Síða 1 af 1

Routerdrægni í húsi

Sent: Þri 27. Maí 2025 15:08
af Tales
Er að fara að uppfæra routerinn hjá mér.

Ég er í millistóru húsi og routerinn kemur til með að vera niðri í kjallara í einum enda hússins.

Þarf ég að vera með mesh nóður eða myndi duga að vera með einn high end router? Er að stefna á 10gb wan og helst wifi 7 eiginleika.

Re: Routerdrægni í húsi

Sent: Þri 27. Maí 2025 15:40
af B0b4F3tt
Það er voðalega erfitt að svara þessu. Það er ekki til neitt "one size fits all" svar. Hvað er húsið stórt? Úr hverju er húsið; steypt, timbur? Hvað er langt milli enda á húsinu?
Getur alltaf byrjað á high end router þó svo að það sé ekki nein trygging fyrir því að hann sendi út á meiri styrk en aðrir access punktar. Einnig þar sem þú vilt vera með wifi 7 þá þarftu að vera með frekar þétt net af access punktum þar sem wifi 7 keyrir á hærri tíðni og þar af leiðandi hefur það minni drægni.

Re: Routerdrægni í húsi

Sent: Þri 27. Maí 2025 15:46
af Tales
B0b4F3tt skrifaði:Það er voðalega erfitt að svara þessu. Það er ekki til neitt "one size fits all" svar. Hvað er húsið stórt? Úr hverju er húsið; steypt, timbur? Hvað er langt milli enda á húsinu?
Getur alltaf byrjað á high end router þó svo að það sé ekki nein trygging fyrir því að hann sendi út á meiri styrk en aðrir access punktar. Einnig þar sem þú vilt vera með wifi 7 þá þarftu að vera með frekar þétt net af access punktum þar sem wifi 7 keyrir á hærri tíðni og þar af leiðandi hefur það minni drægni.


Obb, gleymdi að minnast á specs.

Ég er í steinhúsi, þetta eru sennilega ca. 23 metrar enda í enda. Ég er nú þegar með gamlan google nest router og eina nóðu til að dekka allt húsið.

Re: Routerdrægni í húsi

Sent: Þri 27. Maí 2025 17:25
af kjartanbj
Ég fengi mér Unifi router og væri svo með access punkt á jarðhæðinni í stað þess að vera bara með wifi í kjallaranum. þannig geturðu líka alltaf uppfært eða bætt við Access point eftir þörfum seinna meir.

Re: Routerdrægni í húsi

Sent: Þri 27. Maí 2025 18:46
af TheAdder

Re: Routerdrægni í húsi

Sent: Mið 28. Maí 2025 00:19
af Sinnumtveir
Ég myndi giska á að þú þyrftir að lágmarki accesspunkt á efri hæðinni. En þú getur nottla
prófað routerinn einan.

Mig langar að bæta við að uþb öllum routerum er hægt að breyta í accesspunkta (sem eru
þá oftar en ekki með innbyggðan sviss). Ég hef gert þetta oftar en einu sinni án þess að
spandera neinu í nýjar græjur.

Re: Routerdrægni í húsi

Sent: Mið 28. Maí 2025 08:45
af Vaktari
Ég myndi klárlega bara draga í ef það er hægt.
Hvað þá ef routerinn fer að vera í öðrum enda hússins og steypt á tveim hæðum.
Tala um þá 150 - 200 fm steypuklump? Munt aldrei fá gott net með router í öðrum enda hússins.
Hægt er að fara í Tp - lin deco t.d. myndi þá taka þannig hægt sé að snúrutengja þá.
Hægt að fara í router og unifi punkta.