Síða 1 af 1

Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Mið 30. Júl 2014 02:25
af hkr
Veit einhver hvort það sé hægt að fá hæðarstillanlegt skrifborð/skrifborðsfætur sem kosta ekki hálfan handlegg hér á klakanum?

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Mið 30. Júl 2014 12:20
af kubbur
eina sem mig dettur í hug er að smíða sjálfur, ætti ekki að vera það flókin smíði

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Mið 30. Júl 2014 13:21
af einarhr
hkr skrifaði:Veit einhver hvort það sé hægt að fá hæðarstillanlegt skrifborð/skrifborðsfætur sem kosta ekki hálfan handlegg hér á klakanum?


Leytið og þér munið finna !

Eftir 1 mín leyt á Ikea.is þá fann ég 3 mismunandi fætur fyrir borð sem eru stillanlegir

http://www.ikea.is/products/34366
http://www.ikea.is/products/34324
http://www.ikea.is/products/34410

Verði þér að góðu

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Mið 30. Júl 2014 13:53
af hkr
einarhr skrifaði:
hkr skrifaði:Veit einhver hvort það sé hægt að fá hæðarstillanlegt skrifborð/skrifborðsfætur sem kosta ekki hálfan handlegg hér á klakanum?


Leytið og þér munið finna !

Eftir 1 mín leyt á Ikea.is þá fann ég 3 mismunandi fætur fyrir borð sem eru stillanlegir

http://www.ikea.is/products/34366
http://www.ikea.is/products/34324
http://www.ikea.is/products/34410

Verði þér að góðu


Þakka þér fyrir þetta en ég hefði eflaust mátt útskýra betur hvað ég er að leita eftir.

Er að leita eftir skrifborðsfótum sem hægt er að hækka og lækka þannig að hægt er að vinna við borðið standandi og sitjandi, sum eru rafmagns en önnur ekki.
T.d. http://www.ajvorulistinn.is/skrifstofuh ... 7-62831.wf og http://ag.nwc.is/is/efni/flex_t_rafbor%C3%B0
En oftast kosta þessar fætur/borð vel yfir 100 þús. kr., ákvað því að spyrja hér hvort einhver vissi um þetta á viðráðanlegu verði.

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Mið 30. Júl 2014 14:04
af einarhr
:happy

Spurnig að tala við td fyrirtæki eins og Á Guðmundsson það fyrirtæki smíðar skrifstofuhúsgögn.

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Mið 30. Júl 2014 21:16
af kusi
Afhverju að stöðva við hæðarstillanlegt, mig langar að vita hvar maður fær svona "gönguskrifborð"

https://www.google.is/search?q=walking+desk&tbm=isch

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Sun 17. Ágú 2014 09:37
af jojoharalds
Smiða þetta bara,getur eflaust spara þér haug af peningum ef þú fér rétt að þessu,og þú getur gert þetta nákvæmlega eins og þú villt.
mig minnir að þú gétur keypt fætur sem eru hækkanlegar (rafdrífin)hjá Ikea.annars er þetta pottþétt á Ebay.
;)

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Mán 18. Ágú 2014 18:47
af hundur
Ég á svona skrifborð úr Ikea, keypti það notað á Bland. Minnir að ég hafi séð svona borð í seinustu Ikea ferð fyrir nokkrum vikum. Þetta er fínasta skrifborð, rafbúnaðurinn eitthvað hægur þó - en virkar.

Það sem ég hef tekið eftir er hins vegar að maður verði þreyttur í fótunum við að standa við svona borð. Anti-fatique mat er talið leysa það vandamál, veit hins vegar ekki hvar maður finnur slíkar mottur hér á landi.

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Lau 20. Sep 2014 20:34
af sitta
Ég keypti svona borð: http://skrifstofa.is/forsida/easylift-idt-rafmagnsbord

Mjög sáttur, það mætti samt vera timer sem lyftir og lækkar sjálfur eftir ákveðin tíma þar sem ég á það til að gleyma því að ég geti hækkað.

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Lau 20. Sep 2014 23:25
af Gunnar
Til svona rammi í ikea samt allveg á 90 þúsund
http://www.ikea.is/products/36403
held ég hafi séð svona áður og held að hann sé með rafmagnsmótor til að hækka/lækka.

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Sun 21. Sep 2014 00:24
af dori
sitta skrifaði:Ég keypti svona borð: http://skrifstofa.is/forsida/easylift-idt-rafmagnsbord

Mjög sáttur, það mætti samt vera timer sem lyftir og lækkar sjálfur eftir ákveðin tíma þar sem ég á það til að gleyma því að ég geti hækkað.

Nota reminder í símanum frekar. Það væri stórfurðulegur og frekar heimskulegur fítus að það myndi bara hækka og lækka sjálfkrafa.

Gunnar skrifaði:Til svona rammi í ikea samt allveg á 90 þúsund
http://www.ikea.is/products/36403
held ég hafi séð svona áður og held að hann sé með rafmagnsmótor til að hækka/lækka.

Þeir eru samt bara með fyrir hornskrifborð. Versta concept í heimi síðan túpuskjáirnir fóru.

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Sun 21. Sep 2014 01:33
af BugsyB
kusi skrifaði:Afhverju að stöðva við hæðarstillanlegt, mig langar að vita hvar maður fær svona "gönguskrifborð"

https://www.google.is/search?q=walking+desk&tbm=isch



Ættu að hafa svona í worldClass

Re: Hæðarstillanlegt skrifborð

Sent: Mán 22. Sep 2014 15:53
af Jón Ragnar
Mynd


langar bilað í e-ð svona.