. Ágú 2011 13:07
af Gummzzi
elfaralfreds skrifaði:Hérna er working plugin fyrir Símann.
SiminnReader.0.3.zip


Búinn að prófa þetta og virkar fínt hjá mér.

update: lagaði smá formatting villu.


God bless you!
Mynd

...en linkurinn er ekki að virka, eða er þetta ekki linkur á download ?

Re: UPDATE #6! Forrit til að fylgjast með erlendu dl hjá Voda

Sent: Fös 26. Ágú 2011 13:11
af elfaralfreds
Gummzzi skrifaði:...en linkurinn er ekki að virka, eða er þetta ekki linkur á download ?


"SiminnReader.0.3.zip" linkurinn virkar fínt hérna?

Re: UPDATE #6! Forrit til að fylgjast með erlendu dl hjá Voda

Sent: Fös 26. Ágú 2011 14:24
af Gummzzi
elfaralfreds skrifaði:
Gummzzi skrifaði:...en linkurinn er ekki að virka, eða er þetta ekki linkur á download ?


"SiminnReader.0.3.zip" linkurinn virkar fínt hérna?


Já hérna líka núna, veit ekki hvað var málið en þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég sé línk sem bara texta, þarf þá bara að reload'a :?

Re: UPDATE #6! Forrit til að fylgjast með erlendu dl hjá Voda

Sent: Fös 26. Ágú 2011 15:13
af peturthorra
Þakka fyrir mig, virkar flott, er hjá símanum.

Re: UPDATE #6! Forrit til að fylgjast með erlendu dl hjá Voda

Sent: Fös 26. Ágú 2011 19:05
af Gummzzi
peturthorra skrifaði:Þakka fyrir mig, virkar flott, er hjá símanum.

Segjum tveir! rosalega þæginlegt :happy

Re: UPDATE #6! Forrit til að fylgjast með erlendu dl hjá Voda

Sent: Fös 26. Ágú 2011 21:29
af hagur
Jæja, hérna er fix fyrir Hringdu plugin-ið en það var að skila gögnum í GB en forritið vill fá MB.

Unzip og yfirskrifið HringduReader.dll og málið ætti að vera leyst.

EDIT: Notið attachmentið hérna 2 póstum neðar! :-"

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Fös 26. Ágú 2011 23:21
af kizi86
eftir þessa uppfærslu, þá kemur 64450MB en á síðunni 4,32GB .....

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Fös 26. Ágú 2011 23:27
af hagur
kizi86 skrifaði:eftir þessa uppfærslu, þá kemur 64450MB en á síðunni 4,32GB .....


Dóh! sorry ... var að láta plugin-ið lesa dummy test síðu sem ég bjó til og gleymdi svo að svissa yfir á actual síðuna hjá Hringdu. :sleezyjoe :oops:

Hérna er nýtt enn og aftur ....

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Lau 27. Ágú 2011 07:09
af kizi86
takk kærlega! virkar fínt núna :)

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Lau 27. Ágú 2011 09:45
af mundivalur
Flott virkar hjá mér(siminn)í sveitinni!
Takk

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Mið 28. Sep 2011 15:31
af mundivalur
Er þetta ekki að virka lengur? :-k
Er hjá símanum!

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Mið 28. Sep 2011 17:25
af DoofuZ
Er þetta ekki komið í gadget form? Var annars sjálfur nýlega að gera gadget fyrir Nova þar sem ég þurfti að nota netið á símanum á meðan ég beið eftir að fá ljósleiðara tengdann. Svo er ég núna að fara að setja Tal inní það líka og var að spá í að hafa það þannig að maður gæti stillt það á að finna sjálfkrafa hvar maður er tengdur en þá gæti maður t.d. séð inneignina hjá vini sínum þegar maður kíkti í heimsókn :roll: En samt ferlega leiðinlegt að maður þurfi að logga sig inn hjá sumum, ætti samt ekki að vera það erfitt að fá það til að virka með smá hjálp frá jQuery og Ajax ;)

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Mið 28. Sep 2011 17:50
af GuðjónR
.

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Fim 29. Sep 2011 14:14
af DoofuZ
Ég var rétt í þessu að prófa þetta ágæta forrit og valdi Tal og ég fæ erlent gagnamagn sem 0,00 og svo þegar forritið reynir að uppfæra það þá kemur "Villa kom upp við tengingu!" :| Er þetta forrit að reyna að fiska upplýsingarnar frá einhverju öðru en notkun.hive.is?

Seinna í kvöld ætla ég annars að athuga hvernig það virkar að láta Windows gadget logga sig inná síðu til að nálgast svona upplýsingar og ef það er ekki mikið mál þá mun ég líklega gera sér þráð fyrir það project og kalla þá eftir linkum og page source hjá öllum svo stay tuned! ;)

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Fim 29. Sep 2011 14:48
af starionturbo
Næsta verkefni hjá mér er að prufa nýja .NET 4.0 api og gera Windows 8 metro widget :megasmile

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Lau 01. Okt 2011 00:44
af DoofuZ
Jæja, er búinn að vera aðeins að fikta með jQuery og Ajax til að logga inn á síðu þar sem hægt er að fá þessar gagnamagnsupplýsingar og það hefur nú ekki beint verið að ganga vel :| Hefur einhver ykkar einhverja reynslu i því að nota jQuery og Ajax eða eitthvað í þeim dúr til að logga inn á síðu eða er kannski hægt að fara einhverja aðra leið að því? Er kannski hægt að nota svona dll reader module með JavaScript eða einhverju slíku? :-k

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Lau 01. Okt 2011 08:53
af hagur
Þetta er mjög viðkvæmt fyrir breytingum sem þjónustuaðilar gera á gagnamagnssíðunum sínum þar sem það er einfaldlega verið að screen-scrape-a gögnin frá þeim. Ef HTML-ið breytist eitthvað að ráði, þá getur þetta hætt að virka.

