Síða 1 af 1

Samsung Galaxy Buds (white) 15.000kr

Sent: Mán 17. Feb 2020 13:14
af kizi86
er með Glæný ónotuð Samsung Galaxy Buds sem eru hvít, ennþá í innsigluðum kassa.


kosta hjá elko 24.990kr set á þau 15þ (eru í ábyrgð hjá elko)

hér kemur smá texti um þau af elko.is: https://elko.is/samsung-galaxy-buds-bt-hvit

Samsung Galaxy Buds eru algjörlega þráðlaus In-ear heyrnartól sem skila hreint út sagt ótrúlegum hljómgæðum.

Heyrnartólin eru fislétt, passa vel í eyru og eru einstaklega auðveld í notkun. Þau eru með IPX 2 vottun.

Auðveld uppsetning: Opnar boxið og parar þau við snjalltækið þitt og þau eru tilbúin til notkunar. Svo einfalt er það.

Hljóðið í Galaxy Buds á sér enga hliðstæðu hjá þráðlausum heyrnartólum. Í samvinnu við AKG skila heyrnartólin frábæru Hi-Res hljóði.

Með Galaxy Buds fylgir hleðslubox sem veitir auka 7 klst í hleðslu, er fyrirferðalítið og einfalt í notkun. Öruggur staður til að geyma heyrnartólin þín og þægilegt að þau hlaði sig samstundis.

Í Galaxy Buds eru næstu-kynslóðar dual hljóðnemar sem útiloka umhverfishljóð alveg. Engin þörf á að tala hátt til að það heyrist örugglega í þér og aðilinn á hinni línunni heyrir líka skýrt í þér jafnvel þó þú sért að tala við hann í miðju Eurovision partýi.

Galaxy Buds eru hannaðir sérstaklega til að passa vel í eyra og haldast þar, svo þú getur farið áhyggjulaus út að skokka með þau.

PowerShare er nýjung sem Galaxy Buds og flest önnur ný tæki frá Samsung hafa núna, en það gerir þér kleift að hlaða tækið þráðlaust af öðru tæki með PowerShare ef þú klárar hleðsluna.

Samsung: "Thanks to IPX22 splash-resistant technology, your Galaxy Buds can handle splashes, a little sweat and even the accidental spill"

Re: Samsung Galaxy Buds (white)

Sent: Fim 20. Feb 2020 16:04
af kizi86
upp! algerlega ónotuð, og enn í innsigluðum kassa. fást á 15.000kr

Re: Samsung Galaxy Buds (white) 15.000kr

Sent: Mið 26. Feb 2020 21:09
af kizi86
upp, 15.000kr er gjöf en ekki gjald