Síða 1 af 1

Tölvan finnur ekki skjákortið - ráð?

Sent: Sun 06. Apr 2025 11:21
af GuðjónR
Góðan daginn vaktarar.

Ég lenti í smá vandræðum eftir að hafa átt við tölvukassann í gær. Ég tók RTX 3050 kortið úr og setti það aftur í en nú finnur tölvan það ekki. Prófaði að taka kortið úr og setja það aftur í nokkrum sinnum, en ekkert virkaði. Kortið virðist fá rafmagn; ljós kviknar á því og viftur snúast, en tölvan virðist samt ekki finna það.

Prófaði einnig GTX 1050 Ti kort sem ég veit að virkar, en tölvan finnur það ekki heldur. Í Windows, þegar ég opna Nvidia Control Panel, fæ ég skilaboðin "No NVIDIA card installed". Í BIOS er PCIe stillt sem priority og speed á "Auto" (valkostir: Gen 1, 2, 3).

Mér finnst eins og kortið smellpassi ekki alveg í raufina, sérstaklega nær útganginum. Það smellur vel þar sem læsingin er, en ég er ekki alveg viss hvort það fari 100% niður á hinum endanum. Mín tilfinning er að það gæti verið vandamálið.

Ég nota DisplayPort útgang á kortinu, en þegar ég tengi skjáinn við DisplayPort tenginguna á móðurborðinu virkar það án vandræða.
Spurning hvort þurfi að lyfta móðurborðinu örlítið til að kortið passi betur? Þetta er tölva sem ég setti saman 2017, og mig minnir að ég hafi lent í svipuðu áður, sem leystist af sjálfu sér.

Hefur einhver lent í svipuðu eða hefur hugmyndir um lausn?

Re: Tölvan finnur ekki skjákortið - ráð?

Sent: Sun 06. Apr 2025 12:13
af gunni91
Búinn að prufa fleiri pcie raufar? Situr móðurborðið ekki nógu vel á stand offs?

Það má alveg taka aðeins á þessu.

Re: Tölvan finnur ekki skjákortið - ráð?

Sent: Sun 06. Apr 2025 12:26
af GuðjónR
gunni91 skrifaði:Búinn að prufa fleiri pcie raufar? Situr móðurborðið ekki nógu vel á stand offs?
Það má alveg taka aðeins á þessu.

Þetta er gamalt Fatal1ty Z270 Gaming-ITX/ac móðurborð Z270.
Lítið móðurborð í litlum kassa. Bara ein pcie rauf.
Þéttar við endan á raufinni sem eru óþægilega nálægt kortinu.

Re: Tölvan finnur ekki skjákortið - ráð?

Sent: Sun 06. Apr 2025 13:18
af Gemini
Hljómar eins og raufin hafi líklega misst tengingu einhversstaðar við þessar tilfæringar. Líklega meira vinstra megin þar sem þú myndir sjá kortið en bara á minni hraða ef það væri eftir x1 pinnana.

Auðvitað séns líka að einhver drulla/hár eða annað hafi dottið í raufina og sé að trufla tengingu. Líklega þarftu að blása vel úr þessu og tékka hvort þú sjáir eitthvað óeðlilegt.

Re: Tölvan finnur ekki skjákortið - ráð?

Sent: Sun 06. Apr 2025 13:36
af olihar
Þú ert örugglega bara ekki að ná að láta kortið sitja rétt í raufinni.

Re: Tölvan finnur ekki skjákortið - ráð?

Sent: Sun 06. Apr 2025 20:10
af andriki
prófa taka borðið úr kassan og boota þannig, get annars kíkt á þetta fyrir þig ef þú vilt.

Re: Tölvan finnur ekki skjákortið - ráð?

Sent: Sun 06. Apr 2025 22:18
af Hlynzi
Ég myndi grandskoða pinnana (fjaðrirnar) í PCI-E raufinni, hvort einhver hafi beyglast eða óhreinindi hafi hreinlega lent á milli. Gætir einnig prófað að hafa kortið smá laust og lyfta örlítið undir vinstra hornið eða ýta því niður og sjá hvort það geri eitthvað þannig.

Re: Tölvan finnur ekki skjákortið - ráð?

Sent: Mán 07. Apr 2025 07:48
af worghal
þú segir að þér finnist það ekki passa allveg í raufina baka til, ertu alveg viss um að flipinn á bakspjaldinu sé að fara í sitt slott milli milli móðurborðs og kassabaks?

Re: Tölvan finnur ekki skjákortið - ráð?

Sent: Mán 07. Apr 2025 22:03
af GuðjónR
Takk kærlega fyrir öll góðu ráðin! Ég fór yfir allt sem þið nefnduð en ekkert virkaði.
Þá datt mér í hug að endursetja BIOS… og boom! það virkaði!

Var búinn að þráast við að gera það, þar sem allar vifturnar eru sérstilltar til að halda kerfinu hljóðlátu og góðu.
En svo sá ég að ég var með „safe“ profile vistað frá 2022. Hlóð því aftur inn eftir endurstillinguna, og voilà, vifturnar þögnuðu og skjákortið hélt áfram að virka eins og ekkert hefði gerst.

Alltaf eitthvað nýtt sem maður lærir!

P.S. sérstakar þakkir til @andriki fyrir að bjóðast til að kíkja í kaffi !! :hjarta