Er skjákortið mitt að deyja?

Skjámynd

Höfundur
litli_b
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Mið 10. Maí 2023 12:22
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf litli_b » Fös 09. Maí 2025 13:09

Ég hef rx 6700xt kort, og bara í dag fæ ég oft black screens. Tölvan slekkur ekki á sér, en allt display hverfur og kemur ekki aftur. Ég er búinn að prófa að DDU wipea en það hefur ekki breytt miklu. Ég er reyndar ekki voðalega hræddur um að það sé að deyja, en ég hef samt mínar áhyggjur.
Eftir að þetta gerist þarf ég að kveikja aftur á henni og "Enable device" í device manager. Svo segir forritið "Error code 39" sem ég skilst vera eitthvað driver corruption? Kortið gefur sig bæði þegar ég er að spila og líka þegar ég er ekki að gera neitt.
Er þetta alvarlegt?




gunni91
Besserwisser
Póstar: 3146
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 232
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf gunni91 » Fös 09. Maí 2025 13:25

Byrja á að sækja Furmark og gpu z til að monitora hitatölir. hvað gerist í stress testi? Furmark reynir lítið á VRAM. Ef kortið koxar ekki í furmark, prufa næst heaven bench

- Hvernig eru hitatölur?
- Búinn að prufa annað pcie slot á mobo?
- Myndi kanna pcie tengingar á skjákorti og á aflgjafa ef hann er modular. Séð svona gerast t.d. Því pcie kapall var ekki smelltur nógu vel í aflgjafann sjálfan.
- Sækja AMD Adrenaline, juice-a 5-10% meira poweri inná kortið og sjá hvað áhrif það hefur undir manual overclock.

- Ef ekkert af þessu virkar þá er alltaf clean install af windows classic, code 39 er OS error.

- Varstu nýlega að uppfæra bios? Það getur mögulega skapað vandræði en ólíklegt.

Auðvitað væri best ef þú gætir líka prufað korti í annarri tölvu.

Leyfðu okkur að heyra hvernig fer :megasmile
Síðast breytt af gunni91 á Fös 09. Maí 2025 13:25, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Höfundur
litli_b
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Mið 10. Maí 2023 12:22
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf litli_b » Fös 09. Maí 2025 14:36

Smá uppfærsla. Hitastigið er í lagi, á eftir að prófa önnur pcie slots, geri það kannski seinna. Mig langar að segja að ég fann hvað er að gera þetta en ég er samt ekki viss. Fallout 4 virðist vera hafa mest crashes, sem er skiljanlegt, þetta er nú fallout 4. Ætla skoða það betur. Ef ekki prófa ég restina við tækifæri. Læt vita ef ég leysi þetta



Skjámynd

GunZi
Ofur-Nörd
Póstar: 223
Skráði sig: Sun 29. Sep 2013 13:58
Reputation: 22
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf GunZi » Fös 09. Maí 2025 18:35

Af forvitni, getur það passað að þú ert ekki með OLED skjá?

Lenti í sambærilegu veseni með 7800XT nema það var full system reboot. Með OLED skjá kemur grár skjár með nokkrum lóðréttum bláum línum. Án OLED þá var skjárinn svartur. Las einhvern þráð á Reddit þar sem fólki grunaði að þetta væri bilað VRAM. Gerist oftar í leikjum og undir álagi, en gerist líka í idle state randomly kannski annan hvern dag.

Gæti verið annað vandamál en það sem þú ert að sjá :)


Örgjövi: Ryzen 5800x3D Minni: 32GB 3600MHz DDR4 GPU: AMD Radeon RX 9070 XT SSDs: 1TB (Samsung 990 Pro) og 1TB (Evo 870) Móðurborð: B450 I Aorus Pro Wifi PSU: 760W skjáir: Samsung Odyssey Neo G9 49" 240Hz

Skjámynd

svanur08
Vaktari
Póstar: 2636
Skráði sig: Fim 18. Feb 2010 16:05
Reputation: 139
Staða: Tengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf svanur08 » Fös 09. Maí 2025 19:06

Hvenær er jarðaförin? Ertu ekki örugglega með nýjustu drivera? Ertu búinn að prufa annað skjákort?


Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR

Skjámynd

Höfundur
litli_b
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Mið 10. Maí 2023 12:22
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf litli_b » Fös 09. Maí 2025 19:22

GunZi skrifaði:Af forvitni, getur það passað að þú ert ekki með OLED skjá?

Lenti í sambærilegu veseni með 7800XT nema það var full system reboot. Með OLED skjá kemur grár skjár með nokkrum lóðréttum bláum línum. Án OLED þá var skjárinn svartur. Las einhvern þráð á Reddit þar sem fólki grunaði að þetta væri bilað VRAM. Gerist oftar í leikjum og undir álagi, en gerist líka í idle state randomly kannski annan hvern dag.

Gæti verið annað vandamál en það sem þú ert að sjá :)

Enginn Oled, en guð væri ég til í að hafa þannig! Veit samt ekki hvort það sé VRAM vesen, var að monitorea það og leit ekkert svakalega illa út.

svanur08 skrifaði:Hvenær er jarðaförin? Ertu ekki örugglega með nýjustu drivera? Ertu búinn að prufa annað skjákort?

