Síða 1 af 1

Line 6 sett, Magnari og gítar.

Sent: Þri 10. Jan 2012 20:02
af kjarribesti
Er með line 6 spider II 212 150watta magnara til sölu og Line 6 Variax 300 modeling/venjulegann líka gítar.

Um Variaxinn:

Þú getur tengt hann við tölvu og valið um mismunandi ''virtual'' pikkup frá mörgum frægum gítar tegundum. Hann hljómar einstaklega vel á t.d Aquistic stillingunni þá hermir hann eftir kassa gítar.
Getur einnig haft hann sem 12 strengja gítar, banjó, Sítar o.fl.

En auðvitað er hann nothæfur sem venjulegur gítar líka, með hvaða magnara sem er svo lengi sem maður er með rafmagnstengið tengt. Það er til þess að allir effectar virki.

Hef fína reynslu af honum og hef spilað á einum tónleikum með honum.

Ég læt samt fylgja með honum stykkið til þess að tengja hann við tölvu, það var keypt sér á 15.000kr.

Gítarinn ætti að henta nokkurnveginn öllum, nýliðum og grúskurum. En hinsvegar getur verið erfitt að læra á ''modelin'' til þess að byrja með en maður lærir það svo með því sem maður notar hann.

Ég set 45.000kr á pakkann (Gítarinn og USB breytistykkið)

Mynd
Mynd



Um magnarann:

Magnarinn hefur helling af effectum og stillingum og er með tvær 12'' 75w keilur.
Hann gefur frá sér mikinn kraft og fínasta metal/clean hljóm.

Góður sem byrjanda magnara afþví hann er einfaldur, en einnig fínn fyrir lengra komna þar sem hann dugir veel á tónleikum og hljómsveitaræfingum :)

Set á hann 45.000kr og lækka það ekki til að byrja með þar sem ég er ekkert að flýta mér með söluna.

Áhugasamir hafi samband í síma 8648470 eða svara hér fyrir neðan.

Set pakkann á 85.000kr (10k afsláttur frá því að kaupa sér)

Mynd
Mynd

Er í mikilli peninga þörf svo endilega engin skítakomment á þessa verðlagningu, enda er hún ekki röng að mínu mati.

-Kjartan