iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Höfundur
snakkop
has spoken...
Póstar: 190
Skráði sig: Mán 07. Júl 2014 20:50
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Pósturaf snakkop » Mið 29. Nóv 2023 22:24

https://tl.is/medion-pc-erazer-engineer ... aturn.html hún lítur bara nokku vel út

Enn hvernig medion tölvur átti þið í gamla daga sem BT var selja ég fékk í ferminga gjöf medion V8 árið 2005 mín fyrsta tölva

[url]<a href="https://www.passmark.com/baselines/V10/display.php?id=130428749474"><img src="https://www.passmark.com/baselines/V10/images/130428749474.png" alt="PassMark Rating" border="0" /></a>[/url]

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf Pandemic » Mið 29. Nóv 2023 22:30

Myndi þetta flokkast sem Mulningsvél?
Mynd

Höfundur
snakkop
has spoken...
Póstar: 190
Skráði sig: Mán 07. Júl 2014 20:50
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf snakkop » Mið 29. Nóv 2023 22:35

Pandemic skrifaði:Myndi þetta flokkast sem Mulningsvél?
Mynd

Get nú ekki sagt það enn hún hefði örugglega geta spila Cod 2 og Cs nokku vel á sýnum tíma :)

[url]<a href="https://www.passmark.com/baselines/V10/display.php?id=130428749474"><img src="https://www.passmark.com/baselines/V10/images/130428749474.png" alt="PassMark Rating" border="0" /></a>[/url]

agnarkb
Tölvutryllir
Póstar: 625
Skráði sig: Fös 03. Okt 2008 20:36
Reputation: 106
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf agnarkb » Mið 29. Nóv 2023 22:35

Er InWin eitthvað komið með puttana í Medion? Þetta er InWin 301 kassi

Leikjavél | ROG Strix X570-E | 5800x3D | LF II 240| RTX 3090 | G.Skill 32GB Flare X 3200Mhz | RM850x | Pure Base 500
Server | ASRock H610M-ITX/ac | i5 12400 | Dark Rock TF2 | 32GB | 14 TB | Unraid Basic

JReykdal
FanBoy
Póstar: 704
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 18:59
Reputation: 163
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf JReykdal » Mið 29. Nóv 2023 22:37

Medion var draaaaaasl!

Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7071
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1008
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf rapport » Mið 29. Nóv 2023 22:53

JReykdal skrifaði:Medion var draaaaaasl!

Ég keypti Medion 400 mhz Celeron vél í september 1999 með Vodoo Banshee APG korti, ef ég man rétt.

Fyrsta PC vélin sem ég keypti fyrir mig sjálfann.

2004 var svo Mitac 1,6Mhz Dothan fartölva frá Hugver á Vitastíg fyrsta fartölvan, miklu betri kaup en þetta Medion drasl.
Síðast breytt af rapport á Mið 29. Nóv 2023 22:53, breytt samtals 2 sinnum.

Sinnumtveir
spjallið.is
Póstar: 473
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 149
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf Sinnumtveir » Mið 29. Nóv 2023 23:30

Medion er opinbert hlutafélag hvers hlutir eru skráðir í kauphöllina í Frankfurt (FWB: MDN).

Engu að síður er Lenovo meirihlutaeigandi í Medion. Þá vitið þið það.

halipuz1
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 379
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 19:25
Reputation: 39
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf halipuz1 » Mið 29. Nóv 2023 23:34

https://tl.is/medion-akoya-e14409-14-fartolva.html

Það er VGA tengi á myndinni.

Þetta er snilld, langar bara í hana útaf því. Setja bara upp XP og tengja 19" túbuna við fartölvuna....

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5496
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf appel » Mið 29. Nóv 2023 23:40

1500mhz, nokkuð gott, ekki mikið betra í dag í raun.

Fyrsta tölvan sem ég notaði var líklega annaðhvort Sinclair Spectrum eða IBM PC XT, var allavega til á heimilinu þegar ég ólst upp og man eftir mér. Líkaði mun betur við IBM PC XT vélina þar sem það var hægt að gera miklu meira á henni, enda með hörðum disk, mús og lyklaborði, á meðan Sinclair Spectrum var meiri game console með takmarkað notagildi, en jú skemmtileg. Man mest eftir öllum biluðu leikjunum sem krössuðu eftir 3-4 borð, maður reyndi aftur og aftur og stundum náði maður að komast á næsta borð og það var einsog himnarnir opnuðust. Þetta er c.a. 1984-85 og uppúr.