Hún verður síðastlagi eftir lokaprófinn. En já, ég er með nýjustu driverana, og ætl henda inn r9 390 korti og sjá hvað það gerir.

Og til að uppfæra á Gunna, þá hef ég ekki pláss fyrir gpu á hinu PCIE slottinu. Ég prófaði að Reinstalla windows gegnum windows sjálft og það hefur ekki lagað það :/ Vil ekki setja upp glænýtt windows samt, er með svo mikið af efni og hlutum hérna sem ég nota oft við myndvinnslu sem ég myndi örruglega gleyma að ná í aftur eða færa yfir. En það verður allavega The last, last, last resort

Uppfæri ykkur á morgun



Skjámynd

brain
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Lau 19. Apr 2014 10:11
Reputation: 153
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf brain » Fös 09. Maí 2025 20:06

Búin að útiloka DVI/HDMI snúru ?

Lenti í DVI snúru sem átti til að detta í svart ef maður var í yfir 120 hz



Skjámynd

Dropi
Geek
Póstar: 837
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 253
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf Dropi » Fös 09. Maí 2025 20:48

Vinur minn var með 1070 sem var með svona draugabilanir þegar það var orðið 3-4 ára gamalt. Mjög svipað og þú ert að lenda í. Ég sagði honum að skipta um aflgjafann og það sló ekki feilpúst eftir það þangað til hann seldi það.

Óstöðugt 12V rail er algjört hell fyrir skjákortið. Reyndu að komast yfir annan aflgjafa til að prófa.


LG 38GN95B-B 3840x1600p160Hz - Logitech GMX508 - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X470 Strix - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 3x12TB WD Ultrastar DC HC520

Skjámynd

Höfundur
litli_b
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Mið 10. Maí 2023 12:22
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf litli_b » Lau 10. Maí 2025 11:33

Fyrsta uppfærsla dagsins!

brain skrifaði:Búin að útiloka DVI/HDMI snúru ?

Lenti í DVI snúru sem átti til að detta í svart ef maður var í yfir 120 hz

Ég hef þrjá skjái, þeir detta allir út. Getur ekki verið að allar snúrurnar eru hættar að virka, þótt ég myndi raunverulega óska þess.

Dropi skrifaði:Vinur minn var með 1070 sem var með svona draugabilanir þegar það var orðið 3-4 ára gamalt. Mjög svipað og þú ert að lenda í. Ég sagði honum að skipta um aflgjafann og það sló ekki feilpúst eftir það þangað til hann seldi það.

Óstöðugt 12V rail er algjört hell fyrir skjákortið. Reyndu að komast yfir annan aflgjafa til að prófa.


Ætti að hafa 650w psu liggjandi um einhversstaðar, sakar ekki að prófa það.

Annars hef ég:
Installað r9 390 kortið og testað, það virkar án vandamála, en dregur kannski ekki jafn mikla orku.
Stuttlega testað Rx 6700xt kortið í systemi yngri bróðurs míns, en náði ekki að gera það lengi. Leit ekki út fyrir að vera með mikil vandamál allavega.

Svo það eina sem á eftir að gera eða mér dettur í hug er að:
Prófa annað psu
Prófa Rx 6700xt kortið almennilega í öðru systemi
Svappa yfir í Rtx 2060s kort sem ég hef í systemi í kópavoginum



Skjámynd

Höfundur
litli_b
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Mið 10. Maí 2023 12:22
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf litli_b » Lau 10. Maí 2025 15:18

Uppfærsla 2
Psuið er ekki vandamálið. Tengdi systemið við annað 650 watta psu og allt leit út fyrir að virka fínt þangað til að það gerði það ekki. Black screenar ennþá. Svo annaðhvort er Skjákortið að deyja eða windows er bara bilað. Ég ætla reyna að keyra windows á öðrum disk sem hefur windows á því og sjá hvernig það fer. En væri geggjað ef þið hafið einhver fleiri hugmyndir að fixi




gunni91
Besserwisser
Póstar: 3146
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 232
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf gunni91 » Lau 10. Maí 2025 15:43

litli_b skrifaði:
GunZi skrifaði:Af forvitni, getur það passað að þú ert ekki með OLED skjá?

Lenti í sambærilegu veseni með 7800XT nema það var full system reboot. Með OLED skjá kemur grár skjár með nokkrum lóðréttum bláum línum. Án OLED þá var skjárinn svartur. Las einhvern þráð á Reddit þar sem fólki grunaði að þetta væri bilað VRAM. Gerist oftar í leikjum og undir álagi, en gerist líka í idle state randomly kannski annan hvern dag.

Gæti verið annað vandamál en það sem þú ert að sjá :)

Enginn Oled, en guð væri ég til í að hafa þannig! Veit samt ekki hvort það sé VRAM vesen, var að monitorea það og leit ekkert svakalega illa út.

svanur08 skrifaði:Hvenær er jarðaförin? Ertu ekki örugglega með nýjustu drivera? Ertu búinn að prufa annað skjákort?

