Síða 1 af 1
Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fim 20. Feb 2025 12:31
af Arninn123
Hæ, ég vildi athuga með reynslu að kaupa tölvur frá Bandaríkjunum. Þar sem verðið í evrópu er á öðru leveli.
https://www.newegg.com/p/1TS-000D-1NED7 ... DI5Mzg3OQ..
https://www.newegg.com/p/2WC-000N-0FXX3 ... DI5Mzg3OQ..
Ég fann þessar hjá newegg sem að auðvitað senda ekki beint til Íslands sem mér lýst virkilega vel á. Ég hef skoðað að nota myus.com til að senda til Íslands en þá bætist auðvitað við vaskurinn og sendingargjald.
Vitið þið um aðra leið hjá íslendingum sem hafa tekið með sér tölvur eða hluti sem keyptir eru úti og koma með það heim. Væri alltaf æði að sleppa við vaskinn.
Bestu kveðjur
Arninn123

Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fim 20. Feb 2025 12:41
af rapport
Alls ekki versla við USA, they crazy!
Nota eitthvað evrópskt...
Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fim 20. Feb 2025 12:56
af olihar
Ef þú getur notað US layout á lyklaborð sem margir geta ekki. Þá er bara panta og láta senda á redirect þjónustu.
Eða versla við BHPhoto t.d. Þeir senda beint. (Hérna er ein svipuð og þessi efri sem þú sendir, Komin hingað á 250þ með sendingu og öllu gjöldum, BH sjá um það allt fyrir þig, kemur bara beint heim að dyrum)
https://www.bhphotovideo.com/c/product/ ... aming.htmlEDIT: Ég tók svo reyndar eftir að báðir Inkarnir sem þú sendir eru bæði refurbished tölvur, kannski ekki alveg fair að bera slíkt saman við nýtt.
Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fim 20. Feb 2025 13:03
af rostungurinn77
Já verð án vsk er oft lægra en verð með vsk. Sumir myndu segja alltaf.
Annars er ekkert svar við spurningunni þinni. Þú getur labbað í gegnum græna hliðið við heimkomu og vonað að enginn stoppi þig.
Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fim 20. Feb 2025 17:24
af Klemmi
Þessar vélar er horfnar af linknum, líklega fara refurbished á góðu verði hratt.
En vil pota því að, að þú mátt flytja inn verslunarvörur allt að 88.000kr með til landsins án þess að greiða af því.
Þannig að ef þú ert ekki að kaupa neitt fleira í USA sem ferðamaður og ert að koma heim, þá reiknast bara vaskur af upphæðinni umfram það.
Annars bara eins og aðrir hafa bent á, þá færðu tölvu með US lyklaborði, og líklega styttri eða engri ábyrgð hér heima, sérstaklega ef þetta er refurbished.
En ef þú ert að skoða refurbished, er það ekki bara sambærilegt við að kaupa notað hér á Vaktinni, og verðið í samræmi við það?
Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fim 20. Feb 2025 20:01
af Henjo
Ef þú ætlar að gera það, þá myndi ég gera það fljótt. Það er búist við að allt sé að fara hækka þökk sé nýju TRUMP tollunum. Forstjóri Acer var í gær að nefna að þeir búist við allavega 10% hækkun núna eft 2-3 vikur.
Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fim 20. Feb 2025 20:09
af demaNtur
rapport skrifaði:Alls ekki versla við USA, they crazy!
Nota eitthvað evrópskt...
Hahaha hvað er að ykkur, ykkar skoðun þarf ekki að koma fram ALLSTAÐAR

Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fim 20. Feb 2025 22:21
af EinnNetturGaur
Mæli bara alls ekki við að versla neitt við bandaríkjamanninn í dag. plús það mun líklegast hækka þvílíkt í verði fyrst allur tækjabúnaður hjá þeim er að fara hækka um 20% á næstunni.
Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fös 21. Feb 2025 03:08
af Sinnumtveir
Hei, ekki sætta þig við 16GB minni. Amk 32GB en ef ég fengi að ráða, lágmark 64GB.
Ef einhver vél þarna er með 16GB, þá kaupir þú bara viðbótar minni og rífur það upprunalega úr vélinni.
Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fös 21. Feb 2025 12:48
af olihar
Er þessi ekki bara akkurat það sem þú ert að leita að?
viewtopic.php?f=11&t=98855
Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fös 21. Feb 2025 23:13
af Arninn123
takk fyrir öll svörin

Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fös 21. Feb 2025 23:16
af Arninn123
jú hef einmitt verið að skoða þessa, finnst 200.000kr of mikið fyrir notaða þar sem ég get keypt hana nýja á 165.000 með vask til dk (með fjölskyldu þar)
annars hefði ég áhuga á henni hjá þér

Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fös 21. Feb 2025 23:18
af olihar
Ég er ekki að selja þessa rak bara augun i þessa. Ættir bara að bjóða í hana.
Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Fös 21. Feb 2025 23:19
af Arninn123
olihar skrifaði:Ég er ekki að selja þessa rak bara augun i þessa. Ættir bara að bjóða í hana.
aaa las ekki nafnið en takk fyrir ábendinguna kann að meta

Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Lau 22. Feb 2025 15:21
af kizi86
Arninn123 skrifaði:jú hef einmitt verið að skoða þessa, finnst 200.000kr of mikið fyrir notaða þar sem ég get keypt hana nýja á 165.000 með vask til dk (með fjölskyldu þar)
annars hefði ég áhuga á henni hjá þér

ef ert að meina þessar á newegg... þá eru þær notaðar líka... "Refurbished" .. aka notað
Re: Kaupa sér tölvu frá Bandaríkjunum
Sent: Lau 22. Feb 2025 22:33
af Gemini
Refurbished frá öðru landi er nokkuð risky. Maður vill sjá ansi góðan afslátt fyrir slíka áhættu.