Spurning varðandi DC++

Er frítt niðurhal af íslenska DC++ netþjóninum?

Atkvæðagreiðslan endaði Fös 15. Nóv 2002 15:52

9
64%
Nei
3
21%
Ha?
2
14%
 
Samtals atkvæði: 14

Skjámynd

Höfundur
Saber
FanBoy
Póstar: 744
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:29
Reputation: 7
Staðsetning: 104
Staða: Ótengdur

Spurning varðandi DC++

Pósturaf Saber » Þri 05. Nóv 2002 15:52

Smá spurning varðandi DC++

Flestir ADSL notendur hafa frítt "download" af íslenskum "serverum".
Gildir það um DC++ líka? Þ.e. á íslenska "servernum" þar?

:?:


Intel Core i5 4690K @ ? GHz Custom water cooling Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=53292

Skjámynd

kemiztry
Gúrú
Póstar: 592
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:15
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Pósturaf kemiztry » Þri 05. Nóv 2002 15:58

Allt innanlandsdownload er frítt á ADSL. Íslenski DC++ þjónninn hleypir eingöngu fólki sem koma frá netfyrirtækjum hér. Þetta er gert með því að filtera IP tölurnar. :D


kemiztry

Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Þri 05. Nóv 2002 19:16

Nennir einhver að skrifa niður lista með helstu serverunum hér á landi?



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16272
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1995
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

samt...

Pósturaf GuðjónR » Þri 05. Nóv 2002 19:18

Já en getur maður treyst þessu 100% ?? Það var einn inni á "Lególandi" að tala um að hann hefði fengið reikning fyrir 22GB downlodi og hann hefði eingöngu verið að downloda frá þessum íslenska hub.

Lególand = 213.213.144.106 veit ekki um fleiri. :loom



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Þri 05. Nóv 2002 22:06

22GB??? Hvað var reikningurinn hár?
Hann skildi örugglega kazaa opið allan tímann eða eitthvað.
Akkurru er ekki bara hægt að fá sundurliðaða reikninga með IP tölunum sem að mar hefur verið á og hvað mar hefur dl miklu frá þeim????



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16272
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1995
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

einmitt...

Pósturaf GuðjónR » Þri 05. Nóv 2002 22:15

Það fylgdi ekki sögunni hvað reikningurinn var hár, en þeir voru eitthvað að tala um sundurliðun, en það kallast víst IP greining og kostar að mér skilst 10.000.-kr.
Sem þú verður að borga nema að sundurliðunin sanni að það sé verið að rukka þig um eitthvað sem þú átt ekki að borga.
Ég myndi ef ég fengi svona reikning neita að borga hann nema að fá sundurliðun, á maður að treysta svona fyrirtækjum eins og Íslandssíma
sem gera ekki annað en að senda manni bull reikninga? Never!
:lamp



Skjámynd

odinnn
spjallið.is
Póstar: 473
Skráði sig: Fim 26. Sep 2002 20:37
Reputation: 8
Staðsetning: Hef ekki glóru!
Staða: Ótengdur

Pósturaf odinnn » Mið 06. Nóv 2002 20:17

IP-ið á legokall er legokall.gormur.net



Skjámynd

Atlinn
Ofur-Nörd
Póstar: 264
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 14:33
Reputation: 0
Staðsetning: Nordock Iceland
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Atlinn » Fim 07. Nóv 2002 10:57

Hvað er DC++???


hah, Davíð í herinn og herinn burt

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16272
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1995
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf GuðjónR » Fim 07. Nóv 2002 12:43

DC++ heitir öðru nafni Direct Connect, það virkar þannig að það er útbúinn server "HUB" sem síðan ég og þú getum tengst inn og skipts á forritum/myndum eða örðum gögnum.
Til þess að geta verið með þá þarftu að gefa aðgang að einhverri möppu/möppum á HD hjá þér.
Þetta er mjög sniðugt af því að þarna getur maður nálgst allt milli himins og jarðar án þess að vera að borga DL til útlanda.
...eða að minsta kosti á það að vera þannig... :loom



Skjámynd

Atlinn
Ofur-Nörd
Póstar: 264
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 14:33
Reputation: 0
Staðsetning: Nordock Iceland
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Atlinn » Fim 07. Nóv 2002 13:03

S.S. þetta er bara eins og að séra(share) á lani, bara í gegnum netið, er það ekki??

Þarf eitthvað forrit til að þetta virki?
Hvernig tengist maður þessum höbbi?, sem er þá væntanlega einhver tlva útí bæ?


hah, Davíð í herinn og herinn burt

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16272
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1995
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf GuðjónR » Fim 07. Nóv 2002 14:19

Jú það má segja það að þetta sé svona eins og "share" á risa-lani ef við líkjum landinu við lan.
Til að tengjast þarftu að byrja á því að ná í þetta litla forrit.

http://www.vaktin.is/dc/DCPlusPlus-0.181.zip

Þegar þú ert búinn að installera, þá þarftu að fara í setting og velja þér notandanafn og benda á "share" folderinn þinn.
Ég held að á þessum íslenska sem allir eru að DL frá sé 10gb lágmark í share, ég er ekki alveg viss samt.
Síðan velur þú "Connect" og slærð inn IP töluna: 213.213.144.106
Svo er bara að fikta sig áfram, þetta er einfalt og skýrir sig sjálft. :loom



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Fim 07. Nóv 2002 19:35

Er ekki málið að setja upp svona lítið skráarsvæði hérna, það þyrfti ekkert að vera nein síða bara directory'ið sem að serverinn býr til.
Ég er ekki að tala um neitt mikið, svona uppá álagið, heldur bara það sem að menn eru að tala um hérna.
En hvernig er það, kostar ekki slatta að vera með íslenskt lén?



