Síða 1 af 2
pælingar í nýrri tölvu.
Sent: Þri 24. Jan 2006 22:45
af kraft
Halló félagar.
Ég er að hugsa um að fá mér nýja tölvu og losa mig við gamla jálkinn. Hvernig líst ykkur á þessa vél sem ég er að spá í hjá Kísildal.
ATXB8KLW-SS/420 Aspire X-Plorer Metal Case w/ Side Window-Silver
680W aflgjafi ( Model No. ATX-AS680W-BL )
saman á 19.500 kr
Athlon64X2 3800+ 2.0GHz Dual Core 2x512KB L2 (S939) 33.000kr
NEC Dual-Layer DVD brennari – Hvítur, svartur eða silfraður 6.000kr
Epox 9NPA+SLi - 15.500kr
Saphhire Radeon X800GTO 128MB 256-bit GDDR3 PCI-Express 16.000kr
KWorld VS-LTV833RF Sjónvarpskort, MPEG1/2/4 kóðun Uppselt
Syba SY-VIA-GA 10/100/1000Mbps PCI netkort 1.500kr
Samsung disklingadrif – svart 1.000kr
Þannig að þetta er samtals -> 92.500 kr fyrir utan hvað sjónvarpskortið kostar.
Ég á til harða diska,minni og skjá fyrir þessa vél.
Ef þið vitið um svipaða vél fyrir svipaðann pening annarsstaðar þá endilega senda comment. Allar ábendingar vel þegnar.
Sent: Þri 24. Jan 2006 22:53
af BrynjarDreaMeR
þetta er mjög fín vél en ég mundi frékar taka x800pro
Sent: Þri 24. Jan 2006 23:02
af kraft
Sapphire Radeon X800Pro 256MB 256-bit GDDR3 PCI-Express það er uppselt hefurðu einhverja hugmynd um hvað það kostar ?
Sent: Þri 24. Jan 2006 23:16
af Gunnarhr
það kostaði 20.000 þar
Sent: Mið 25. Jan 2006 03:12
af hilmar_jonsson
Hvaða rosalegi aflgjafi er þetta...
Ég held að þú ættir að taka stærri kassa. Ég er með Xplorerinn og miðað við aflgjafann ætlar þú að fá þér eitthvað rosalegt síðar meir og það kemst líklega ekki í þennan kassa.
Ég veit t.d. fyrir víst að x1900 XTX kemst ekki í hann(eða a.m.k. mjög tæplega) ef öll HDD slottin eru full.
Sent: Mið 25. Jan 2006 07:21
af kraft
Hilmar, hvaða kassa myndirðu taka ? Ég var að pæla í að hafa 10x hdd og 1x dvd brennara á þessu

og flott skjákort

Sent: Mið 25. Jan 2006 07:45
af @Arinn@
Coolermaster stacker ef þú ert að fara að hafa 10 harðadiska.
Sent: Mið 25. Jan 2006 10:22
af kristjanm
Þú hefur ekkert að gera við svona rosalegan aflgjafa en það sakar víst ekki.
Svo myndi ég frekar taka 6800GS, heyrði einhversstaðar að wiceman ætti von á þeim í þessari viku.
Svo er innbyggt netkort á öllum nýjum móðurborðum svo að þú þarft ekki að kaupa það sérstaklega.
Annars lítur þetta vel út