En alvöru straumhvörfin urðu þegar árið 1994 var keypt var á heimilið 486 tölva með windows 3.11, stuttu síðar uppfært í windows 95. En þetta var ein fyrsta internet tengda tölva í grunnskólanum, kannski 3-4 nemendur aðrir höfðu slíka PC internet vél. Þetta var svakalegt að komast á internetið þarna. Svo var maður í fyrstu internet voice chöttunum, símtölum, var í 3D world heimum á internetinu, spila vídjó skrár, og hvaðeina. Þarna vissi ég hvað ég vildi gera :) Þessi tölva kostaði um 200 þús árið 1994, skv. verðlagsreiknivél er þetta 712 þús í dag.
Síðast breytt af appel á Mið 29. Nóv 2023 23:59, breytt samtals 2 sinnum.

*-*

agnarkb
Tölvutryllir
Póstar: 625
Skráði sig: Fös 03. Okt 2008 20:36
Reputation: 106
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf agnarkb » Fim 30. Nóv 2023 00:54

En mikið myndi ég vilja að gömlu Leo tölvurnar sem ACO voru að selja hér um árið kæmu aftur. Svo auðvitað líka ACE sem Tölvulistinn var með.

Leikjavél | ROG Strix X570-E | 5800x3D | LF II 240| RTX 3090 | G.Skill 32GB Flare X 3200Mhz | RM850x | Pure Base 500
Server | ASRock H610M-ITX/ac | i5 12400 | Dark Rock TF2 | 32GB | 14 TB | Unraid Basic

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5496
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf appel » Fim 30. Nóv 2023 01:03

agnarkb skrifaði:En mikið myndi ég vilja að gömlu Leo tölvurnar sem ACO voru að selja hér um árið kæmu aftur. Svo auðvitað líka ACE sem Tölvulistinn var með.

ACE, voru það ekki "íslenskar tölvur" sem Tölvulistinn seldi þegar þeir voru þar sem Bríetartún er nú? Sýnist vera búið að rífa þetta núna.

Svo, man einhver einhver tölvusafnsbúðinni þarna á Snorrabraut?

Rosalega er maður orðinn gamall :)

*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7071
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1008
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf rapport » Fim 30. Nóv 2023 08:14

appel skrifaði:
agnarkb skrifaði:En mikið myndi ég vilja að gömlu Leo tölvurnar sem ACO voru að selja hér um árið kæmu aftur. Svo auðvitað líka ACE sem Tölvulistinn var með.

ACE, voru það ekki "íslenskar tölvur" sem Tölvulistinn seldi þegar þeir voru þar sem Bríetartún er nú? Sýnist vera búið að rífa þetta núna.

Svo, man einhver einhver tölvusafnsbúðinni þarna á Snorrabraut?

Rosalega er maður orðinn gamall :)

Á Snorrabrautinni nr. 22, var þessi tölvubúð sem var líka þekkt sem PostMac, seldi forrit á diskettum í gegnum póstverlsun. Ég var að bera út DV á Hverfisgötunni og þeir keyptu oft af mér aukablað og við ræddum um Apple Macintosh, þar sem ég var alinn upp með Machintosh Plus og svo ColourClassic (fyrsta tölvan sem ég keypti mér sjálfur)

Tölvulistinn var í Nóatúni, var hann einhverntíman í Bríetartúni (hét þá Skúlagata)?

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5496
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf appel » Fim 30. Nóv 2023 10:40

rapport skrifaði:

Leitið og þér munið finna:
https://timarit.is/page/2951853#page/n23/mode/2up

*-*

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2814
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 203
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf CendenZ » Fim 30. Nóv 2023 13:03

Ekki gleyma íslensku tölvunum Pardus og Digital Ísland og svo private label vélunum Tulip og Trust frá Nýherja. :lol:
Síðast breytt af CendenZ á Fim 30. Nóv 2023 15:15, breytt samtals 1 sinni.

dadik
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf dadik » Fim 30. Nóv 2023 14:00

Tulip og Trust voru frá Hollandi að mig minnir (túlipanarnir skilurðu).