Ég hugsa að Hringdu sé búið að breyta einhverju hjá sér. GuðjónR, geturðu farið á notkun.hringdu.is og sent mér source-inn af HTML-inu sem þú færð? Þá get ég uppfært Hringdu plugin-ið.

Ég er sjálfur með net hjá Vodafone og veit ekki betur en að vodafone plugin-ið sé að virka rétt. Það er líka eina síðan sem ég hef tækifæri á að fylgjast með (eðlilega) og get því verið fljótur að bregðast við og uppfæra vodafone plugin-ið ef þeir gera breytingar.

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Lau 01. Okt 2011 10:13
af GuðjónR
Hagur, það er líklega ekkert sem þú getur gert til að virkja hringdu.is þar sem tölurnar á notkun.hringdu.is eru búnar að vera óbreyttar allan mánuðinn.
Ég er pottþétt með meiri notkun en þetta.

Svona lítur source út:

Kóði: Velja allt

<h1>Notkun IP tala: 46.22.97.211</h1>
<p><b>August 2011</b>: 20.16 GB
<p><b>September 2011</b>: 19.27 GB

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Mið 22. Feb 2012 10:15
af PepsiMaxIsti
Þetta er hætt að virka með vodafone, eða ég fæ það allavega ekki til að virka hjá mér. :(

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Sun 26. Feb 2012 22:23
af hagur
Já, sama hér. Líklega hafa Vodafone menn verið að breyta vefsíðunni hjá sér eitthvað. Skal kíkja á þetta við tækifæri og smella inn nýrri útgáfu.

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Sun 26. Feb 2012 23:40
af hagur
Hérna er uppfært plugin fyrir þá sem eru hjá Vodafone.

  • Slökkvið á forritinu ...
  • Afzippið þessu inn í folderinn þar sem VodafoneDownloadGauge.exe skráin er ... ættuð að yfirskrifa VodafoneReader.dll sem er þegar til staðar.
  • Ræsið aftur, voila!

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Mán 27. Feb 2012 00:03
af DoofuZ
http://haukurhaf.net/Vodafone-Download-Gauge skrifaði:Ef þú getur séð upplýsingar um gagnamagn þitt á þessari slóð hér: http://www.vodafone.is/internet/adsl/gagnamagn eða hér: http://www.tal.is/index.aspx?GroupId=771 þá geturðu notað þetta forrit.

Var að prófa áðan og fæ bara villuboð ("Villa kom upp við tengingu!") og þegar ég opna þessa slóð sem þú nefnir þarna þá fæ ég bara redirect á tal.is, kannski eru þeir eitthvað búnir að breyta slóðinni á þessari síðu hjá sér. Sjálfur notast ég einfaldlega bara við http://notkun.hive.is í forritinu mínu, er eitthvað verra að nota þá slóð í þínu forriti eða vissiru kannski ekki af þeirri slóð?

Sé reyndar að þú nefnir að þeir sem eru með net hjá fyrirtækjum tengdum Vodafone ættu að geta séð gagnamagnsupplýsingar á annað hvort Vodafone eða Tal slóðinni, styður þá forritið bara þá sem eru ekki hjá Tal en geta samt séð upplýsingarnar á þessari slóð eða er þetta bara eitthvað villandi texti? Er hjá Tal sjálfur sko.

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Mán 27. Feb 2012 00:13
af hagur
Þessi texti er eldgamall og á ekki lengur við. Ertu ekki með tal plugin fyrir forritið (ættir að geta valið tal úr dropdown listanum)? Veit ekki betur en að það sé í lagi.

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Mán 27. Feb 2012 00:31
af DoofuZ
Já, ég náði bara í þetta áðan og Tal plugin-ið er í möppunni.

Re: Forrit til að fylgjast með erlendu downloadi

Sent: Fös 18. Maí 2012 17:01
af kazzi
DoofuZ skrifaði:
http://haukurhaf.net/Vodafone-Download-Gauge skrifaði:Ef þú getur séð upplýsingar um gagnamagn þitt á þessari slóð hér: http://www.vodafone.is/internet/adsl/gagnamagn eða hér: http://www.tal.is/index.aspx?GroupId=771 þá geturðu notað þetta forrit.

Var að prófa áðan og fæ bara villuboð ("Villa kom upp við tengingu!") og þegar ég opna þessa slóð sem þú nefnir þarna þá fæ ég bara redirect á tal.is, kannski eru þeir eitthvað búnir að breyta slóðinni á þessari síðu hjá sér. Sjálfur notast ég einfaldlega bara við http://notkun.hive.is í forritinu mínu, er eitthvað verra að nota þá slóð í þínu forriti eða vissiru kannski ekki af þeirri slóð?

Sé reyndar að þú nefnir að þeir sem eru með net hjá fyrirtækjum tengdum Vodafone ættu að geta séð gagnamagnsupplýsingar á annað hvort Vodafone eða Tal slóðinni, styður þá forritið bara þá sem eru ekki hjá Tal en geta samt séð upplýsingarnar á þessari slóð eða er þetta bara eitthvað villandi texti? Er hjá Tal sjálfur sko.

hæ það kemur bara page not found á linknum .einhver að lenda í þessu ?
eða er hægt að sækja þetta annarstaðar ?