Síða 1 af 1

Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Lau 15. Feb 2025 23:13
af Haflidi85
Kvöldið

Nú er ég sjálfur með corsair AX1200 power supply, sem er líklegast frá 2011-2013, erfitt að finna út nákvæmlega þó, ég fékk þennann aflgjafa með I5 2500k whole built með r9 280X korti ef ég man rétt, sem ég keypti á vaktinni.

Síðan er ég búinn að marguppfæra vélbúnaðinn frá I7 3770k- i5-4690k, í 6700k og svo í, 7700k ef ég man rétt og svo yfir í amd 5800x og svo núna 5800x3d.

En já á meðan ég hef verið að uppfæra hef ég verið að kaupa "high" end kort frá 1080ti og 3090 og 4080 super og allt þar á milli,(þar sem maður er að nördast), en já semsagt ég hef mjög lengi verið að keyra high end vélar með dýrum skjákortum og allskonar og alltaf hef ég bara treyst á minn AX1200. - Btw það er ekki fanstop á þessum aflgjafa og ég slekk aldrei á tölvunum mínum, svo orginal viftan snýst allann tímann.

Þetta er ekki neinn corsair rúnk póstur og ég býst við rosamikið af mönnum að segja mér að þessi aflgjafi muni deyja og allt það, en ég hef sjálfur sæst við það ástand, þ.e. ég er búinn að fá það mikið úr honum að þó hann dræpi nýtt rtx 5090 kort þá myndi ég fyrirgefa það, og btw viðnámin á svona aflgjafa eru það stór að ég hef 0 áhyggjur, en já mín skoðun.


En já þessi póstur er settur fyrir alvöru vaktara að fá svona þeirra reynslu af power supply-um og hver reynslan er og þegar þau hafa gefið sig þá hvort þau hafi bara dáið og þéttarnir á psu tekið við eða hvort power supply crashið tók meira með sér þ.e. móðurborð,minni,hdd, skjákort og svo framvegis.

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Lau 15. Feb 2025 23:22
af emil40
ég átti svona aflgjafa og hann dugði mörg mörg mörg ár er núna með Be quiet! Straight Power 12 Platinum 1500W aflgjafa. Ég get bara gefið aflgjafanum þínum góð meðmæli.

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Lau 15. Feb 2025 23:26
af gunni91
Ég persónulega myndi alveg tengja 3090/4090 kort í svona vel vottaðan 80+ certified psu ( reynslan eftir 600-700 skjákort)

Það versta er kannski hvað hann er gamall, spurning hvar maður eigi að draga mörkin með þetta. Ef þú ætlar í 5080/5090+ og intel 14900k, þá væri maður aldrei þægilegur með svona gamlan psu. Hægt að fá öfluga 12000w fyrir 4ð-50þ sem er alveg 10 ára fjárfesting.

Ef þú ætlar að selja hann skal ég kaupa :megasmile

Corsair og Seasonic bröndin hafa reynst best, 80+ gold og upp.
Því næst Bequiet, Evga o.s.f.

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Lau 15. Feb 2025 23:34
af olihar
Veit ekki afhverju þú hefur áhyggjur að einhverjir séu að fara drulla yfir Corsair aflgjafa, þeir eru einir þeir bestu á markaðnum.

Ef ég tæki aflgjafa í dag tæki ég eflaust Corsair HX1500i

Ef eg kúkaði peningum þá er þetta örugglega það besta.
https://seasonic.com/product/prime-tx-1 ... a-edition/

https://seasonic.com/prime-tx/

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Lau 15. Feb 2025 23:40
af Haflidi85
olihar skrifaði:Veit ekki afhverju þú hefur áhyggjur að einhverjir séu að fara drulla yfir Corsair aflgjafa, þeir eru einir þeir bestu á markaðnum.

Ef ég tæki aflgjafa í dag tæki ég eflaust Corsair HX1500i

Ef eg kúkaði peningum þá er þetta örugglega það besta.
https://seasonic.com/product/prime-tx-1 ... a-edition/

https://seasonic.com/prime-tx/



Náttúrulega ekki að einhver væri að drulla yfir corsair, enda mér alveg sama, minnin hjá corsair t.d. eru ekki góð, en meira svona að menn færu að "skamma mig " fyrir að vera með minimum 14 ára gamlan aflgjafa og vera "skít sama" :happy

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Lau 15. Feb 2025 23:44
af olihar
10 ára ábyrgð ábyrgð á Corsair svo þeir trúa a að þetta endist vel yfir þann tíma.

12 ár hjá Seasonic.

Veit ekki til þess að Minni fra Corsair séu slæm, er með 192GB kit frá þeim sem er gríðarlega gott og átt mörg kit frá þeim.

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Sun 16. Feb 2025 00:30
af SolidFeather
Ég var lengi með Antec Truepower 750w aflgjafa, 10 ár eflaust. Man ekki einusinni hvað ég gerði við hann en ég uppfærði í Corsair RM850x, og það var eiginlega afþvíbara. Duga svona aflgjafar ekki endalaust ef þeir springa ekki fyrsta árið?