Sent: Mið 25. Jan 2006 10:33
af wICE_man
Er að fara að fá bæði X800Pro aftur og eins 6800GS, Pro kortið verður á 20.000 sem fyrr og 6800GS verður á 21.000kr í PCIe útfærslu en 23.000kr í AGP.
Sjónvarpskortið kemur aftur í febrúar og verður einhversstaðar á bilinu 3-6.000kr fer eftir því hvaða kort ég vel að taka inn.
Ég myndi mæla með 6800GS m.v. að þú ert að velja SLI móðurborð, þá geturðu seinna keypt þér annað eins kort og keyrt þau saman.
Annars sýnist mér þetta vera nett uppsett vél, með tvöföldu GBit LAN, möguleika á SLI og Dual core. Vanntar þig kannski minnin í þetta rig?
uppfærsla
Sent: Mið 25. Jan 2006 12:22
af kraft
Wiceman :
Myndirðu halda að ég þyrfti stærri kassa ef ég ætla að vera með 9-10 diska og dvd brennarann ??
ATXB8KLW-SS/420 Aspire X-Plorer Metal Case w/ Side Window-Silver
680W aflgjafi ( Model No. ATX-AS680W-BL )
saman á 19.500 kr
Ég er með Corsair ValueSelect pöruð 2 stk. 1GB (=2GB), DDR400
184pin, PC3200, 400MHz, CL3, Lifstíðarábyrgð vinnsluminni sem ég ætla að nota úr vélinni sem ég er með núna.
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 4928b645b6
Athlon64X2 3800+ 2.0GHz Dual Core 2x512KB L2 (S939) 33.000kr
NEC Dual-Layer DVD brennari – Hvítur, svartur eða silfraður 6.000kr
Epox 9NPA+SLi - 15.500kr
6800GS ( í AGP ) útfærslu 23.000kr
samtals 97.000.- kr er eitthvað sem ég ætti að bæta við þetta ??? einhverjar uppástungur. Wiceman endilega láttu mig vita.
Áttu til stýrispjöld ?? gæti vantað svoleiðis þarf ég 1 eða 2 soleiðis ??? ég á von á einum SATA diski að utan bráðlega líka.
Sent: Mið 25. Jan 2006 14:32
af gumball3000
ég mæli með þar sem þú ert að fara splæsa feitum aur í örgjörva að taka x2 4400 hann er eitthvað um 15 þús krónum dýrari EN hann er með 2x 1mb cache í staðin fyrir 2x 512k (bara smá skot)

Re: uppfærsla
Sent: Mið 25. Jan 2006 15:26
af BrynjarDreaMeR
kraft skrifaði:Wiceman :
Myndirðu halda að ég þyrfti stærri kassa ef ég ætla að vera með 9-10 diska og dvd brennarann ??
ATXB8KLW-SS/420 Aspire X-Plorer Metal Case w/ Side Window-Silver
680W aflgjafi ( Model No. ATX-AS680W-BL )
saman á 19.500 kr
Ég er með Corsair ValueSelect pöruð 2 stk. 1GB (=2GB), DDR400
184pin, PC3200, 400MHz, CL3, Lifstíðarábyrgð vinnsluminni sem ég ætla að nota úr vélinni sem ég er með núna.
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 4928b645b6Athlon64X2 3800+ 2.0GHz Dual Core 2x512KB L2 (S939) 33.000kr
NEC Dual-Layer DVD brennari – Hvítur, svartur eða silfraður 6.000kr
Epox 9NPA+SLi - 15.500kr
6800GS ( í AGP ) útfærslu 23.000kr
samtals 97.000.- kr er eitthvað sem ég ætti að bæta við þetta ??? einhverjar uppástungur. Wiceman endilega láttu mig vita.
Áttu til stýrispjöld ?? gæti vantað svoleiðis þarf ég 1 eða 2 soleiðis ??? ég á von á einum SATA diski að utan bráðlega líka.
er þetta Epox 9NPA+SLi PCexpress móðurborð?
Sent: Mið 25. Jan 2006 15:44
af SolidFeather
Epox 9NPA+SLi -
Hvað heldur þú?
Sent: Mið 25. Jan 2006 15:56
af BrynjarDreaMeR
ég held að það sé pciex en málið er að hann er að spá í agp
Sent: Mið 25. Jan 2006 16:19
af Birkir
Já, þetta er PCIe móðurborð.
Sent: Mið 25. Jan 2006 17:23
af kristjanm
gumball3000 skrifaði:ég mæli með þar sem þú ert að fara splæsa feitum aur í örgjörva að taka x2 4400 hann er eitthvað um 15 þús krónum dýrari EN hann er með 2x 1mb cache í staðin fyrir 2x 512k (bara smá skot)

Þessi litla hraðaaukning er ekki 15 þúsund króna virði að mínu mati.
nýja tölvan
Sent: Fim 26. Jan 2006 16:57
af kraft
Jæja félagar. Þá er ég búinn að komast að niðurstöðu hvar og hvernig vél ég ætla að fá mér. Að sjálfsögðu kemur hún frá Kísildal þar sem nördin versla
Aspire X-plorer - 8.000kr
Aspire 680W PSU - 11.500kr
Athlon64 3700+ - 24.000kr
ASUS AN8 SLI - 13.000kr (það er með innbyggðu 7.1 hljóðkorti)
eVGA GF 6800GS - 21.000kr
NEC DL DVD+/-RW - 6.000kr (svartur)
Logitech MX-518 - 4500kr
Samtals : 88.000.- kr
Hvernig líst ykkur á þetta ? Fæ mér svona seinna diskastýringar og annað skjákort

