Síða 1 af 1

Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mán 24. Feb 2025 10:21
af Jón Ragnar
Ég er í dag með Corsair headsett með snúru sem er alveg að syngja sitt síðasta.


Hvað eru menn og konur sáttir með í dag varðandi þráðlaus heyrnartól með mic?

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mán 24. Feb 2025 10:35
af dabbihall
er að nota Logitech G Pro X og finnst þau frábær

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mán 24. Feb 2025 10:42
af fhrafnsson
Þau eru mörg hver góð (hægt að skoða rtings t.d. til að bera saman) en ég tek undir með síðasta ræðumanni, ég átti Logitech G Pro x og líkaði vel við þau.

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mán 24. Feb 2025 10:50
af demaNtur
10/10 meðmæli frá mér.
Búinn að eiga í tæplega 2 ár og ennþá alveg geggjað dæmi, jafn sáttur enn og ég var fyrstu vikuna.
https://elko.is/vorur/steelseries-arcti ... SNOVAPROBK

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mán 24. Feb 2025 20:24
af arons4
demaNtur skrifaði:10/10 meðmæli frá mér.
Búinn að eiga í tæplega 2 ár og ennþá alveg geggjað dæmi, jafn sáttur enn og ég var fyrstu vikuna.
https://elko.is/vorur/steelseries-arcti ... SNOVAPROBK

Mæli 100% með en bara ef maður fær sér svona með, nýjasta útfærslan af þessum heyrnatólum er með eitthvern nibba inní skálunum sem gerir eyrun á manni aum ef þau snerta það, þessir púðar eru nægilega þykkir til að koma í veg fyrir slíkt.
https://wickedcushions.com/collections/ ... nt-earpads

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mán 24. Feb 2025 20:31
af audiophile
Strákurinn minn er með Hyperx Cloud 3 Wireless og elskar þau. Ég átti lengi og á enn Cloud 2 með snúru og alltaf líkað vel við Hyperx heyrnatól.

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mán 24. Feb 2025 21:42
af MrSiggis
Í þessu samhengi, hefur einhver reynslu af Logitech Astro A50?

https://elko.is/vorur/logitech-g-astro- ... T939002224

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Þri 25. Feb 2025 01:01
af Frussi
Ég er með arctis nova 7, prófaði pro en fannst þau of þröng og með of mikið clamp pressure. Konan er svo með g pro x 2, eitthvað böggaði mig við þau líka svo ég mæli með nova 7 (simultaneous Bluetooth og wireless er mjög næs btw, er ekki á g pro, þarft að skipta á milli)

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Þri 25. Feb 2025 07:48
af joekimboe
Ég er búinn að vera með sennheiser gsp 670, arctis nova 7 og logitech g pro x 2. Sennheiserinn var með skemmtilegasta hljóðið, en ömurleg tenging og smá skruðningur inn á milli. Arctis nova 7 var með langmesta dósahljóðið og bar af í lélegum hljómgæðum, en frábærir tengimöguleikar og stabíl wireless tenging. Logitech g pro x2 var með mjög gott hljóð og mjög góða wireless tengingu, engir skruðningar eða vesen. Svo mín meðmæli færu alltaf í g pro x2. En hef heyrt góða hluti um hyperx cloud 3 og alpha.

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Þri 25. Feb 2025 08:18
af fhrafnsson
Samkvæmt rtings: https://www.rtings.com/headphones/reviews/best/pc-gaming-headsets koma Logitech heyrnatólin mjög vel út líka en það væri gaman að sjá þessi Audeze Maxwell í búðum hér á landi.

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Þri 25. Feb 2025 08:54
af Vaktari
Er að nota Logitech G Pro X Wireless
Mæli með

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Þri 25. Feb 2025 09:42
af audiophile
fhrafnsson skrifaði:Samkvæmt rtings: https://www.rtings.com/headphones/reviews/best/pc-gaming-headsets koma Logitech heyrnatólin mjög vel út líka en það væri gaman að sjá þessi Audeze Maxwell í búðum hér á landi.


