Síða 1 af 1
Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?
Sent: Fim 12. Jún 2025 10:58
af flottur
Sælir/sælar
Titil segir allt sem segja þarf, vantar rafhlöðu í lenovo thinkpad x280.
Spurningin er : eru menn að panta frá umboði eða eru til síður sem græja þetta fyrir mann?
Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?
Sent: Fim 12. Jún 2025 12:07
af GuðjónR
Ég myndi alltaf fara með tölvuna í umboðið, tæki ekki sénsinn á 3d party batteríi/viðgerð. Og það er held ég varla hægt lengur að panta rafhlöður að utan vegna öryggiskrafna ef þú vildir gera þetta sjálfur.
Getur prófað að tala við IBM/Nýherja/Origo/Ofar/Tölvutek eða hvað þetta nú heitir í dag

og fengið upplýsingar um kostnað.
Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?
Sent: Fim 12. Jún 2025 12:27
af traustitj
Ég er með Razer ferðavél og þeir eru hundleiðinlegir að díla við, sérstaklega þegar vélin er ekki í ábyrgð. Þeir voru tilbúnir að senda rafhlöðu til heimilisfangs í Svíþjóð sem ég get reddað, en svo þegar kom að því að senda þá breyttu þeir um gír, vildu að ég sendi þeim tölvuna til USA á minn kostnað ásamt því að ég greiddi gjald fyrir eyðileggingu á vélinni ef ég vildi hana ekki tilbaka og meira svona stórkostlega fuðurðulegt.
Fyrir rælni fór ég á ali express, fann rafhlöðu í akkúrat módelið mitt. Fékk hana heim án vandræða. Rafhlaðan leit 100% út eins og sú sem var í vélinni, með þeirra logo og allt slíkt. Ég held að þetta sé alvöru razer rafhlaða. Smellti í vélina og þetta bara virkaði eins og í sögu, hefur núna verið notuð í rúmt ár allavega held ég og er alveg enn eins og ný.
Fyrir thinkpad, þá myndi ég reyna við hvað sem þeir heita í brautarholtinu í dag. Þeir hafa verið sanngjarnir með varahlutaverð. Annars er ebay, ali og fjöldi aðila sem eru bara glaðir að selja þér rafhlöðu.
Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?
Sent: Fim 12. Jún 2025 14:12
af flottur
Takk fyrir svörin strákar.
Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?
Sent: Fim 12. Jún 2025 14:26
af ejm
Ég pantaði einhvern tímann á hótel í vinnuferð. Hef líka pantað af ebay, en grunar að það hafi verið vitlaust skráð, því það kom með dhl í flugi, svo ég hef ekki pantað þaðan aftur. Oft eru fartölvur orðnar lúnar líka, þegar rafhlaðan er farin að slappast, en það er misjafnt eftir fartölvum og framleiðendum.
Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?
Sent: Fim 12. Jún 2025 15:07
af GuðjónR
Ég vil bara vara við því að panta batterí af AliExpress.
Svona fór það með iPhone 4s.
Er feginn að það kviknaði ekki í húsinu því hann var svona einn morguninn og ekki í hleðslu!
Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?
Sent: Fim 12. Jún 2025 21:37
af gRIMwORLD
haha hef séð þetta gerast með original rafhlöður í bæði Lenovo Thinkpad og Dell Latitude vélum ca 3-4 ára gamlar
Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?
Sent: Fös 13. Jún 2025 09:21
af ejm
Ég var með eina Dell Latitude vinnutölvu sem fór svona með tvö original batterí frá Advania. Það var held ég dokkunni að kenna og thunderbolt tenginu. Pro-tip, ef touchpadið bólgnar upp, þá er þetta möguleg orsök.
Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?
Sent: Fös 13. Jún 2025 11:56
af rapport
Hver segir að íslenski aðilinn panti sitt stöff ekki frá Ali, þ.e.a.s. ef þú verslar annarstaðar en hjá Ofar?
Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?
Sent: Sun 15. Jún 2025 00:05
af Omerta
Ofar selur á 30k ca. nýtt battery í 5 ára gömlu Lenovo vélina mína. Þeir buðu mér að spara og taka frá 3rd party via Ali, þá á einungis 27 þúsund krónur... iFixit selur þetta battery á síðunni sinni á 50 USD en senda bara innan USA. Algjör steypa.
Re: Hvert leita vaktarar þegar að það kemur að því að finna rafhlöðu í fartölvu?
Sent: Sun 15. Jún 2025 09:59
af Zensi
Ef þú ert að spá í að panta frá landi sem sendir ekki til Íslands þá get ég mælt með að fá Proxy buyer eða forwarder hér:
Reddit.com/r/internationalshopper
Bara velja þá sem hafa verið lengi að og hafa byggt upp gott rep. Margir með þetta sem fulla vinnu og hafa gott uppúr því.
Hef notast við proxy's í japan og forwarders í UK og USA. Allt gengið eins og í sögu