Hún verður síðastlagi eftir lokaprófinn. En já, ég er með nýjustu driverana, og ætl henda inn r9 390 korti og sjá hvað það gerir.

Og til að uppfæra á Gunna, þá hef ég ekki pláss fyrir gpu á hinu PCIE slottinu. Ég prófaði að Reinstalla windows gegnum windows sjálft og það hefur ekki lagað það :/ Vil ekki setja upp glænýtt windows samt, er með svo mikið af efni og hlutum hérna sem ég nota oft við myndvinnslu sem ég myndi örruglega gleyma að ná í aftur eða færa yfir. En það verður allavega The last, last, last resort

Uppfæri ykkur á morgun


Búinn að sækja AMD Adrenalin og henda auka 10% poweri inná kortið?



Skjámynd

Höfundur
litli_b
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Mið 10. Maí 2023 12:22
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf litli_b » Lau 10. Maí 2025 15:57

Gleymdi því! Búinn að dæla 10 prósentum í kortið, læt vita ef það lagar eitthvað




zurien
Nörd
Póstar: 125
Skráði sig: Lau 17. Apr 2010 08:39
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf zurien » Lau 10. Maí 2025 18:47

Þessi einkenni eru því miður mjög svipuð og þegar 5700XT kortið mitt gaf upp öndina.
Smá álag og *poof* svartur skjár.

Gangi þér vel, vonandi rætist úr þessu.



Skjámynd

Höfundur
litli_b
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Mið 10. Maí 2023 12:22
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf litli_b » Lau 10. Maí 2025 20:46

10% extra djúsinn hefur ekki gert neitt, prófaði líka að undervolta, bjargaði engu.

zurien skrifaði:Þessi einkenni eru því miður mjög svipuð og þegar 5700XT kortið mitt gaf upp öndina.
Smá álag og *poof* svartur skjár.

Gangi þér vel, vonandi rætist úr þessu.

Já, ætli það gæti ekki bara verið það. Skjárinn flickerar á startup og kortið crashar meira segja undir eins miklu og engu álagi :(
Þetta er ekki að líta mjög bjart út. Kannski tími til að segja bæ við elskuna.
Annars var ég að plana að uppfæra í nvidia fyrir betri upptöku (Ef ég hefði vinnu þar að segja)



Skjámynd

TheVikingBear
Fiktari
Póstar: 75
Skráði sig: Lau 01. Maí 2021 08:58
Reputation: 4
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf TheVikingBear » Lau 10. Maí 2025 21:27

Fara nokkuð vifturnar á fullt þegar þetta gerist ?


Gamemax Spark White - ASRock B550M Steel Legend µATX AM4 - Ryzen7 5800X3D AM4 - GeForce RTX™ 2080 Super - G.Skill 32GB (2x16GB) TridentZ Neo 3600MHz DDR4 - Gamemax GX-850 Pro WT 850W - Deepcool AK620 White - 1TB Samsung 980 Pro m.2 Nvme - 2x4TB Toshiba N300


gunni91
Besserwisser
Póstar: 3146
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 232
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf gunni91 » Lau 10. Maí 2025 22:47

litli_b skrifaði:Smá uppfærsla. Hitastigið er í lagi, á eftir að prófa önnur pcie slots, geri það kannski seinna. Mig langar að segja að ég fann hvað er að gera þetta en ég er samt ekki viss. Fallout 4 virðist vera hafa mest crashes, sem er skiljanlegt, þetta er nú fallout 4. Ætla skoða það betur. Ef ekki prófa ég restina við tækifæri. Læt vita ef ég leysi þetta


Hitastig í lagi - ok, hvert var core temp, hot spot temp og mem temp? Fékkstu svartan skjá í miðju furmark? Hvað tók það langan tíma?



Skjámynd

Höfundur
litli_b
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Mið 10. Maí 2023 12:22
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Re: Er skjákortið mitt að deyja?

Pósturaf litli_b » Sun 11. Maí 2025 00:50

gunni91 skrifaði:
litli_b skrifaði:Smá uppfærsla. Hitastigið er í lagi, á eftir að prófa önnur pcie slots, geri það kannski seinna. Mig langar að segja að ég fann hvað er að gera þetta en ég er samt ekki viss. Fallout 4 virðist vera hafa mest crashes, sem er skiljanlegt, þetta er nú fallout 4. Ætla skoða það betur. Ef ekki prófa ég restina við tækifæri. Læt vita ef ég leysi þetta


Hitastig í lagi - ok, hvert var core temp, hot spot temp og mem temp? Fékkstu svartan skjá í miðju furmark? Hvað tók það langan tíma?

Ótrúlega en satt crashaði skjákortið aldrei í furmark þegar ég stress prófaði. Og Core temo, hot spot temp og mem temp? Ég bara hreinlega hef enga hugmynd og hef aldrei beyrt það áður (Þótt ég get ímyndað mér hvað það er.)
Ég er allavega frekar viss um að temps er ekki vandamálið hérna, ef kortið crashar við ekkert.