Síða 1 af 1

180w 20v 9a spennugjafi á íslandi?

Sent: Fös 13. Jún 2025 09:49
af Snaevar
Hvar gæti ég fundið 180w 20v 9a spennugjafa á Íslandi? Svona svipaðan eins og á myndinni?

20v9a.jpg
20v9a.jpg (98.92 KiB) Skoðað 302 sinnum

Re: 180w 20v 9a spennugjafi á íslandi?

Sent: Fös 13. Jún 2025 09:59
af olihar
Þarf að vera eitthvað ákveðið skott á honum? Er 180W eða stærra krafa?

Re: 180w 20v 9a spennugjafi á íslandi?

Sent: Fös 13. Jún 2025 10:05
af Snaevar
Ég er semsagt að leita að power supply fyrir Caldigit TS3+ tengikví.

Notar DC barrel plug.

Mér skilst að þessi dokka þarf 180w já.

Re: 180w 20v 9a spennugjafi á íslandi?

Sent: Fös 13. Jún 2025 10:35
af russi
Snaevar skrifaði:Ég er semsagt að leita að power supply fyrir Caldigit TS3+ tengikví.

Notar DC barrel plug.

Mér skilst að þessi dokka þarf 180w já.


Er þetta fyrir fartölvudokku?
Oftast eru notaðir 18-20V DC spennugjafar við þær. Gætir því athugað málið hjá stóru tölvuumboðunum, eins og Ofar, OK og slíkt. 19VDC gæti dugað þér, þarf þá lesa þér til um spekkana á tölvunni sé þetta fyrir fartölvu.

Annars er líklegt að Íhlutir gætu hjálpað þér og aldrei vanmeta Computer.is sem eru duglegir að eiga allskonar

Re: 180w 20v 9a spennugjafi á íslandi?

Sent: Fös 13. Jún 2025 10:48
af Snaevar
Takk :)

Var að hringja í Computer og Íhluti, þeir áttu það hvorugir til.

Spurning hvort maður þarf að panta þetta erlendis frá....

Re: 180w 20v 9a spennugjafi á íslandi?

Sent: Fös 13. Jún 2025 15:56
af olihar
Snaevar skrifaði:Ég er semsagt að leita að power supply fyrir Caldigit TS3+ tengikví.

Notar DC barrel plug.

Mér skilst að þessi dokka þarf 180w já.



Bilaði power supply sem fylgdi með?

Búinn að heyra í framleiðanda?

https://us.caldigit.com/products/180w-psu-for-ts3-plus

Re: 180w 20v 9a spennugjafi á íslandi?

Sent: Sun 15. Jún 2025 02:13
af Heidar222
Pæling, 24Vdc er mikið notað í iðnaði og hægt að lækka marga spennugjafana í ca 22.5V, ætli það sé í lagi fyrir græjuna? Lítið mál að fá 10A/240W græjur sem keyra 22,5V og svo mixa barrell pluggið við. En þetta yrði pínu skitamix.