Haha fyndið, ég var að skoða ebay föt á ebay fyrir svona 1 ári og rakst á flest öll þessi föt sem hann er að selja þarna, fannst þau flott þá,
en síðan var þetta svo rosalega ódýrt, þá fór ég að skoða þetta betur, nátturulega alveg frekar mikil "drasl" föt..
Síðan er hann að setja svona hátt verð á þetta þarna, til að reyna láta eins og þetta sé flott merkjavara..
Minnir mig smá á sögu sem ég heyrði, það var svona 2007 bílasala, voru með eitthvern bíl sem var mjög góður jeppi, hagstæður og jafn góður og hinir jepparnir
nema hann kostaði eitthverjar segjum 5 miljónir sem var ódýrt og það seldist ekki neitt, síðan var sett verðið í 8-10 millur, þá byrjaði hann að seljast
Ef hann væri að selja þessa jakka á skynsamleguverði, 5þús kall eða svo, þá væri enginn að kaupa þetta, hann lætur þetta lúkka eins og eðal.

/ Síðan gæti vel verið að hann sé með eitthver góð föt líka veit ekkert um það, er að tala um bara þessar peysur, frakka, blazers og það
