Síða 1 af 1

Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Mið 26. Feb 2025 20:19
af jardel
Vantar öflugan turn budget 130 -150.000
Hvað mælið þið með?

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Mið 26. Feb 2025 22:37
af Gemini
Færð ekkert nýtt og mjög öflugt á þennan pening því miður. Verðbólgan maður. Annars eru tölvubúðirnar flestar með tilbúna turna, getur fengið þér þannig eða stolið hugmyndum þaðan. Fólk er líka líklegra að hjálpa þér ef þú ert kominn með eitthvað sem þú ert að hugsa um og veist svona sirka hvað þú vilt spila eða nota tölvuna í.

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Mið 26. Feb 2025 22:49
af einarhr
Mæki með að skoða notað, 5xxx af AMD4 td 5800x og 3000 kort frá Nvidia td 3070ti eða betra . EF þú átt kassa og Psu þá er þetta solid uppfærlsa.

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Fim 27. Feb 2025 06:43
af Moldvarpan
Þú getur fengið fína tölvu í 1080p-1440p gaming fyrir þennan pening.

Það þarf ekkert rosalegt hardware í það. Tek undir með einarhr varðandi að kaupa notað.

Mér líkar þó betur við Intel, og 3070Ti-3080 kort væri flott fyrir þig.

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Fim 27. Feb 2025 13:29
af jardel
Ég er aðalega að hugsa um að geta keyrt flight simulator i góðri grafík

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Fim 27. Feb 2025 14:52
af Moldvarpan
jardel skrifaði:Ég er aðalega að hugsa um að geta keyrt flight simulator i góðri grafík

https://store.steampowered.com/app/2537590/Microsoft_Flight_Simulator_2024/
Recommended:
Requires a 64-bit processor and operating system
OS: Windows 10
Processor: AMD Ryzen 7 2700X or Intel Core i7-10700K
Memory: 32 GB RAM
Graphics: Radeon RX 5700 XT or GeForce RTX 2080
DirectX: Version 12
Network: Broadband Internet connection
Storage: 50 GB available space
Additional Notes: Network Speed of 50 Mbps Bandwidth

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Fim 27. Feb 2025 22:33
af jardel
Moldvarpan skrifaði:
jardel skrifaði:Ég er aðalega að hugsa um að geta keyrt flight simulator i góðri grafík

https://store.steampowered.com/app/2537590/Microsoft_Flight_Simulator_2024/
Recommended:
Requires a 64-bit processor and operating system
OS: Windows 10
Processor: AMD Ryzen 7 2700X or Intel Core i7-10700K
Memory: 32 GB RAM
Graphics: Radeon RX 5700 XT or GeForce RTX 2080
DirectX: Version 12
Network: Broadband Internet connection
Storage: 50 GB available space
Additional Notes: Network Speed of 50 Mbps Bandwidth



Takk kærlega fyrir upplýsingarnar

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Lau 01. Mar 2025 09:29
af jardel
Spurning hvaða nýja vél er hagkvæmust í innkaupum?
Vil helst kaupa af innlendum aðila.

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Lau 01. Mar 2025 13:15
af Moldvarpan
jardel skrifaði:Spurning hvaða nýja vél er hagkvæmust í innkaupum?
Vil helst kaupa af innlendum aðila.


Mæli með gunni91 hérna á vaktinni https://spjall.vaktin.is/memberlist.php?mode=viewprofile&u=12362
Einstaklega þægilegt að eiga viðskipti við hann, hef selt honum slatta.

Hann á pottþétt eitthvað handa þér á þínu verðbili, og færð mikið meira fyrir peninginn en í búð.

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Lau 01. Mar 2025 13:27
af netkaffi
jardel skrifaði:Takk kærlega fyrir upplýsingarnar
Þú gúglar bara "flight simulator hardware recommendations," en ég skil að þú viljir spyrja á Vaktinni ef þú ert ekkert sleypur í ensku. Svo er lika hægt að fá tilboð hérna :)

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Fim 06. Mar 2025 09:55
af jardel
Ég var að velta fyrir mér hvar hagkvæmast væri að kaupa öflugan nýjan turn. Max budget 170.000

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Fim 06. Mar 2025 10:55
af TheAdder
Ég myndi skoða þessa i þínum sporum, ef þú sleppir Windows leyfinu, átt það til, eða færð ódýrar annars staðar, þá eru verðið 166.000 og 176.000.
https://kisildalur.is/category/30/products/177
https://kisildalur.is/category/30/products/1542

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Fim 06. Mar 2025 11:52
af gnarr
Hérna eru 2 möguleikar sem passa í budget'ið þitt.

Öflugt skjákort en aðeins úreldara platform og veikari örgjörvi. Býður ekki uppá mikla uppfærslumöguleika í framtíðinni. Getur samt uppfært í AM4 X3D örgjörva, aukið minni og stærra skjákort seinna.
Screenshot From 2025-03-06 12-45-20.png
Screenshot From 2025-03-06 12-45-20.png (188.83 KiB) Skoðað 25861 sinnum


Öflugri örgjörvi á nýju platformi en veikara skjákort. Býður uppá miklar uppfærslur.
Screenshot From 2025-03-06 12-49-24.png
Screenshot From 2025-03-06 12-49-24.png (197.35 KiB) Skoðað 25861 sinnum

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Mán 17. Mar 2025 21:59
af jardel
Eru einhverjir fleiri turnar sem þið mælið með.

