Síða 1 af 1

dash camera

Sent: Fös 05. Maí 2017 22:05
af scarface
hvað er mælt með
myndavél í bíl
Ekki eitthvað kínadót

Re: dash camera

Sent: Fös 05. Maí 2017 22:23
af dori
Ég hef líka verið að pæla í þessu og sýndist þessi vera nokkuð góð og á fínu verði.

https://www.sportmyndavelar.is/products ... el-dashcam

Hef samt ekki ennþá látið vaða en mér sýndist hún vera nokkuð góð m.v. það sem ég las á netinu. Vonandi koma einhverjir hérna með góðar hugmyndir.

Re: dash camera

Sent: Fös 05. Maí 2017 22:29
af scarface
var að skoða cobra 895 dual og philips adr900

Re: dash camera

Sent: Fös 05. Maí 2017 22:30
af scarface
get bara engan veginn ákveðið

Re: dash camera

Sent: Fös 05. Maí 2017 22:32
af scarface
þessi sem sportmyndavélar.is er allt of dýr , þessi sama myndavél kostar bara helminginn ef þú pantar sjálfur

Re: dash camera

Sent: Lau 06. Maí 2017 00:08
af Tiger
scarface skrifaði:þessi sem sportmyndavélar.is er allt of dýr , þessi sama myndavél kostar bara helminginn ef þú pantar sjálfur

Hvernig færðu það út? Street Guardian hjá þeim kostar tæpan 32þús kall en að panta hana frá Amazon kostar $365 sem er tæpur 40þús.

Re: dash camera

Sent: Lau 06. Maí 2017 00:33
af Glazier
Er búinn að vera að googla þetta fram og til baka, ég geri talsverðar kröfur en er samt að leita að eins ódýru og hægt er...

Augljóslega vil ég hafa góð gæði en ofan á það vil ég hafa vélina með innbyggðu GPS sem sýnir hraðann á mér, einnig vil ég hafa hana eins netta og hægt er og alls engan skjá sem gefur frá sér birtu.

Bestu vélarnar sem ég hef fundið á skikkanlegu verði eftir mikið gúgl eru af aliexpress og gæðin í þeim virðast alveg jafnast á við $350 vélar, eða svona allt að því og menn virðast nokkuð sáttir með þær... hef þó ekki látið verða að því að panta enn.

Þetta eru þær sem ég hef mest skoðað:

https://www.aliexpress.com/item/MEHOME- ... 39140f845d

https://www.aliexpress.com/item/Free-Sh ... b7379a2fd3

https://www.aliexpress.com/item/Mini-08 ... d4bcffe8ea

Re: dash camera

Sent: Lau 06. Maí 2017 04:54
af scarface
Street Guardian er of dýr , upptakan sjálf er skýr og myndin en það er ekki hægt að nota hana þegar á reynir því það er ekki hægt að lesa bílnúmer af bílum nema að vera alveg upp við næsta bíl .

Re: dash camera

Sent: Lau 06. Maí 2017 05:53
af dori
scarface skrifaði:Street Guardian er of dýr , upptakan sjálf er skýr og myndin en það er ekki hægt að nota hana þegar á reynir því það er ekki hægt að lesa bílnúmer af bílum nema að vera alveg upp við næsta bíl .

Þetta er náttúrulega erfitt. Þú vilt hafa einhver myndgæði, bæði í myrkri og birtu, til að geta séð hvað er að gerast í kringum þig og þú vilt sjá bílnúmer þegar það skiptir máli. Eru einhverjar myndavélar sem leysa þetta vel og hverjar væru þær?

Glazier skrifaði:Bestu vélarnar sem ég hef fundið á skikkanlegu verði eftir mikið gúgl eru af aliexpress og gæðin í þeim virðast alveg jafnast á við $350 vélar, eða svona allt að því og menn virðast nokkuð sáttir með þær... hef þó ekki látið verða að því að panta enn.

Hefurðu sem sagt lesið góða dóma um þessar? Annars er eitt sem ég skil ekki. Þessir skjáir sem er verið að troða til dæmis á tvær af þeim sem þú telur upp. Af hverju í ósköpunum? 1,5" skjár er ekki að fara að hjálpa þér í neitt annað en kannski við uppsetningu að staðfesta að myndavélin snúi rétt.

Re: dash camera

Sent: Sun 07. Maí 2017 16:55
af Glazier
dori skrifaði:

Já hef lesið svoldið um þessar og skoðað sjálfur myndbönd á youtube (þau segja eiginlega allt) held að litlu skjáirnir á 2 af þessum vélum sem ég linka á séu ekki til að sýna mynd, aðeins til að breyta stillingum á vélinni sjálfri, annars í daglegri notkun er slökkt á þeim.

Re: dash camera

Sent: Sun 07. Maí 2017 17:53
af lukkuláki
+

Re: dash camera

Sent: Lau 27. Maí 2017 18:48
af frappsi
Costco er að selja Nextbase 412GW m/8GB korti og tösku á 19.999. 1440p@30fps og 1080p@60fps. Þær eru að fá mjög góða dóma í Bretlandi. AliExpress vélarnar sem er bent á hér fyrir ofan líta líka vel út. Hvernig ætli þessi sé í samanburði við þær? Einhver sem hefur prófað að panta?

https://www.nextbase.co.uk/dash-cams/412gw-dash-cam/
https://www.youtube.com/watch?v=ig3f5sO3-Ls
http://www.pcadvisor.co.uk/review/dash-cams/nextbase-412gw-review-3648729/
http://www.drivn.co.uk/nextbase-412gw-dash-cam-review/
https://www.amazon.co.uk/dp/B01N3SP41O

Re: dash camera

Sent: Mán 17. Júl 2017 23:01
af Glazier
Jæja.. Pantaði mér þessa vél á ali, kemur vel út so far !

