OnePlus 7T til sölu (Edit: SELDUR)

Hér má kaupa og selja allt svo lengi sem það er löglegur varningur.

Höfundur
jklol
Græningi
Póstar: 28
Skráði sig: Fim 13. Sep 2018 23:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

OnePlus 7T til sölu (Edit: SELDUR)

Pósturaf jklol » Fim 12. Nóv 2020 21:42

Er með til sölu OnePlus 7T keyptan hjá Símanum í febrúar 2020. Hann er því um 9 mánaða gamall, enn í ábyrgð og er í raun sem nýr. Hann hefur verið í hulstri síðan hann var keyptur og með verndarfilmu yfir skjánum. Einungis sjást stakar smárispur á filmunni sem við er að búast með venjulegri notkun. Ekkert annað er að símanum sem gæti rýrt verðgildi hans. Síminn kostaði 105 þúsund með auka hulstri þegar ég keypti hann.

Síminn er búinn 90Hz skjá, sem hefur 50% hraðari endurnýjunartíðni heldur en hefðbundnir skjáir. Hann er því silkimjúkur í flettingu niður vefsíður og feed á samfélagsmiðlum. Hann hefur stóra rafhlöðu til að nýta sér þennan eiginleika en einnig er hægt að skipta yfir í 60Hz til að ná töluvert betri rafhlöðuendingu. Einnig hefur hann mikið geymslupláss (128GB) og mikið minni (8GB) sem gerir símanum kleift að þurfa sjaldan að loka appi á meðan verið er að nota önnur öpp. Ræður vel við alla hefðbundna vinnslu, leiki og fleira. Er bæði með Face Unlock og fingrafaraskanna undir skjánum.

OnePlus 7T Glacier Blue
• 6,55" Full HD AMOLED 90Hz skjár
• Snapdragon 855+ átta kjarna örgjörvi
• 128 GB geymslupláss / 8 GB minni
• 48+16+12 MP þreföld myndavél
• 3800mAh rafhlaða

Selst með grásvörtu OnePlus Karbon hulstri, kassanum sem hann kom í, öðru glæru hulstri sem fylgdi með og 30W Warpcharge hleðslutæki sem hleður símann frá 0%-65% á 30 mínútum og upp í 80% á 10 mínútum í viðbót.

Verð: Síminn er seldur.

Myndir: -

Eiginleikar og smáatriði: https://www.gsmarena.com/oneplus_7t-9816.php
Gagnrýni: https://youtu.be/XRiUNPf-_-4
Síðast breytt af jklol á Þri 17. Nóv 2020 18:03, breytt samtals 2 sinnum.