Síða 1 af 1
NVMe Ssd ?
Sent: Mið 05. Feb 2025 08:19
af tomas52
Sælir
Ég ætla að kaupa NVMe Ssd disk
Spurningin er hver er munurinn á þessu ?
Er að spá í 1 tb
Sé að það er hægt að fá þetta í Gen3 og 4 og 5
Sýnist ég ætla fara í Gen 4 svona verðlega séð
https://tolvutek.is/Tolvur-og-skjair/Ih ... 701.actionhttps://tolvutaekni.is/collections/hard ... ara-abyrgdhttps://kisildalur.is/category/11/products/3270.
Er þetta bara framleiðandinn eða er eitthvað sem maður þarf að spá í í þessu ?
Re: NVMe Ssd ?
Sent: Mið 05. Feb 2025 08:27
af tomas52
I just found this on AliExpress:
ISK15,025 | Crucial P3 Plus 1TB PCIe Gen4x4 3D NAND NVMe M.2 SSD 500GB 1TB 2TB, up to 5000MB/s(OEM package)
https://a.aliexpress.com/_EuWsXrQOg er þetta eitthvað verra ?
Hefur eitthver reynslu að panta Ssd og vinnsluminni af Ali
Re: NVMe Ssd ?
Sent: Mið 05. Feb 2025 09:22
af Hizzman
gúglaðu 'aliexpress ssd frauds' áður en þú tekur ákvörðun
Re: NVMe Ssd ?
Sent: Mið 05. Feb 2025 10:35
af Nördaklessa
mér skilst að Adata séu ekkert ofboðslega endingargóðir :/
Re: NVMe Ssd ?
Sent: Mið 05. Feb 2025 11:47
af oliuntitled
Persónulega held ég mig við Samsung, það eru aðrir góðir framleiðendur en samsung hafa bara reynst mér það vel í gegnum tíðina að ég sé enga ástæðu til að fara í annað merki ennþá.
Allir samsung ssd'ar og nvme drif sem ég hef keypt lifa ennþá, fyrsti sem ég keypti frá þeim var 840 EVO árið 2013 og hann lifir enn góðu lífi.
Re: NVMe Ssd ?
Sent: Mið 05. Feb 2025 11:53
af olihar
Byrjaðu á því að vita hvaða pci hraði er á m.2 a móðurborðinu.
Og nei alls ekki kaupa fake rusl hjá Ali Frænda.
Re: NVMe Ssd ?
Sent: Mið 05. Feb 2025 12:05
af beatmaster
Ég var í nákvæmlega sömu hugleiðingum og endaði á að kaupa þennan
https://www.computer.is/is/product/ssd- ... vo-plus-g4
Re: NVMe Ssd ?
Sent: Mið 05. Feb 2025 12:40
af tomas52
olihar skrifaði:Byrjaðu á því að vita hvaða pci hraði er á m.2 a móðurborðinu.
Og nei alls ekki kaupa fake rusl hjá Ali Frænda.
PCIe NVMe, PCIe 3.0 x 4, 32Gb/s, er það sem stendur er það þá 32gb/s ?
Re: NVMe Ssd ?
Sent: Mið 05. Feb 2025 13:01
af Hauxon
Ég pantaði nokkra smáhluti (drasl) af Ali um miðjan nóvember og það var að skila sér í síðustu viku. Einn pakkinn kom aldrei og ég fékk endurgreitt. Þ.a. ég nenni ekki að panta nema ég sé til í að bíða í 2-3 mánuði og þetta megi vera drasl.
Re: NVMe Ssd ?
Sent: Mið 05. Feb 2025 13:34
af olihar
tomas52 skrifaði:olihar skrifaði:Byrjaðu á því að vita hvaða pci hraði er á m.2 a móðurborðinu.
Og nei alls ekki kaupa fake rusl hjá Ali Frænda.
PCIe NVMe, PCIe 3.0 x 4, 32Gb/s, er það sem stendur er það þá 32gb/s ?
Þá myndi ég bara finna góðan PCI 3.0 M.2 SSD, óþarfi að eyða í 4.0 eða 5.0, allt í lagi að taka 4.0 ef sá er á góðu verði. Kannski orðið lítið til af 3.0
Kostar klink.
https://www.bhphotovideo.com/c/product/ ... _pcie.html