Síða 1 af 1
3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Lau 10. Maí 2025 20:58
af Dizzydwarf
góða kvöldið fólk.
Ég er með 3070 kort sem ég er bara ekki að átta mig á, í hvert skipti sem ég kveiki á leikjum þá fara viftur allar á stað og þegar ég er hættur að spila þá fara þær ekkert niður en ég skil ekki afhverju eða hvar stillingin fyrir þetta er, því það er ekki að ofhitna eða neitt hef skilið hana eftir í heilan dag svona og hun hélt bara áfram í botni.
öll aðstoð þegin og hugmyndir hvað veldur þessu
https://imgur.com/Inc6lBa
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Lau 10. Maí 2025 22:02
af KaldiBoi
Rífa kortið úr og setja aftur í.
Gunni91 hjálpaði mér með mitt 3080, akkúrat svona eins og þú lýsir.
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Lau 10. Maí 2025 22:43
af gunni91
Dizzydwarf skrifaði:góða kvöldið fólk.
Ég er með 3070 kort sem ég er bara ekki að átta mig á, í hvert skipti sem ég kveiki á leikjum þá fara viftur allar á stað og þegar ég er hættur að spila þá fara þær ekkert niður en ég skil ekki afhverju eða hvar stillingin fyrir þetta er, því það er ekki að ofhitna eða neitt hef skilið hana eftir í heilan dag svona og hun hélt bara áfram í botni.
öll aðstoð þegin og hugmyndir hvað veldur þessu
https://imgur.com/Inc6lBa
Búinn að kanna hitastig á kortinu með Gpu-z?
Þarf ekki bara nýtt kælikrem?
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Sun 11. Maí 2025 02:04
af Dizzydwarf
gæti verið nýtt kælikrem jú en það er bara stable 30 gráður eins og er við enga spilun max er í 83 gráðum en hef ekki séð það fara þangað.
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Sun 11. Maí 2025 11:35
af oliuntitled
Var í nákvæmlega eins vandamáli með notað kort sem ég keypti.
Skipti um kælikremið á því og vandamálið hvarf.
Vandamálið var ekki eingöngu overall hiti við spilun heldur fór main hotspottinn yfir 100gráður þó að kortið sjálft væri "bara" að reporta 85.
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Mán 12. Maí 2025 06:17
af Templar
Repaste, kælikremið er rusl sem kemur á flestum kortum ef ekki öllum, það þornar svo upp og það myndast skallablettir eða staðir á GPU þar sem er ekki neitt krem lengur eftir til að mynda samband við kælirinn (pump effect) og þá fara vifturnar auðvitað í botn því kortið er í hámarks hita og líklega í thermal throttling.
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Mán 12. Maí 2025 20:26
af Dizzydwarf
Alright, búinn að skipta um kælikrem, engar viftur við start eins og það á að gera bara, opnaði counter strike og 5 sek seinna starta viftunar og fara beint í max speed, kortið stendur í svona 40 gráðum eins og er.
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Mán 12. Maí 2025 20:35
af Templar
Hvað með hotspot C?
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Þri 13. Maí 2025 08:26
af worghal
ég mundi bara ná í eitthvað eins og EVGA Precision X1 eða slíkt frá þínum framleiðanda og athuga með að setja upp viftu profile.
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Þri 13. Maí 2025 17:53
af Templar
Að vifturnar fara í botn getur auðvitað verið bilun en notaðu tól eins og HWinfo t.d. og fáðu hotspot hitastigið og memory, gæti verið einhver staður sem er að spæka langt umfram allt, efast um það en þú þarft að vera viss.
Ef engin staður er að spæka, þeas. GPU C og Hotspot C er í lagi er einfalt að ná í t.d. MSI Afterburner og setja fan profile í gang. Nýja Nvidia Appið býður líka upp á það.
Þú getur líka náð í Vbios fyrir kortið og flashað það aftur.
Lyktar samt alveg eins og eitthvað hardware mál samt.
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Mið 14. Maí 2025 12:24
af frr
Mögulega sambandsleysi í viftustýringu í kaplinum í vifturnar, í tenginu við skjákortið.
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Mið 14. Maí 2025 22:40
af Dizzydwarf
Heyrðu mesta klaufa mistök sem ég hef gert.
Skjákort standurinn var á einni viftunni, það var bara ein af 3 að snúast
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Fim 15. Maí 2025 19:47
af oliuntitled
Dizzydwarf skrifaði:Heyrðu mesta klaufa mistök sem ég hef gert.
Skjákort standurinn var á einni viftunni, það var bara ein af 3 að snúast
Classic
](./images/smilies/eusa_wall.gif)
Re: 3070 Kort fer á full blast við spilun
Sent: Fim 15. Maí 2025 20:08
af Templar
Gott að þetta er leyst.