Síða 1 af 1

Varaaflgjafi fyrir heimilið?

Sent: Fös 27. Des 2024 15:07
af GullMoli
Góðan daginn,

Eruð þið með einhver meðmæli varðandi varaaflgjafa fyrir heimanotkun?

Er að hugsa bara minni tæki, Unifi netbúnað og Plex tölvu. Sé að verðin á þessu eru orðin aðeins skárri en fyrir 10 árum þegar ég skoðaði þetta síðast, og úrvalið sömuleiðis aukist til muna sem flækir þetta. Notabene þá er ég bara að hugsa mest budget sem hægt er, þarf bara að duga mér til að slá inn eftir að einhver útisería slær öllu út .. :megasmile

Re: Varaaflgjafi fyrir heimilið?

Sent: Fös 27. Des 2024 15:16
af olihar

Re: Varaaflgjafi fyrir heimilið?

Sent: Fös 27. Des 2024 16:56
af GullMoli
olihar skrifaði:https://verslun.origo.is/leitarnidurstodur?query=APC&orderByQuery=ORDER_BY_SCORE_DESCENDING


Já ég geri mér grein fyrir því að Origo selur UPS græjur, ásamt Tölvulistanum, Tölvutek, Computer, rafvirkja-heildsölum ofl.

Pælingin mín er hvort einstaklingar hérna séu með einhverja sem hafa reynst vel/illa frekar en aðrir. Það er nefnilega ágætis úrval á 30k+- einhverjir þúsundkallar. Sumir með data tengi, ég er t.d. með Truenas Scale þjón sem getur átt samskipti við eitthvað magn af UPS'um, hefur einhver hérna sett upp svoleiðis með græju keypta hérna heima?

Enda eflaust á þessum og reyni að setja upp tengingu við Truenas https://verslun.origo.is/gagnageymslur- ... kets-28196

Svo þann ódýrasta sem ég get mögulega fundið fyrir annað :) Í fljótu bragði séð virðist það vera þessi https://tl.is/fsp-varaaflgjafi-800va-480w.html

Re: Varaaflgjafi fyrir heimilið?

Sent: Fös 27. Des 2024 17:27
af playman
Ég fékk mér þennan https://energy.fsp-europe.com/product/champ-rack-1k/ fyrir einhverjum árum hjá Tölvulistanum, en
þá var ég bara að leitast eftir UPS sem er rackmountable og ekki of dýr.
Fínasti UPS og hefur alveg staðið fyrir sínu, en mætti vera stærri samt, var að ná sirka 15 mín með einn server og skjá.
Hann bíður uppá þessa helstu fídusa eins og t.d. að gefa shutdown command, en fékk það aldrei til þess að virka með FreeNas
reyndi eitthvað en gafst svo upp á endanum, á eftir að skoða þetta á TrueNas Scale, svona þegar að maður finnur tíma.
Hef verið að gæla við það að setja fleyri og stærri rafhlöður í hann ásamt öflugri viftum.

Re: Varaaflgjafi fyrir heimilið?

Sent: Fös 27. Des 2024 23:48
af olihar
GullMoli skrifaði:
olihar skrifaði:https://verslun.origo.is/leitarnidurstodur?query=APC&orderByQuery=ORDER_BY_SCORE_DESCENDING


Já ég geri mér grein fyrir því að Origo selur UPS græjur, ásamt Tölvulistanum, Tölvutek, Computer, rafvirkja-heildsölum ofl.

Pælingin mín er hvort einstaklingar hérna séu með einhverja sem hafa reynst vel/illa frekar en aðrir. Það er nefnilega ágætis úrval á 30k+- einhverjir þúsundkallar. Sumir með data tengi, ég er t.d. með Truenas Scale þjón sem getur átt samskipti við eitthvað magn af UPS'um, hefur einhver hérna sett upp svoleiðis með græju keypta hérna heima?

