Síða 1 af 1

Bláar einnota grímur til sölu sendast frá Kína

Sent: Þri 24. Mar 2020 02:47
af Davidoe
það þarf að kaupa alla vegna 10 þúsund stykki til að ég geti pantað einnota grímur, verðið fer eftir magni kannski 200 krónur stykkið með sendingu.
Ég er ekki fyrirtæki að selja grímur ég er bara staddur í Kína og er í sambandi með manneskju sem getur selt grímur til einstaklinga eða fyrirtækja.
Þetta eru nýjar innsiglaðar grímur sem munu sendast með flugi og er CE certificate.
Gæti tekið viku að sendast til Ísland, fer eftir tollinum og DHL/Fedex.
grimur.jpg
grimur.jpg (807.94 KiB) Skoðað 3232 sinnum

Re: Bláar einnota grímur til sölu sendast frá Kína

Sent: Þri 24. Mar 2020 09:08
af kassi
Hópkaup að selja þessar grímur á 200 kall

https://www.hopkaup.is/gargandi-vorur-a ... KLp8TyyCm4

Re: Bláar einnota grímur til sölu sendast frá Kína

Sent: Þri 24. Mar 2020 09:12
af ZiRiuS
Svona grímur verja þig ekki frá vírusnum. Þær hindra mögulega slef og drasl úr munninum þínum ef þú hnerrar eða hóstar en lítið annað.

Re: Bláar einnota grímur til sölu sendast frá Kína

Sent: Mið 25. Mar 2020 14:35
af Davidoe
Finnst flott hjá Kínverjum að nota þessar grímur núna seinustu vikurnar, mánuðina.

Mér finnst núna þegar veitingastaðir eru að opna aftur og fólk er að fara að hittast aftur í almennings görðum með grímur að grímur geta hjálpað til.

Allavegna betri fréttir hérna en á mörgum öðrum stöðum á hnettinum í dag.

Fáu tilfellin sem greinast núna eru manneskjur að koma með flugi inn í bæinn sem ég er í.

Fyrir mitt leiti þá mundi ég ekki vilja vera með þessa veiru og kannski ekki með einkenni en samt vera mögulega smitberi að hósta þessu allstaðar, veit ekki fyrir víst hvort það er þannig en þannig er mín pælingin.

Ég geri mér grein fyrir að vera ekki einn í stríði við þessa veiru og geng ég um með grímu ekki bara fyrir mig heldur þá sem eru í kringum mig, ef ég skildi hósta eða hnerra þá hef ég þá upplifun að gríman haldi mínu veseni að mestu fyrir mig og þá er ég ekki að dreifa eins mikið út úr mínum munni og ég annars hefði gert grímulaus.

Farið varlega og grímið ykkur upp!

Kannski 200 krónur stykkið ég forvitnast um nákvæma tölu ef áhugi er fyrir grímunum.

Takk fyrir linkin.

Það getur verið voða tímafrekt að bíða eftir síðum utan eldveggsins.

Re: Bláar einnota grímur til sölu sendast frá Kína

Sent: Mið 25. Mar 2020 19:30
af Stuffz
kassi skrifaði:Hópkaup að selja þessar grímur á 200 kall

https://www.hopkaup.is/gargandi-vorur-a ... KLp8TyyCm4


ok keypti svona..

2x50..

já svo sé ég að þetta kemur eftir 87 daga, svo mar er búinn að gulltryggja sig fyrir sumarfríið ;D