Ég man bara hvað mér fannst impressive þegar ACE auglýstu "Íslenskar tölvur". Ég var bara, vá maður, svakalega eru þeir klárir, búa til tölvur á Íslandi. Svo seinna fattaði maður að þeir voru bara að púsla saman einhverjum OEM pörtum :catgotmyballs
Síðast breytt af CendenZ á Fim 30. Nóv 2023 15:20, breytt samtals 2 sinnum.

ps5 ¦ zephyrus G14

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2814
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 203
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf CendenZ » Fim 30. Nóv 2023 15:20

dadik skrifaði:Tulip og Trust voru frá Hollandi að mig minnir (túlipanarnir skilurðu).

Ég man bara hvað mér fannst impressive þegar ACE auglýstu "Íslenskar tölvur". Ég var bara, vá maður, svakalega eru þeir klárir, búa til tölvur á Íslandi. Svo seinna fattaði maður að þeir voru bara að púsla saman einhverjum OEM pörtum :catgotmyballs

æj lagað, ég veit að Tulip og Trust voru private label. Asnalega orðað hjá mér

Ace vélarnar fengu sennilega nafnið frá Automatic Computing Engine :guy

og editaði þitt í stað að quota :-"

Skjámynd

Henjo
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 177
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf Henjo » Fim 30. Nóv 2023 17:25

Þetta er ekki alvöru Medion tölva nema það séu tveir dvd skrifarar, 3.5" kortalesari framaná tölvunni og gul rotta að seigja þér að þetta er besta shit síðan upphituð afturrúða var fundin upp.

*en þeir sem vissu betur fór í alvöru búð og fengu tölvu í svona chiftec dragon kassa
Síðast breytt af Henjo á Fim 30. Nóv 2023 18:14, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5496
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf appel » Fim 30. Nóv 2023 22:39

Mesta "mulningsvél" sem ég hef átt, sem er háð auðvitað tímabilinu, er Hewlett-Packard Kayak XU vél. Í samanburði við allar aðrar PC tölvur á þessum tíma þá var hún svona ein sú öflugasta ef ekki öflugasta.

Mynd
https://en.wikipedia.org/wiki/HP_Kayak

Hún var alveg rándýr, kostaði alveg 400 þús á þessum tíma, kringum 1998.

En hún var dual core, með heila tvo pentium 2 örgjörva. Var með SCSI hörðum disk sem þekktist varla í einkatölvum. Og NT stýrikerfinu. Þetta var einsog að keyra um á Tesla Cyber Truck ímynda ég mér.
Átti hana alveg til 2005 enda var hún stöndug í allan þann tíma, og þetta var á tímabili þegar PC tölvur urðu alveg 100% hraðvirkari milli ára, ekki einsog núna þegar þær verða bara 10% hraðvirkari.
Kassinn var algjör klassasmíði, og vifturnar svakalegar. Man enn eftir hviðnum og öllum smáhljóðunum frá scsi disknum.
Síðast breytt af appel á Fim 30. Nóv 2023 22:40, breytt samtals 1 sinni.

*-*

Mossi__
FanBoy
Póstar: 799
Skráði sig: Þri 21. Nóv 2017 22:49
Reputation: 316
Staða: Tengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf Mossi__ » Fim 30. Nóv 2023 22:54

appel skrifaði:Mesta "mulningsvél" sem ég hef átt, sem er háð auðvitað tímabilinu, er Hewlett-Packard Kayak XU vél. Í samanburði við allar aðrar PC tölvur á þessum tíma þá var hún svona ein sú öflugasta ef ekki öflugasta.

Mynd
https://en.wikipedia.org/wiki/HP_Kayak

Hún var alveg rándýr, kostaði alveg 400 þús á þessum tíma, kringum 1998.

En hún var dual core, með heila tvo pentium 2 örgjörva. Var með SCSI hörðum disk sem þekktist varla í einkatölvum. Og NT stýrikerfinu. Þetta var einsog að keyra um á Tesla Cyber Truck ímynda ég mér.
Átti hana alveg til 2005 enda var hún stöndug í allan þann tíma, og þetta var á tímabili þegar PC tölvur urðu alveg 100% hraðvirkari milli ára, ekki einsog núna þegar þær verða bara 10% hraðvirkari.
Kassinn var algjör klassasmíði, og vifturnar svakalegar. Man enn eftir hviðnum og öllum smáhljóðunum frá scsi disknum.