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Lau 12. Apr 2025 19:29
af jardel
TheAdder skrifaði:Ég myndi skoða þessa i þínum sporum, ef þú sleppir Windows leyfinu, átt það til, eða færð ódýrar annars staðar, þá eru verðið 166.000 og 176.000.
https://kisildalur.is/category/30/products/177
https://kisildalur.is/category/30/products/1542



Takk fyrir þessa ábendingu. góðar budget vélar.

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Mán 05. Maí 2025 20:58
af Perks
build.png
build.png (295.46 KiB) Skoðað 4217 sinnum

Fær maður nokkuð eitthvað skárra notað þar sem ég þarf að skipta flestu út hvort eð?
Fékk smá illt í hjartað þegar ég sá að guttinn minn var enn að nota 13 ára buildið og gat ekki spilað neitt á pc vélinni sinni.
fyrst það er svo langt síðan ég setti eitthvað saman þá spyr ég: ef ég nota kassa + aflgjafa sem er til. Er eitthvað þarna sem er heimskulegt val?

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Mán 05. Maí 2025 21:37
af Gunnar
Perks skrifaði:Fær maður nokkuð eitthvað skárra notað þar sem ég þarf að skipta flestu út hvort eð?
Fékk smá illt í hjartað þegar ég sá að guttinn minn var enn að nota 13 ára buildið og gat ekki spilað neitt á pc vélinni sinni.
fyrst það er svo langt síðan ég setti eitthvað saman þá spyr ég: ef ég nota kassa + aflgjafa sem er til. Er eitthvað þarna sem er heimskulegt val?


Nei frekar soldi build.
ég persónulega færi í dyrari örgjörva og ódyrara móðurborð.
hvað ertu að fara nýta mikið af því sem þetta móðurborð býður uppá?
ekki fara í móðurborð sem er með extra aukabúnað sem hækkar verðið á því sem þú kemur aldrei með að nota.
hveru oft raunverulega bætir maður við þegar maður er buinn að smíða turninn? það er allaveganna pælingin hja mér enda fór ég í M-ITX borð

svo er bara passa að móðurborðið og kælingin passi í kassan og að aflgjafinn sé nógu öflugur fyrir búnaðinn.

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Þri 06. Maí 2025 17:00
af Klemmi
Perks skrifaði:Fær maður nokkuð eitthvað skárra notað þar sem ég þarf að skipta flestu út hvort eð?
Fékk smá illt í hjartað þegar ég sá að guttinn minn var enn að nota 13 ára buildið og gat ekki spilað neitt á pc vélinni sinni.
fyrst það er svo langt síðan ég setti eitthvað saman þá spyr ég: ef ég nota kassa + aflgjafa sem er til. Er eitthvað þarna sem er heimskulegt val?


Leyfi mér að leggja hér orð í belg, GuðjónR gefur mér bara viðvörun ef ég er að ganga of langt sem starfsmaður verslunar.

Þetta er flottur pakki, en sjálfur myndi ég gera eftirfarandi breytingar:

Screenshot 2025-05-06 164915.png
Screenshot 2025-05-06 164915.png (92.79 KiB) Skoðað 4027 sinnum


Móðurborð - Það er tilboð á mjög fínum Gigabyte A620 mATX borðum, svo nema það sé einhver sérstök ástæða fyrir því að þig langi í dýrara borð, þá myndi ég íhuga það.

Örgjörvi - Sama, það er tilboð á Ryzen 9 7900, sem er rosalega flottur og öflugur örgjörvi sem hitnar lítið. Er bara 1stk eftir á þessu verði.

Kæling - Phanteks kælingin er fín, en það er einnig tilboð á Arctic Freezer 36 kælingu, hún er öflugri og vígalegri, kemur með 2x viftum í staðin fyrir 1x, og kemur með MX-6 kælikremi, svo þú sparar einnig þar.

SSD - Samsung 990 Pro er auðvitað mjög öflugur diskur, en ég tæki sjálfur 2TB Kingston NV3 fyrir þetta build heldur en 1TB Samsunginn. Mikið meiri líkur á að hann vanti frekar plássið heldur en hraðann.

Skjákort - Já, ég hefði gripið 4060 Ti kortið, en þau voru á rýmingarsölu hjá okkur og eru búin og koma ólíklega aftur. Set því B580 sem er á mjöööög góðu verði núna, fínn kraftur og frábært budget kort en svo geturðu líka skoðað með að bíða aðeins eftir því að 5060 Ti komi á skemmtilegri verð. Myndi bara ráðleggja þér að taka B580 kortið og sjá svo til.

Re: Ráðleggingar um kaup á leikjaturn

Sent: Þri 06. Maí 2025 18:13
af GuðjónR
Gleymdist ekki að setja turnkassa með í síðasta build? :sleezyjoe