[TS] Samsung 4K HDR Blu-Ray Spilari + 3 myndir

Hér má kaupa og selja allt svo lengi sem það er löglegur varningur.

Höfundur
snosig
Græningi
Póstar: 39
Skráði sig: Mið 28. Júl 2010 10:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

[TS] Samsung 4K HDR Blu-Ray Spilari + 3 myndir

Pósturaf snosig » Fös 05. Maí 2017 01:55

Er með til sölu glænýjan Samsung UBDK8500, 4K Ultra-HD Smart Blu-ray spilara sem styður HDR (High Dynamic Range) sem skilar einhverjum bestu myndgæðum sem í boði eru. Með fylgja þrjár myndir: The Revenant, The Martian og Independence Day, allar í 4K.

Spilarinn er enn í óopnuðum kassanum. Hann er með Smart virkni með streymiþjónustum á borð við Netflix, Youtube, Amazon Video, Hulu og fleira.

Boginn Samsung 4K UHD Blu-Ray spilari með UDH 4K stuðning. Flott í stofuna með innbyggðu WiFi.

4K Ultra HD: Spilar 4K Ultra HD Blu-Ray Diska, þessi spilari skilar fjórum sinnum meiri skerpu en hefðbundnir Blu-Ray spilarar.

HDR (High Dynamic Range): HDR tækni tryggir að dökkir litir verða dekkri og ljósir litir ljósari. Þú færð náttúrulegri liti með fleirri litum og litbrigðum ásamt skarpari skilum. HDR tækni færir upplifun úr sjónvarpinu nær raunveruleikanum.

10-bit lita dýpt: Virkar vel með 10-bit Quantum dot skjáum. Skjátegund sem gefur náttúrulega mynd með góðri skerpu og djúpum litum, finnast í SUHD Samsung tækjunum.

UHD uppskölun: Uppskölun í 4K / UHD.

Multiroom Link: Multiroom Link gerir þér kleyft að tengja Multiroom hátalara frá Samsung í gegnum WiFi, þú getur gert spilaran að heimabíó.

Sjá nánar hér: https://bland.is/classified/entry.aspx?classifiedId=3537567

Mynd

Áhugasamir hafi samband í skilaboðum