Síða 1 af 1

Fake Tölvupóstur

Sent: Fös 22. Feb 2019 22:44
af Dúlli
Hvernig nálgast þetta lið þessar upplýsingar ?

Hvor megin er öryggið að klikka :-k

Re: Fake Tölvupóstur

Sent: Lau 23. Feb 2019 02:25
af ZiRiuS
Miðavið að emailið er murbudin7@gmail.com giska ég að þetta sé bara phising póstur þar sem póstlisti Múrbúðarinnar var kóperaður. Ekkert sem bendir til að Múrbúðin sé compromised, en það mætti láta þá vita að einhver sé að nota nafnið þeirra í phising.

Re: Fake Tölvupóstur

Sent: Lau 23. Feb 2019 08:39
af Dúlli
En hvernig er það gert, þarf einstaklingur ekki að komast inná gagnagrunn þess fyrirtækis ?

Spyr í raun upp á forvitni.

Re: Fake Tölvupóstur

Sent: Lau 23. Feb 2019 13:08
af ZiRiuS
Það er hægt að kópera hvaða tölvupóst sem er, þetta er bara basic HTML.

Re: Fake Tölvupóstur

Sent: Lau 23. Feb 2019 22:11
af Dúlli
ZiRiuS skrifaði:Það er hægt að kópera hvaða tölvupóst sem er, þetta er bara basic HTML.


Já, pælinginn er með hvernig þeir komast yfir netfangið / netföngin

Re: Fake Tölvupóstur

Sent: Lau 23. Feb 2019 22:28
af ZiRiuS
murbudin7@gmail.com er ekki official email Múrbúðarinnar?

Re: Fake Tölvupóstur

Sent: Lau 23. Feb 2019 22:30
af Dúlli
ZiRiuS skrifaði:murbudin7@gmail.com er ekki official email Múrbúðarinnar?


Nop, enn þessi "murbudin7@gmail.com" þarf einhver vegin að nálgast netfangið, valla er keyrt random samsetningu af orðum, tölum og þess háttar og smellt senda á alla, hlíkur að vera Weak Link :-k

Re: Fake Tölvupóstur

Sent: Lau 23. Feb 2019 22:43
af ZiRiuS
Meinar þú þitt email? Getur bókað það að mailið þitt hefur lent í einhverskonar leka (vodafone lekinn t.d.). Minnsta málið að redda sér emailum til að spamma.

Re: Fake Tölvupóstur

Sent: Lau 23. Feb 2019 22:43
af ZiRiuS
Eða ert þú á póstlista Múrbúðarinnar, ertu að meina það?

Re: Fake Tölvupóstur

Sent: Lau 23. Feb 2019 23:27
af Dúlli
Akkurat, mitt netfang.

Það er nefnilega það nýlegt, það skrítna við þetta er að mitt persónulega netfang fær aldrei svona og það er á mörgum póstlistum, enn netfangið fyrir reksturinn sem er nýlegt er búin að fá slatta af Scam og svipuðum póstum þrátt fyrir að netfangið er lítið skráð á póstlista.

Re: Fake Tölvupóstur

Sent: Sun 24. Feb 2019 07:07
af blitz
Þeir virðast hafa komist yfir póstlista Múrbúðarinnar, býsna margir í kringum mig sem fengu þennan póst.

Re: Fake Tölvupóstur

Sent: Sun 24. Feb 2019 12:09
af Hizzman
ótrúlega oft gerist það að fjölpóstar eru sendir með alla viðtakendur í To: