Native 256GB (64GBx4) at DDR5-6000 CL32 fyrir AMD

Skjámynd

Höfundur
olihar
Kerfisstjóri
Póstar: 1256
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 291
Staða: Ótengdur

Native 256GB (64GBx4) at DDR5-6000 CL32 fyrir AMD

Pósturaf olihar » Þri 29. Apr 2025 09:47

Frábærar fréttir fyrir ódýrari workstations.

IMG_3547.jpeg
IMG_3547.jpeg (450.76 KiB) Skoðað 4736 sinnum


Hægt að lesa meira hérna.

https://www.gskill.com/community/150223 ... cked-Speed



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16933
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2253
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Native 256GB (64GBx4) at DDR5-6000 CL32 fyrir AMD

Pósturaf GuðjónR » Þri 29. Apr 2025 11:03

Gaman að þessu!

Ég er einmitt mikið að spá í DDR5 núna fyrir væntanlegt 9950X3D build. Þetta með MHz, MT og CL er svolítið ruglingslegt fyrst, maður hefur alltaf haldið að hærra MHz eða MT sé sjálfkrafa betra, en svo virðist þetta vera meiri blanda af tölum en maður hélt.

Spurning hvað maður á að miða við í magni, 256GB er algjört overkill en hvað er passlegt? 64GB, 96GB eða 128GB?
Þetta lítur vel út: G.Skill 64GB (2x32GB) Trident Z Royal Neo Gold 6000MHz DDR5 CL26-36-36-96, 1.4V, EXPO, Dual-Channel.

Til dæmis, ef maður reiknar seinkunina (latency) í nanósekúndum með formúlunni:
Latency (ns) = (CL / MT) × 2000

þá fær maður þetta:

6000 MT / CL 26:
Latency = (26 / 6000) × 2000 = 8,67 ns

Þannig að þótt 6400 MT minni með hærra CL líti hraðara út á pappír, þá getur lægri CL á 6000 MT minni verið sneggra í raun.



Skjámynd

Höfundur
olihar
Kerfisstjóri
Póstar: 1256
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 291
Staða: Ótengdur

Re: Native 256GB (64GBx4) at DDR5-6000 CL32 fyrir AMD

Pósturaf olihar » Þri 29. Apr 2025 12:05

Hvað ertu að fara nota tölvuna í .



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16933
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2253
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Native 256GB (64GBx4) at DDR5-6000 CL32 fyrir AMD

Pósturaf GuðjónR » Þri 29. Apr 2025 12:43

olihar skrifaði:Hvað ertu að fara nota tölvuna í .

Það sem tölvan þarf að ráða við:

Fyrir utan allt þetta almenna þá eru forrit sem hún þarf að taka í nefið eins og Flight Sim 2024 með slatta af fylgihlutum.
Einnig Blender og Adobe Premiere.

Það sem mér finnst no-brainer eru eftirfarandi íhlutir:

  • Örgjörvi: AMD Ryzen 9 9950X3D
  • Skjákort: ASRock Radeon RX 9070 XT 16GB Taichi OC
  • PSU: Seasonic Vertex Platinum PX 1200W ATX 3.0

Að auki þarf:

  • Að lágmarki 64GB 6000–6400MT DDR5 RAM, helst CL26, CL28 eða CL30
  • Premium X870E móðurborð, (t.d. ASUS ROG Crosshair, MSI MEG, ASRock Taichi eða Gigabyte AORUS Master)
  • 2 TB Samsung 9100 drif fyrir system, ásamt 4TB EVO 860 SSD sem kemur úr annarri vél en það verður nýtt undir gögn.
  • Öflug og hljóðlát vatnskæling, helst eitthvað fyrir augað líka í glerkassann.
  • Einhvern sjúklega flottann kassa, helst með gleri að framan og á hlið

Mig langar að gera eitthvað virkilega flott í þetta skiptið , ekki bara praktískt.
Hef alltaf notað Noctua "hlunka" kæliviftur á örgjörvar sem eru frábærir, en langar að prófa eitthvað nýtt núna.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2726
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 508
Staða: Ótengdur

Re: Native 256GB (64GBx4) at DDR5-6000 CL32 fyrir AMD

Pósturaf Moldvarpan » Mið 30. Apr 2025 08:36

Ertu að stefna á að vera með 4k skjá?



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16933
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2253
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Native 256GB (64GBx4) at DDR5-6000 CL32 fyrir AMD

Pósturaf GuðjónR » Mið 30. Apr 2025 09:33

Moldvarpan skrifaði:Ertu að stefna á að vera með 4k skjá?

Ekki á planinu akkúrat núna, þar sem ég er með mjög góðan 32” ROG Swift PG329Q skjá (2560x1440).
En maður á aldrei að segja aldrei.

https://rog.asus.com/my/monitors/32-to- ... 29q-model/
Viðhengi
IMG_4220.png
IMG_4220.png (586.83 KiB) Skoðað 4464 sinnum



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2726
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 508
Staða: Ótengdur

Re: Native 256GB (64GBx4) at DDR5-6000 CL32 fyrir AMD

Pósturaf Moldvarpan » Fim 01. Maí 2025 17:30

Mæli með 4k oled, þetta gerir alla upplifun miklu meira vibrant. Mér finnst hefðbundnir tölvuskjáir vera nánast svart hvítir við hliðiná þessum 4k oled.



Skjámynd

Höfundur
olihar
Kerfisstjóri
Póstar: 1256
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 291
Staða: Ótengdur

Re: Native 256GB (64GBx4) at DDR5-6000 CL32 fyrir AMD

Pósturaf olihar » Fim 01. Maí 2025 17:31

Moldvarpan skrifaði:Mæli með 4k oled, þetta gerir alla upplifun miklu meira vibrant. Mér finnst hefðbundnir tölvuskjáir vera nánast svart hvítir við hliðiná þessum 4k oled.


Algjörlega sammála, once you go OLED....



Skjámynd

Templar
/dev/null
Póstar: 1421
Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
Reputation: 454
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Native 256GB (64GBx4) at DDR5-6000 CL32 fyrir AMD

Pósturaf Templar » Lau 03. Maí 2025 12:34

Rosalega flott þessi nýju low latency kit fyrir AMD, klárlega eitthvað sem AMD eigendur ættu að fara í.


--
|| Core Ultra 9 - Z890 - DDR8800 - 5090 - ||

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16933
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2253
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Native 256GB (64GBx4) at DDR5-6000 CL32 fyrir AMD

Pósturaf GuðjónR » Lau 03. Maí 2025 21:34

Templar skrifaði:Rosalega flott þessi nýju low latency kit fyrir AMD, klárlega eitthvað sem AMD eigendur ættu að fara í.

CL26 @ 6000MT gerist varla betra í dag.