Síða 1 af 1

Þrettándinn í Vegas 2025 - Flugeldasýningar

Sent: Lau 28. Des 2024 21:27
af Sinnumtveir
Jæja þrettándinn færist nær og þeir sem eru að pissa á sig af spenningi verði límdir við lævstrím frá CES í Las Vegas 6. jan. 2025.

Þessi koma sterklega til greina:

Intel 8:30 PST - 16:30 GMT
AMD 11:00 PST - 19:00 GMT
Nvidia 18:30 PST - 2:30 GMT (7. jan.)

M.a. er frá AMD búist við RDNA4 skjákortum, Strix Halo örgjörvum og Ryzen 9 9900X3D & 9950X3D.
Frá Nvidia er spenningur m.a. vegna RTX 5000 skjákorta.