Síða 1 af 1

[Komið] Hringadróttinssaga og Hobbitinn á íslensku

Sent: Sun 14. Jan 2024 21:24
af kzkzbngbng
Heilir og sælir vaktarar.

Á einhver ykkar Hringadróttinssögu og/eða Hobbitann - bækurnar - á íslensku og væri til í að selja mér fyrir sanngjarnt verð?

Endilega sendið mér skilaboð ef svo er. :happy

Kveðja.

Re: [ÓE] Hringadróttinssaga og Hobbitinn á íslensku

Sent: Mán 15. Jan 2024 16:51
af rostungurinn77
Gætir prufað að heyra í Bókakaffi. Þeir gætu lumað á bókunum í Ármúla eða á Selfossi.

https://www.bokakaffid.is/

Auk þess er fornbókabúð á eða við Hverfisgötu. Hugsa að þú verðir að mæta á staðinn og leita ef þú vilt finna eitthvað þar.

Re: [ÓE] Hringadróttinssaga og Hobbitinn á íslensku

Sent: Þri 16. Jan 2024 10:49
af GullMoli
Nú er ég forvitinn, hvað væri sanngjarnt verð fyrir t.d. Hringadróttinsögu á Íslensku?

Re: [ÓE] Hringadróttinssaga og Hobbitinn á íslensku

Sent: Þri 16. Jan 2024 14:28
af KristinnK
Þessar bækur eru mjög eftirsóttar, og ég sé þær mjög sjaldan til sölu. Í um fimm ár hef ég farið reglulega í Góða Hirðirinn, Nytjamarkað ABC, Basarinn og fleiri verslanir með notaðar bækur, og ég hef bókstaflega aldrei séð innbundnu útgáfuna af Hringadróttinssögu (ég sá einu sinni kiljuútgáfuna með myndir á kápunni úr kvikmyndunum). Ég hef einu sinni séð allar þrjár auglýstar á Facebook, og tvisvar séð stakt bindi til sölu á vefverslun Góða Hirðisins þegar hún var og hét. Ég veit ekki hvað bækurnar sem voru auglýstar á Facebook fóru á, en stöku bindin á vefverslun Góða Hirðisins kostuðu 1500 kr. hvor.

Ef ég myndi áætla eitthvert sanngjarnt verð fyrir öll þrjú bindin saman á almennum markaði, þá myndi ég ekki segja að það gæti verið undir 10 þúsund krónum. Kannski á bilinu 15-20 þúsund. Kannski hærra. Verðið ræðst einfaldlega af því hvað þeir sem eiga þessar bækur eru tilbúnir til að láta bækurnar á, og þar sem enginn virðist vilja selja sínar þá er erfitt að áætla það. Persónulega hef ég engan áhuga á að selja mínar.

Re: [ÓE] Hringadróttinssaga og Hobbitinn á íslensku

Sent: Fös 16. Feb 2024 12:23
af twacker
Það voru einhver eintök af þeim að detta inn á nýju vefverslunina hjá Góða hirðinum: https://godihirdirinn.is/shop/

Re: [ÓE] Hringadróttinssaga og Hobbitinn á íslensku

Sent: Fös 16. Feb 2024 14:51
af KristinnK
Ég kíkti á þessa vefverslun af forvitni, og það eina sem núna þarna af Hringadróttinssögu á íslensku eru myndasögurnar sem gerðar voru upp úr teiknimyndinni frá 1978. Voru á síðunni sjálfu bækurnar líka fyrr í dag?

Re: [ÓE] Hringadróttinssaga og Hobbitinn á íslensku

Sent: Fös 16. Feb 2024 15:32
af twacker
Já, alveg þónokkur eintök af Fjölva útgáfunni og m.a. allar þrjár saman á 7500 kall.

Re: [ÓE] Hringadróttinssaga og Hobbitinn á íslensku

Sent: Fös 16. Feb 2024 15:36
af KristinnK
Vá, það hafa verið miklir lukkunnar pamfílar sem náðu að kaupa þessi eintök!