Það endar með að ég panta mér Audeze Maxwell að utan. Búinn að heyra endalaust góða hluti um þau.

Mæli með Youtube rás sem heitir Gadgetry Tech ef þið hafið áhuga að sjá góð review um heyrnatól. Hann fjallar mikið um gaming heyrnatól líka.

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Þri 25. Feb 2025 10:19
af Mondieu
Það fer svolítið eftir því hvort þú vilt opin eða lokuð heyrnartól, hvort þú hlustar eitthvað á tónlist eða ert bara að spá í þau fyrir leiki.

Ég keypti Logitech Pro X 2 um daginn. Hljóðið í þeim er fínt (ekki frábært) en mic-inn er alltof slappur miðað við þetta verð. Þau eru þó ansi þægileg og það fylgja auka púðar með. Ég get alveg mælt með þeim ef þú ert bara að nota þau í leiki en myndi ekki mæla með þeim ef þú hlustar mikið á tónlist og vilt að hún hljómi vel. Þau eru ódýrust hjá coolshop en eru líka á ágætis verði hjá computer.is.

Annars mæli ég með því að lesa reviews um þessi helstu heyrnartól, kaupa það sem þér líst best á í Elko og skila þeim svo hreinlega ef þér líst ekkert á þau.

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Þri 25. Feb 2025 11:57
af d0ge
Arctis nova pro fær 10/10 frá mér. Ég hef ekki kynnt mér önnur headphone neitt svakalega, en að hafa 2 batterý svo að þú lendir aldrei í að þurfa að snúrutengja í neyð skiptir mig miklu meira máli en ég áttaði mig á.

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mið 26. Feb 2025 08:48
af Jón Ragnar
Ég er seldur á Logitech Pro X

Spurning hvort maður splæsi í dýrari týpuna - Munar 10k á Pro og Pro 2

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mið 26. Feb 2025 09:41
af Clayman
Hyperx Cloudalpha wireless. Mjög fín heyrnatól en stærsti plúsinn er 300klst ending á hleðslunni.
Búinn að eiga mín í 1.5 ár og eru enn eins og ný, fín hljómgæði, þægileg og frabær rafhlöðuending.

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mið 26. Feb 2025 10:24
af Mondieu
Jón Ragnar skrifaði:Ég er seldur á Logitech Pro X

Spurning hvort maður splæsi í dýrari týpuna - Munar 10k á Pro og Pro 2


Gætir keypt lítið notuð Pro X 2 af þessum gæja hér á vaktinni: https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=99134.

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mið 26. Feb 2025 13:25
af joekimboe
Annars kosta þau 33þ á fullu verði hjà coolshop. Fara reglulega á smá afslátt. En eins og einhver benti á þá er skilaréttur elko alveg frábær leið til að finna út hvað þér finnst best. Èg fór í gegnum tvö headset þar sem mér fannst ekki henta mér, fékk þau endurgreidd að fullu og pantaði af coolshop.

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mið 26. Feb 2025 17:00
af Gemini
Ég gafst upp á þráðlausum fyrir nokkuð löngu. Mögulega eru þau orðin betri í dag í leikina samt. En flest af þessu er með allt of hátt latency á hljóðinu og ofan á þung að hafa á hausnum í löngu spilasessioni útaf rafhlöðum.

Sýnist nú þessi Logitech G PRO X 2 LIGHTSPEED komin niður í 27 ms ef maður notar dongleið, bluetooth er oftast vel yfir 100ms. Allavega meira debateable að 27 ms sé nóg í leiki en væntanlega margir sem myndu telja það of hægt líka.

Re: Þráðlaus gaming heyrnartól

Sent: Mið 26. Feb 2025 17:54
af Templar
Bowers & Wilkins PX8, audiophile, eru með svo vítt tónsvið að leikirnir hljóma rugl vel án þess að vera með eitthvað artificial BS hljóð.