Síða 1 af 1

ASRock PGO32UFS 32" UHD (4K) OLED

Sent: Fim 05. Jún 2025 12:20
af Ivar_F
Daginn.

Er að skoða og láta mig dreyma um oled skjá.
Hefur einvher reinslu af þessum?

https://pg.asrock.com/Monitors/PGO32UFS/index.asp

Kv
Ívar

Re: ASRock PGO32UFS 32" UHD (4K) OLED

Sent: Fim 05. Jún 2025 17:06
af brain
Hef bara séð til LG frá Tölvulistanum og Gigabyte frá Tölvutek.

Prófaði báða, endaði á LG skjánum.

Held þessi sé ekki til á landinu.

Re: ASRock PGO32UFS 32" UHD (4K) OLED

Sent: Fim 05. Jún 2025 17:36
af Ivar_F
Þessi er til hjá kísildal og verðið er ansi næs miðað við eins og sambærilegan lg.

https://kd.is/category/18/products/3913

Re: ASRock PGO32UFS 32" UHD (4K) OLED

Sent: Fim 05. Jún 2025 19:58
af Gemini
Þessi er að nota WOLED útgáfuna sem er með svona möttu finish á skjánum. Sumir segja það stela smá svona af wow factornum vs QD-OLED týpurnar með sömu speca. Aðrir eru hrifnari af matta hlutanum. Fer auðvitað dálítið eftir hvernig ljós eru uppsett heima hjá þér og þannig.

Re: ASRock PGO32UFS 32" UHD (4K) OLED

Sent: Fim 05. Jún 2025 20:05
af svanur08
Tæki allann daginn Samsung eða LG yfir ASRock.

Re: ASRock PGO32UFS 32" UHD (4K) OLED

Sent: Fim 05. Jún 2025 20:18
af yabb4
Ég pantaði þetta og það kom á nokkrum dögum fyrir 165 þúsund krónur með VSK.

https://www.overclockers.co.uk/asus-rog ... 03117.html

Eini gallinn er ábyrgðin, en ef þú hugsar vel um skjáinn endist hann lengi. Ég átti LG 27 tommu skjá í eitt ár með 2000+ klukkustundum, hef aldrei lent í neinum vandræðum. Og þessi gerð er með nálægðarskynjara svo í hvert skipti sem þú ferð í burtu slokknar hann á sér en ef þú kemur aftur kviknar hann á sér.