Síða 1 af 1

Nvidia 4x DLSS - Skoðanir

Sent: Þri 20. Maí 2025 21:33
af Templar
Sælir

Þeir sem eru með 5000 series, skoðun á 4x DLSS? Líklega ólíkt eftur leikjum og heilmikið sem á eftir að verða betra en ég er að upplifa það sem menn tala um, upplifir ekki mýktina í römmunum sem þú ert að fá á skjáinn, er að þvinga nota stundum 3x en 4x er af og frá í Oblivion Remastered t.d.
Annars er þessi tækni skref fram á við, meira detail svo þetta er allt í rétta átt en mér sýnist þetta með 4x eigi eitthvað í land í sumum titlum, amk. að þvinga þetta eða override er ekki öruggt að gefa betri upplifun.

Viðbót, er að keyra allt í Ultra 4k 4x, nær 200-300W orkunotkun, um leið og ég fer í 3x eða default DLSS 300-400W, hellingur sparað. Kortið nær ekki 50C á 4x DLSS í 4K leik.

Re: Nvidia 4x DLSS - Skoðanir

Sent: Mið 21. Maí 2025 09:14
af olihar
Til þessi tækni virki verður base frame rate að vera nothæft til að byrja með.

Ef þér sem notanda finnst Base frame rate óþægilegt þá mun frame gen vera það líka.

Best er að byrja að finna þann þröskuld og svo prufa sig áfram í frame gen.

Re: Nvidia 4x DLSS - Skoðanir

Sent: Mið 21. Maí 2025 10:30
af Gemini
Þetta mun auðvitað alltaf seinka því að þú fáir upplýsingar. Skjákort býr til nýjan frame og í staðinn fyrir að sýna þér hann býr það til 1-3 gerviramma úr upplýsingunum úr nýja og gamla rammanum sem það sýnir þér í röð áður en þú færð að sjá þennan nýja. Þessi seinkun getur maður vel tekið eftir í hröðum leikjum sérstaklega keppnisleikjum.

Í mínum augum er þetta bara ódýrt software gimmick þar sem það borgar sig ekki lengur að selja okkur bestu bitana þar sem AI markaðurinn borgar betur. 5000 línan er að mestu leiti sama tækni og 4000 plús smá auka software tricks.

Re: Nvidia 4x DLSS - Skoðanir

Sent: Fös 23. Maí 2025 12:53
af Templar
Hefði verið gaman að heyra frá öðrum með 5000 series um aðra titla en Oblivision, ég er að nota DLSS Balanced 3x, það er að virka frekar vel, 4x og ég fæ ghosting.
Tek undir mér þér Olihar, eins og þetta er núna verður að vera svona næstum nothæft FPS áður en þú notar þetta til að dippinn skemmi ekki upplifunina.