Skjámynd

galldur
Fiktari
Póstar: 59
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 17:29
Reputation: 0
Staðsetning: Heima
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf galldur » Fim 07. Nóv 2002 22:52

þetta direct connect og fleiri forrit gera það að verkum að bráðum verður farið að rukka fyrir innanlands traffík.
ef þið skoðið http://www.rix.is/statistics.html og línu net sjáið þið svolítið óeðlilegt... og heildar umferð um rix hefur meira en 2faldast á einu ári.

mezzup , lína net er sennilega á leiðinni með skráarsafn. Þá eitthvað betra en static.hugi.is



Skjámynd

Castrate
spjallið.is
Póstar: 435
Skráði sig: Mið 25. Sep 2002 14:27
Reputation: 0
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Castrate » Fös 08. Nóv 2002 00:14

ég einhvernvegin treysti ekki þessu legoland....er bara með 256mb tengingu og ef ég er að dla þá verður netið bara eins og á 56k módemi og ég nenni ekki að standa í því þar sem ég nota netið mjög mikið í að browsa og solleis :roll:


kv,
Castrate

Skjámynd

Spirou
has spoken...
Póstar: 154
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Spirou » Fös 08. Nóv 2002 09:39

galldur skrifaði:þetta direct connect og fleiri forrit gera það að verkum að bráðum verður farið að rukka fyrir innanlands traffík.
ef þið skoðið http://www.rix.is/statistics.html og línu net sjáið þið svolítið óeðlilegt... og heildar umferð um rix hefur meira en 2faldast á einu ári.

mezzup , lína net er sennilega á leiðinni með skráarsafn. Þá eitthvað betra en static.hugi.is


Ég myndi nú ekki fara hafa áhyggjur af því. Nú er ADSL orðið main stream og margir að komast í kynni við háhraða internettenginu í fyrsta sinn á ævinni. Tilboðum hefur rignt yfir landann í allt sumar og kemur mér ekkert á óvart að netnotkun hafi aukist til muna.
Samkvæmt eðlilegum viðskiptaútreikningum ætti þetta aðeins að gera þjónustuna hagkvæmari þar sem vanalega er nú ódýrara að versla í miklu magni en litlu.
Allar nettenginar stóru internetþjónustuna eru á ljósleiðara, ljósleiðarar er dýrt að grafa fyrir og koma upp, en þegar þráðurinn er kominn , þá er ekki tæknilega erfitt að bæta við meiri hraða.
Svo er þetta netgraf með hámark í 100mb. 1000mb(já 1gb) er nú að komast í almenna notkun, svo mín skoðun er að fólk á ekkert að þurfa að halda í við sig með netnotkun.

download awayl



Skjámynd

galldur
Fiktari
Póstar: 59
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 17:29
Reputation: 0
Staðsetning: Heima
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf galldur » Fös 08. Nóv 2002 14:28

Spirou
hið besta mál að verðið lækki og fleiri noti hratt internet.
það sem ég átti við með óvanalegri notkun er móttöku og sendihlutfallið á kerfunum.
Venjulegur internet notandi er svona með 80% sótt og 20% send.
http://www.rix.is/statistics.html Kúrfan hjá margmiðlun er eðlilegust. Lína net er mjög skrítin, meira sent en tekið á móti, kannski hluti skýringarinnar stofnanir og fyrirtæki.
Ef þið skoðið útstreymið á næturnar frá svona kl 4-6 fáið þið summuna af þvi hvað svona file share forrit og ftp eru að nota af traffíkinni í landinu. Er kannski einhver með hugmynd hvað annað er í gangi á nóttinni ?



Skjámynd

Spirou
has spoken...
Póstar: 154
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:22
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Spirou » Fös 08. Nóv 2002 14:45

galldur skrifaði:Spirou
hið besta mál að verðið lækki og fleiri noti hratt internet.
það sem ég átti við með óvanalegri notkun er móttöku og sendihlutfallið á kerfunum.
Venjulegur internet notandi er svona með 80% sótt og 20% send.
http://www.rix.is/statistics.html Kúrfan hjá margmiðlun er eðlilegust. Lína net er mjög skrítin, meira sent en tekið á móti, kannski hluti skýringarinnar stofnanir og fyrirtæki.
Ef þið skoðið útstreymið á næturnar frá svona kl 4-6 fáið þið summuna af þvi hvað svona file share forrit og ftp eru að nota af traffíkinni í landinu. Er kannski einhver með hugmynd hvað annað er í gangi á nóttinni ?


Ég er með tvær kenningar.
Kenning númer 1:
Eins og þú segir þá eru mörg fyrirtæki og stofnanir tengdar Línu.net, það væri sem sagt alveg fræðilegur möguleiki að fyrirtækin séu einfaldlega að taka öryggisafrit sem eru síðan geymd einhver staðar út í bæ. Ég veit reyndar ekki hvort þessi háttur á öryggisafritun sé hafður , en mér þykir það mjög líklegt, sérstaklega þegar maður sér að sum fyrirtæki kaupa út alla tölvuþjónustu sem þeir nota.
Kenning númer 2:
Kannski er netgrafið einfaldlega bara rangt, það er að segja að út og inn hafi víxlast.

Ef ef hvorug þessara kenninga stenst þá myndi ég giska á file share forrit kenninguna :D




ibs
Fiktari
Póstar: 80
Skráði sig: Mið 11. Des 2002 14:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ibs » Mið 11. Des 2002 14:07

DC++ er bara snilldar forrit og ég mæli með því.
Ég hef aldrei verið að ná í eitthvað á Legolandi sem telst utanlands.
Ef það gerist einhvern tíma þá nota ég CostAware og sé ef ég er að ná í frá útlöndum.