Síða 1 af 1

einhver með reynslu af nýju Radeon kortunum?

Sent: Mán 23. Jún 2025 23:38
af grimurkolbeins
Er að spá í nýju skjákorti og er að spila á 1440p skjá mæliði með nýju amd kortunum eða á maður að fara í 5070?

Re: einhver með reynslu af nýju Radeon kortunum?

Sent: Þri 24. Jún 2025 08:38
af flottur
Ég fór úr 3060 12gb í rtx 5070 - 3090 og endaði í 5080. Er með 1440p skjá

Prufaði RX 7900 xtx var ekki að fíla viðmótið né að þurfa læra eitthvað nýtt.

En þetta er bara mitt álit, ég býst við að aðrir hafa einmitt öfuga sögu að segja.

Re: einhver með reynslu af nýju Radeon kortunum?

Sent: Þri 24. Jún 2025 10:26
af T-bone
Ég er með 7900XT kort í tölvunni minni núna.

Forritið fyrir AMD er ekki alveg jafn notendavænt og Geforce Experience en ég er almennt sáttur við skjákortið.
Lenti í því á tímabili að vissir leikir voru að krassa skjákortinu en það að slökkva á Multi Plane Overlay lagaði það. Samkvæmt netinu eru menn samt að lenda í þessu með Nvidia kort líka svo þetta virðist ekki hafa verið vegna þess að ég er með AMD kort.

Ég ákvað að prófa AMD allavega vegna þess að allavega þegar ég verslaði þetta fékk ég miklu meira fyrir peninginn í AMD og Ray Tracing skipti mig ekki máli.

Re: einhver með reynslu af nýju Radeon kortunum?

Sent: Þri 24. Jún 2025 13:43
af Moldvarpan
nvidia allan daginn, you get what you pay for.

Re: einhver með reynslu af nýju Radeon kortunum?

Sent: Þri 24. Jún 2025 13:58
af TheAdder
Ég er búinn að vera mjög sáttur við mitt 7900XTX í 1440p.
Mér sýnist á Tom's Hardware listanum, að 9070 sé mjög fínn kostur, aðeins á eftir 5070Ti almennri vinnslu, aðeins á undan í RT, og á slatta betra verði.
Mynd
Mynd

Re: einhver með reynslu af nýju Radeon kortunum?

Sent: Þri 24. Jún 2025 18:40
af audiophile
6800XT hefur reynst mér fínt í 1440p í nokkur ár. Trúi ekki öðru en að 9070XT sé flott í 1440p spilun.

Re: einhver með reynslu af nýju Radeon kortunum?

Sent: Þri 24. Jún 2025 21:43
af zurien
Er með 9070XT, spila í 1440p UW.
For úr 3080 10gig yfir í þetta kort, sé ekki eftir því.

Re: einhver með reynslu af nýju Radeon kortunum?

Sent: Mið 25. Jún 2025 02:54
af Sinnumtveir
Moldvarpan skrifaði:nvidia allan daginn, you get what you pay for.


Eh nei. Flest bendir til að AMD 9070 og 9070xt séu betri kaup en Nvidia 5070. Já, allan daginn, alla vikuna, ... , einhver ár fram í tímann.

Re: einhver með reynslu af nýju Radeon kortunum?

Sent: Fim 26. Jún 2025 13:57
af Ivar_F
Ég er með RX 9070 XT Taichi 16GB OC frá ASRock og er virkilega sáttur með það... mæli hiklaust með því.