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Sun 16. Feb 2025 08:19
af audiophile
Ég var með 650w Antec aflgjafa í allavega 10-12ár ef ekki lengur og hann gaf sig fyrir rest. Finnst það alveg mjög góð ending. Hef svo verið með Corsair RM850x núna í líklega 3ár og finnst hann mjög fínn.

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Mán 17. Feb 2025 16:58
af Dropi
Ég er með RM650X Corsair aflgjafa frá 2017 og keyri hann með 3080Ti alveg án þess að skammast mín. Var með RM750X í eitt ár áður en skipti um kassa og minnkaði við mig.

Er að hugsa að á uþb 2027 væri sniðugt að skipta honum úr daily vélinni minni og nota frekar í secondary vél sem sér minni not og uppfæra í eitthvað flott.

Elska corsair aflgjafana sem ég á og hef átt.

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Þri 06. Maí 2025 11:44
af Maniax
Ég skipti nýlega út 11 ára gömlum Corsair AX860 aflgjafa eftir að hann byrjaði að slökkva á sér í kjölfar uppfærslu í 9950X3D örgjörva. Vélin dró líklega yfir 860W í stuttan tíma þegar ég keyrði Star Citizen, leik sem er þekktur fyrir að reyna nokkuð á vélbúnaðinn. Gamli aflgjafinn á enn eitthvað líf eftir, þar sem þrjár aðrar vélar á heimilinu nota sama model án vandræða.

Ég keypti Corsair HX1500i hjá Overclockers fyrir £260 (með sendingarkostnaði) á tilboði og vona að hann reynist jafn áreiðanlegur.

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Þri 06. Maí 2025 11:49
af worghal
ég er enþá með corsair aflgjafa sem ég keypti 2015 og enn going strong :D
Corsair aflgjafarnir sem fólk var að kvarta yfir voru gömlu CX með græna logoinu ef ég man rétt, en þegar þú varst kominn í hærri línurnar þá er þetta skothelt :D

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Fim 08. Maí 2025 09:58
af Prentarakallinn
Er með Corsair GS600 sem er búin að vera í gangi í 10+ ár nánast stanslaust og virðist ekki ætla að stoppa, er reyndar að fara kaupa Seasonic Focus Gold 750W. Væri gaman að hafa hana áfram í gangi og sjá hversu lengi hún endist.

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Fim 08. Maí 2025 21:29
af Nördaklessa
Er með 720w Tacens sem ég fékk frá Kísildal fyrir um 10-12 árum síðan, still going strong. En spurn um að skipta honum út á næstunni

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Fim 08. Maí 2025 22:03
af Gemini
Þeir virka mjög lengi aflgjafarnir. En það þarf að hreinsa ryk úr þeim reglulega og passa slíka hluti. Eins er líklegra að eldri aflgjafarnir séu með eða jafnvel valdi svokölluðu "Coil Whine"i í búnaðinum hjá þér sem er meira pirrandi en hættulegt og myndi þá vonandi hverfa/minnka í öðrum búnaði ef þú skiptir honum út. Ég verð samt að viðurkenna að mér líður betur með að skipta út 10 ára gömlum aflgjafa í tölvu sem ég ætla að hafa í gangi heima hjá mér á nóttunni t.d.

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Fim 08. Maí 2025 23:07
af Langeygður
Þumalputtareglan í gamladaga var að þú missir svona 10W á ári. Nýlegir spennugjafar eru venjulega betri og alltaf kaupa betri merkin. Þú sparar ekki í spennugjafa kaupum.

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Fös 09. Maí 2025 08:47
af Dr3dinn
Veit ekki til þess að neinn aflgjafi hjá mér hafi klikkað óeðlilega snemma. (10+)

Hef tekið mjög margar tegundir og man ekki eftir neinu sem gaf sig fyrir en eftir 6ár +.

Menn geta alltaf verið óheppnir en finnst ég heyra lítið um psu að gefa sig nema þegar þau eru komin til ára sinna.

Móðurborð, minni, hd og gpu hins vegar hafa feilað meira hjá mér (aldrei cpu samt)

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Fös 09. Maí 2025 21:01
af Dropi
Ég hef séð aflgjafa springa tvisvar. Fyrst 2003-2004 þegar ég var að fikta í 110/220V rofanum sem unglingur og aftur 2012 þegar þetta gerðist með einn glænýjan úr kassanum. Tók mig smá stund að finna þessa mynd, en fannst hún passa við umræðuna.

Mynd

Re: Aflgjafar - líftími og pælingar...

Sent: Lau 10. Maí 2025 00:25
af T.Gumm
ég er með AX860i corsair powersupply ekki hugmynd hversu gamalt fylgdi notaðri tölvi sem ég keypti, en jú hef lent í því sem annar sagði hér ofar að það drap stundum á sér , ég þurfti bara að downloada corsair link forritinu en ekki Icue eða hvað sem það heitir og manually kveikja á viftunum og engin vandamál síðan , er að runna þokkalega tölvu og slær ekki feilpúst eftir þetta