1.3 millur í dag.

En það er nú bara skylda hins viti borna manns að spyrja:

Does it run Crysis ?

Mossi__ skrifaði:

1.3 millur í dag. Þetta hefur verið svakaleg vél!

En það er nú bara skylda hins viti borna manns að spyrja:

Does it run Crysis ?

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5496
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf appel » Fim 30. Nóv 2023 22:59

Var að spila Unreal og Battlezone 2 á þessum tíma. Minnir að ég hafi verið með nvidia riva tnt2 á þessum tíma. Þetta er góðum 6-7 árum áður en Crysis kom út :) átti aðra tölvu þá.
Líklega verið með þeim fyrstu sem átti tölvu með fleiri "kjörnum" en 1, en það var enginn hraðamunur samt fannst mér lol :) minnistæðast sem mesta peningasóun ævinnar, en ágætis minning samt.

Var að muna betur eftir verðinu, það var 276 þús. Langt síðan.

Svo var þetta pakki, með 17" trinitron skjá, mús og lyklaborði:
Mynd
Síðast breytt af appel á Fim 30. Nóv 2023 23:10, breytt samtals 6 sinnum.

*-*

Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 710
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 38
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf gRIMwORLD » Fös 01. Des 2023 15:59

Fyrsta tölvan sem ég fiktaði með var IBM PS/2 8086 og hún er enn til. Seinast þegar ég athugaði þá fór hún meira að segja í gang.
Kalla það afrek fyrir vél sem er næstum 40 ára gömul. Áður en ég varð 10 ára var ég að hardware grúskast í henni því stundum þurfti að taka SoundBlaster hljóðkortið úr til að geta notað meira en 640KB RAM í sumum leikjum, restin upp í 1MB var annars frátekið fyrir hardware.

Ekki með mynd en skal uppfæra þennan póst þegar ég kemst í það. Svarthvíti túbuskjárinn er meira að segja líka til.

IBM PS/2 8086

JReykdal
FanBoy
Póstar: 704
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 18:59
Reputation: 163
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf JReykdal » Fös 01. Des 2023 16:51

appel skrifaði:Líklega verið með þeim fyrstu sem átti tölvu með fleiri "kjörnum" en 1, en það var enginn hraðamunur samt fannst mér lol :) minnistæðast sem mesta peningasóun ævinnar, en ágætis minning samt.

Var að muna betur eftir verðinu, það var 276 þús. Langt síðan.

Svo var þetta pakki, með 17" trinitron skjá, mús og lyklaborði:

Enda var bara SMP support í NT 4 á þessum tíma (eða Linux) þannig að hraðamunurinn hefur verið enginn :)

Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki

vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5496
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf appel » Fös 01. Des 2023 21:23

JReykdal skrifaði:
appel skrifaði:Líklega verið með þeim fyrstu sem átti tölvu með fleiri "kjörnum" en 1, en það var enginn hraðamunur samt fannst mér lol :) minnistæðast sem mesta peningasóun ævinnar, en ágætis minning samt.

Var að muna betur eftir verðinu, það var 276 þús. Langt síðan.

Svo var þetta pakki, með 17" trinitron skjá, mús og lyklaborði:

Enda var bara SMP support í NT 4 á þessum tíma (eða Linux) þannig að hraðamunurinn hefur verið enginn :)

Já, var með NT4 á þessum tíma. Komu alveg fram í task manager. Bara var lítið sem maður var að gera sem þurfti tvo cores á þessum tíma, og forrit voru ekki hönnuð til að nýta sér það.

*-*

elight82
Fiktari
Póstar: 87
Skráði sig: Fös 24. Júl 2009 02:29
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: iconic merkið Medion komið aftur til íslands

Pósturaf elight82 » Mið 06. Des 2023 10:57

Ég var að vinna hjá símaversfyrirtæki sem svaraði í símann fyrir BT. Man eftir eldri manni sem var í vandræðum með „Medison“ tölvuna sína. Ég leiðrétti hann ekki.