Verðið á henni er breytilegt, einn daginn er "afsláttur" og hinn daginn ekki... en ég borgaði fyrir hana 69,99 dollara með shipping.

https://www.aliexpress.com/item/MEHOME- ... 0.0.BmpKAI

Er ekki búinn að taka rúnt enþá en hér að neðan má sjá ljósmynd úr vélinni, sýnist gæðin þó ekki skila sér alveg nógu vel en í tölvunni hjá mér get ég auðveldlega lesið númerin á litla skiltinu á ljósastaurnum.
Vélina er ég með tengda þannig að hún tekur upp stöðugt allan sólahringinn á 1080p og með 64gb korti á hún að geyma ef ég man rétt um 8 klukkustundir aftur í tímann.
Hún er með GPS og svo er hægt að tengjast henni með síma í gegnum wifi til að breyta stillingum, niðurhala efni af henni eða bara til að stilla hana af svo hún sé bein.

Hérna ættuð þið að geta skoðað myndina í fullri upplausn og zoomað inn til að sjá gæðin eins og þau eru: http://img.pixady.com/2017/07/117805_g2 ... 181503.jpg

Mynd

Ég beini henni viljandi svona mikið niður til þess að birtustig á himninum hafi ekki áhrif á það sem skiptir máli á myndinni, ef vélin væri helmingur jörð og helmingur himinn er hætta á þegar það er bjart úti verði jörðin of dökk og sjáist ekki það sem þarf að sjást.
Einnig geri ég það til þess að hafa radarvarann í mynd.

Re: dash camera

Sent: Þri 18. Júl 2017 09:07
af Pandemic
Glazier skrifaði:Jæja.. Pantaði mér þessa vél á ali, kemur vel út so far !

Verðið á henni er breytilegt, einn daginn er "afsláttur" og hinn daginn ekki... en ég borgaði fyrir hana 69,99 dollara með shipping.

https://www.aliexpress.com/item/MEHOME- ... 0.0.BmpKAI

Er ekki búinn að taka rúnt enþá en hér að neðan má sjá ljósmynd úr vélinni, sýnist gæðin þó ekki skila sér alveg nógu vel en í tölvunni hjá mér get ég auðveldlega lesið númerin á litla skiltinu á ljósastaurnum.
Vélina er ég með tengda þannig að hún tekur upp stöðugt allan sólahringinn á 1080p og með 64gb korti á hún að geyma ef ég man rétt um 8 klukkustundir aftur í tímann.
Hún er með GPS og svo er hægt að tengjast henni með síma í gegnum wifi til að breyta stillingum, niðurhala efni af henni eða bara til að stilla hana af svo hún sé bein.

Ég beini henni viljandi svona mikið niður til þess að birtustig á himninum hafi ekki áhrif á það sem skiptir máli á myndinni, ef vélin væri helmingur jörð og helmingur himinn er hætta á þegar það er bjart úti verði jörðin of dökk og sjáist ekki það sem þarf að sjást.
Einnig geri ég það til þess að hafa radarvarann í mynd.

Er hægt að fá night time mynd eða jafnvel video til þess að sjá hvernig þetta er að virka?

Re: dash camera

Sent: Þri 18. Júl 2017 09:38
af Sydney
Massdrop eru með eina flotta einmitt núna sem ég pantaði.

https://www.massdrop.com/buy/blacksys-c ... ash-camera

Droppið endar í dag.

Re: dash camera

Sent: Þri 18. Júl 2017 14:37
af jardel
Nú er ég að vandræðast ég er með 24w kerfi i minum bíl. Ég varð fyrir því óláni að brenna svona myndavél.
Hvað get ég gert? Ég verð að geta verið með myndavélina í hleðslu.

Re: dash camera

Sent: Þri 18. Júl 2017 14:53
af Moldvarpan
Flestar sem eru seldar á íslandi eru fáranlega dýrar.

Og ég vill hafa þær mjög snug upp að rúðunni.

Þessi er á 100 dollara, mæli með henni.
https://www.amazon.com/V1-Dashboard-Recorder-G-Sensor-Recording/dp/B00X528FNE/ref=cm_cr_arp_d_product_top?ie=UTF8&tag=bp_links-20&ascsubtag=bestproducts.gallery.181

Re: dash camera

Sent: Þri 18. Júl 2017 15:12
af jardel
Eru þessar vélar ekki nógu góðar?
kosta lítið sem ekkert?
https://www.aliexpress.com/item/Origina ... 5ce2730b83

Re: dash camera

Sent: Þri 18. Júl 2017 15:31
af jonsig
Ég var með kínverska, sem kostaði 3k og væri hún líklega nóg í tryggingamáli ef það er sæmileg birta.

En ég fékk mér þessa í costoco, sem er mun skýrari. En skal ekki hengja mig uppá performance´ið í myrkri. En hún hefur allavegana gps og gyro sensor sem hjálpar tryggingafélaginu að meta ca. hraðann sem skellurinn verður.

Re: dash camera

Sent: Þri 18. Júl 2017 15:40
af Tbot
jardel skrifaði:Nú er ég að vandræðast ég er með 24w kerfi i minum bíl. Ég varð fyrir því óláni að brenna svona myndavél.
Hvað get ég gert? Ég verð að geta verið með myndavélina í hleðslu.

Geri ráð fyrir að þú sért að tala um 24V DC

Þá er ein möguleiki að nota einhvað þessu líkt
http://mbr.is/spennubreytar-og-jofnun/1 ... &results=4