Enda eflaust á þessum og reyni að setja upp tengingu við Truenas https://verslun.origo.is/gagnageymslur- ... kets-28196

Svo þann ódýrasta sem ég get mögulega fundið fyrir annað :) Í fljótu bragði séð virðist það vera þessi https://tl.is/fsp-varaaflgjafi-800va-480w.html



Já ég er sjálfur með nokkra APC, usb tengda eða Network tengda. Þessvegna er ég að mæla með. Ef rafmagn fer þá leyfir hann tækjunum að vera X lengi i gangi, t.d. Korter og sendir svo shut down sequence, sem er safe. Leið og rafmagnið kemur aftur ræsir hann tækið aftur. Þetta getur verið tölva eða NAS eða hvað sem er í raun.

Svo geta hin tækin keyrt þangað til battery fer alveg niður í núll svo sem routerar, swisher eða ljosleiðarabox svona ef maður vill hafa internet og líka að skilaboðin sendist til þín að rafmagnið sé farið.

Re: Varaaflgjafi fyrir heimilið?

Sent: Lau 28. Des 2024 18:23
af mainman
Ég er með 600w upsa hjá netskápnum mínum. Hann keyrir Dream machine, unifi svissinn og alla snjallheilana eins og Hue. Smarthings oþh.
Svissinn sér öllum myndavélunum og access punktum fyrir straum í gegnum poe svo það hangir allt inni þótt rafmagnið fari.
Þetta er samt bara að nota rétt tæplega 200w total.
Ég er síðan með tvo 95ah rafgeymia tengda við þetta svo ég er að ná rétt um 9 tímum þar sem ég hef net og allir access punktarnir og kamerurnar keyra.
Síðan er ég með serverinn minn út í skúr og þar er ég með 2700w upsa og 4x95ah geyma tengd við það á 48v.
Það er að ná cirka 9.5 tímum í endingu.
Það hefur nú ekki reynt á þetta í meira en 4-5 tíma ennþá hjá mér en þetta er mjög gott og líka þægilegt að geta verið að brasa eitthvað og keyra sagir og suðuvélar og það skiptir engu máli þótt allt slái út því net og server hangir alltaf inni.
Mæli alveg með þessu.

Re: Varaaflgjafi fyrir heimilið?

Sent: Lau 28. Des 2024 19:26
af arons4
GullMoli skrifaði:Enda eflaust á þessum og reyni að setja upp tengingu við Truenas https://verslun.origo.is/gagnageymslur- ... kets-28196

Þessi getur gefið út 410W, er það nóg til að keyra álagið sem þú ætlar á hann? 500W tölvuaflgjafi með 80% nýtni tekur 600W úr veggnum fulllestaður.

Re: Varaaflgjafi fyrir heimilið?

Sent: Lau 28. Des 2024 19:54
af Squinchy
Ég er með Eaton 5SC 1000i, hann gefur merki inn á freenas við spennuleysi og serverinn keyrir sig niður, freenas gefur svo merki til baka á upsan og segir honum að drepa á sér til að tæma ekki rafhlöðurnar, svo fer allt aftur í gang þegar rafmagnið er komið inn.

Er að vinna í því að uppfæra yfir í truenas scale, vona að þetta virki þar líka :P

Re: Varaaflgjafi fyrir heimilið?

Sent: Sun 29. Des 2024 08:02
af GullMoli
arons4 skrifaði:
GullMoli skrifaði:Enda eflaust á þessum og reyni að setja upp tengingu við Truenas https://verslun.origo.is/gagnageymslur- ... kets-28196

Þessi getur gefið út 410W, er það nóg til að keyra álagið sem þú ætlar á hann? 500W tölvuaflgjafi með 80% nýtni tekur 600W úr veggnum fulllestaður.


Já þetta er ekki aflmikil vél og mestmegnis 5-20% CPU usage. Vantar bara nokkrar mínútur til að hún drepi á sér eða ég slái aftur inn :)

Edit: er í raun að taka tvo, einn fyrir serverinn í bílskúrnum og annan fyrir netbúnað og annað inní húsi.