Síða 1 af 1

Örgjörvi fastur við kæli

Sent: Mið 14. Maí 2025 11:01
af Prentarakallinn
Var að uppfæra tölvuna og gamli örgjörvinn er fastur við kæliblokk, hef lent í þessu áður en aldrei tekist að losa örgjörva af án þess að skemma hann. Hefur einhverjum hér tekist að losa örgjörva af. Sá umræður um að nota wd40 contact cleaner eða eitthvað sambærilegt til að reyna losa þetta, láta það sitja á í einhverja tíma.

Þetta er Ryzen 2600x og kælikrem orðið helvíti gamalt

Re: Örgjörvi fastur við kæli

Sent: Mið 14. Maí 2025 11:14
af gunni91
Búinn að prufa henda cpu stress testi í gang, hita cpu uppí 80+ gráður, slökkva snögglega á vélinni og reyna þá að losa?

Re: Örgjörvi fastur við kæli

Sent: Mið 14. Maí 2025 11:16
af Haflidi85
bremsuhreinsir svín virkar líka til að hreinsa upp gamalt kælikrem. ætti að ná að losa nóg um þetta.

Re: Örgjörvi fastur við kæli

Sent: Mið 14. Maí 2025 11:50
af Gemini
Ég hef alltaf náð að snúa þeim bara og losa þannig. Hef heyrt að fólk noti t.d. tannþráð líka til að skera þetta laust.

Re: Örgjörvi fastur við kæli

Sent: Mið 14. Maí 2025 12:07
af TheAdder
Númer 1, 2, og 3, er hiti. Ef örgjörvinn er ennþá í móðurborðinu, lofa honum að keyra dálítið, ef ekki, hárþurrka/hitabyssa. Og svo nippiltöng sem getur tekið utanum hann án þess að kremja, og snúa af.

Re: Örgjörvi fastur við kæli

Sent: Mið 14. Maí 2025 17:14
af Prentarakallinn
TheAdder skrifaði:Númer 1, 2, og 3, er hiti. Ef örgjörvinn er ennþá í móðurborðinu, lofa honum að keyra dálítið, ef ekki, hárþurrka/hitabyssa. Og svo nippiltöng sem getur tekið utanum hann án þess að kremja, og snúa af.


Ég setti stress test akkúrat í gang áður en ég tók hann úr og samt kom þetta saman. Þarf að prufa bremsu hreinsi eða eitthvað til að losa þetta og kannski tannþráð.

Re: Örgjörvi fastur við kæli

Sent: Mið 14. Maí 2025 17:18
af worghal
snýrð hann bara af.

Re: Örgjörvi fastur við kæli

Sent: Mið 14. Maí 2025 18:13
af Prentarakallinn
worghal skrifaði:snýrð hann bara af.


Reyndi það, nánast byrjað að blæða þegar ég gafst upp

Re: Örgjörvi fastur við kæli

Sent: Fim 15. Maí 2025 09:08
af olihar
Prentarakallinn skrifaði:
worghal skrifaði:snýrð hann bara af.


Reyndi það, nánast byrjað að blæða þegar ég gafst upp


Varstu með hann i stress testi meðan þú reyndir að snúa honum af, best að hafa hann heitan meðan þú reynir að snúa af. Svo þegar losnar stoppa stress test og slökkva á vél.

Re: Örgjörvi fastur við kæli

Sent: Fim 15. Maí 2025 11:54
af Prentarakallinn
Náði honum af, notaði tannþráð og wd40 contact cleaner