Þakka öllum fyrir aðstoðina og commentin

Sent: Fim 26. Jan 2006 18:20
af kristjanm
Fáðu þér frekar X2 3800+, það er miklu sniðugra. Nýir leikir eru þegar farnir að nýta dual-core örgjörva og þeim á bara eftir að fjölga á næstunni.
Svo á Windows Vista eflaust eftir að nýta dual-core örgjörvana mun betur.
Sent: Fim 26. Jan 2006 19:25
af kraft
Held ég haldi mig við þetta því að budgetið mitt leyfir ekki meira

Ég er ekki að spila þessa þungu leiki eins og Quake 4, F.E.A.R. og svona 1st person skotleiki. bæti hugsanlega öðru skjákorti við síðar

Ánægður með vélina svona

Sent: Fim 26. Jan 2006 22:32
af kristjanm
Ok en ég er alveg viss um að þú eigir eftir að sjá eftir þessu fyrr eða síðar.
Sent: Fim 26. Jan 2006 23:10
af kraft
þú ert með 3500+ hvernig reynist hann ???? Ég verð með 2 gb ddr 400 minni með þessu. Málið er bara að ég er ekki í þessum rosalegu leikjum mest í þessum sport leikjum

allavega góð bæting miðað við núverandi kerfi

Sent: Fim 26. Jan 2006 23:41
af wICE_man
Ég held að performance munurinn verði aldrei það mikill að hann réttlæti mismuninn eitthvað sérstaklega. Ekki ef um er að ræða eintóma leikjaspilun.
Í rauninni er 3700+ öflugri í leikjum en X2 3800+ enda með stærra skyndiminni og hærri klukkutíðni. Það eru til undantekningar en þær eru fáar og allir sem vita eitthvað um forritun vita að þær verða það um nánustu framtíð. Það er einfaldlega sjúklega erfitt að gera multithreaded leikji og ekki allir framleiðendur sem sjá sér hag í því. Þeir sem ætla að nota fjölvinnslu að einhverju marki ættu að hugsa um að fá sér X2 en menn eiga ekki að eyða peningum í eitthvað sem þeir nýta sér ekki.
Sent: Fös 27. Jan 2006 00:19
af Vilezhout
Auk þess þótti það frekar auðvellt að yfirklukka fyrstu eintökin af 3700 uppí fx línuna
Sent: Fös 27. Jan 2006 00:33
af kraft
Hvað ætti að vera hægt að overclocka 3700+ upp í mikið ??? Ég hef enga reynslu af því þessvegna spyr ég

Sent: Fös 27. Jan 2006 02:19
af kristjanm
wICE_man skrifaði:Ég held að performance munurinn verði aldrei það mikill að hann réttlæti mismuninn eitthvað sérstaklega. Ekki ef um er að ræða eintóma leikjaspilun.
Í rauninni er 3700+ öflugri í leikjum en X2 3800+ enda með stærra skyndiminni og hærri klukkutíðni. Það eru til undantekningar en þær eru fáar og allir sem vita eitthvað um forritun vita að þær verða það um nánustu framtíð. Það er einfaldlega sjúklega erfitt að gera multithreaded leikji og ekki allir framleiðendur sem sjá sér hag í því. Þeir sem ætla að nota fjölvinnslu að einhverju marki ættu að hugsa um að fá sér X2 en menn eiga ekki að eyða peningum í eitthvað sem þeir nýta sér ekki.
Það eru komnir allavega tveir leikir núna sem eru multithreaded, Quake 4 og svo Call of Duty 2(minnir mig). Þeir eru þó nokkuð hraðvirkari með dual-core örgjörvum.
Windows Vista er að koma núna í þriðja fjórðungi og þá á eftir að borga sig að vera með dual-core örgjörva.
Svo gerir 1MB L2 Cache voða lítið gagn á A64 örgjörvum.
3700+ Gæti alveg overclockast upp í ca. 2.6-2.8GHz en það er ekki hægt að tryggja neitt. Held þú ættir bara frekar að fá þér A64 3000+, getur overclockað hann alveg jafn mikið og skyndiminnið gerir rosalega lítinn mun hvort sem er.
Edit: Svo mín skoðun er, annað hvort taka A64 X2 3800+ eða þá A64 3000+ með minni sem yfirklukkast vel.