Síða 1 af 1

Nýtt herbergi - Allt tekið í gegn!

Sent: Sun 13. Maí 2012 23:40
af chaplin
Sælir piltar

Yfir sumarið mun ég leigja íbúð með félaga mínum og langar mig að gera e-h rosalega skemmtilegt við þetta herbergi sem ég verð með þar sem ég mun líklegast eyða örlítið of miklum tíma þar.

Í herberginu verður rúm, skrifborð, sjóvarp og 2-3 stólar (sem verða alltaf geymdir inn í geymslunni nema þegar maður fær heimsókn). Það sem ég er að biðja ykkur um, er að koma með hugmyndir hvar væri best að hafa alla hlutina svo ykkur er velkomið að go nuts á hugmyndum.

Svona lítur herbergið út.

.dwg fæll fyrir Autocad
* Eldhúsið, baðherbergi osfrv. er aðskilið og ekki á teikningunni.

Stærðir á rýmum:
- Herbergið - rúmlega 13m²
- Geymslan - tæðlega 4,5m²
- Forstofan - rúmlega 3m²

Hugmyndir:
- Fyrsta hugmyndin. Stórt skrifborð (1.6M X 0.8M) , sjónvarpið fest upp á vegg og hægt að snúa að rúminu og beint út, borð og 3 stólar sem hægt verður að henda inn í geymsluna.

Besta hugmyndin verður verðlaunum með einum ísköldum og tveimur high fives.

Re: Nýtt herbergi - Allt tekið í gegn!

Sent: Sun 13. Maí 2012 23:42
af Klaufi
Hvað áttu af rafmagnsdósum sem liggja úr herberginu inn í geymslu?

Það sem ég er með í huga er:
- Allur vélbúnaður inni í geymslu.
- Jaðarbúnaður í gegnum vegginn.
- Skrifborðið upp við vegginn sem liggur að geymslunni.
- Jafnvel hornskrifborð.

Ætlarðu að festa sjónvarpið á vegg?

Re: Nýtt herbergi - Allt tekið í gegn!

Sent: Sun 13. Maí 2012 23:49
af AncientGod
Klaufi skrifaði:Hvað áttu af rafmagnsdósum sem liggja úr herberginu inn í geymslu?

Það sem ég er með í huga er:
- Allur vélbúnaður inni í geymslu.
- Jaðarbúnaður í gegnum vegginn.
- Skrifborðið upp við vegginn sem liggur að geymslunni.
- Jafnvel hornskrifborð.

Ætlarðu að festa sjónvarpið á vegg?
Ef maður er að leigja þá held ég að maður meigi ekki gera göt gegnum veggi nema hann fái leyfi til þess.

Re: Nýtt herbergi - Allt tekið í gegn!

Sent: Sun 13. Maí 2012 23:58
af chaplin
@ Klaufi: Ég því miður veit ekkert hvar rafmagnið er, og af því sem ég best veit er engin hreyfing í geymslunni né loftgöt svo hugmyndin um að hafa server þar inni, sem ég ætlaði fyrst að gera er out. :/

Einnig veggurinn við geymsluna, þar sem þú sérð kassana standa út úr veggnum er fataskápurinn, 2 metrar að lengd.

Re: Nýtt herbergi - Allt tekið í gegn!

Sent: Mán 14. Maí 2012 00:30
af DJOli
Ef þú ert t.d. að pæla í serverlausn þá geturðu verið með serverinn inni í geymslunni, og svo getið þið notað wifi á fartölvurnar.
Svo er hægt að kaupa rafmagnsklær fyrir Cat5 tengi.

Re: Nýtt herbergi - Allt tekið í gegn!

Sent: Mán 14. Maí 2012 00:41
af worghal
DJOli skrifaði:Ef þú ert t.d. að pæla í serverlausn þá geturðu verið með serverinn inni í geymslunni, og svo getið þið notað wifi á fartölvurnar.
Svo er hægt að kaupa rafmagnsklær fyrir Cat5 tengi.

hann var að segja að það er enginn leið fyrir loft að komast inn/út þannig að server í geymslunni er ekki í myndinni.

Re: Nýtt herbergi - Allt tekið í gegn!

Sent: Mán 14. Maí 2012 00:55
af chaplin
Það er þráðlaust samband í herberginu, server-pælingar eru ekki í myndinni. Er e-h með hugmyndir af sniðugum skrifborðum? Eru ekki Ikea Galant borðinn toppurinn?