Síða 1 af 1

Nýleg fartölva Disc scanning og endalaust restart. Hjálp

Sent: Mán 28. Nóv 2022 23:14
af osek27
Í sumar keypti ég fartölvu í útlöndum. Fartölvan er ASUS ROG Zephyrus G14 GA401QC-K2116T
Hún byrjaði að scanna diskinn og gera Auto repair þegar ég starta henni. Núna þegar hún bootar í windows þá gengur hún í svona 3-5 min og restartar sér.Profaði að restarta windows og það lagaði ekkert.
Bios er updateað, öll driver update eru up to date. Profaði að fara í windows 11 en það breytti engu, er núna á windows 10. Þetta gerist mun sjáldnar þegar tölvan er í sambandi, gerist þó stundum.
Einhverjar tillögur?
Er einhver umboðsaðili á islandi með Asus sem getur gert eitthvað með ábyrgðina frá Asus?
Allar ábendingar vel þegnar

Re: Nýleg fartölva Disc scanning og endalaust restart. Hjálp

Sent: Þri 29. Nóv 2022 08:41
af Njall_L
Getur prófað að heyra í Raftækjaverkstæðinu, verkstæði Tölvulistans. Síðast þegar ég vissi gátu þeir allavega pantað varahluti beint frá Asus en veit ekki hvort þeir séu með eiginlegt umboð

https://tl.is/verkstaedi

Re: Nýleg fartölva Disc scanning og endalaust restart. Hjálp

Sent: Mið 30. Nóv 2022 08:33
af osek27
Enginn sem hefur lent í svipuðu með aðra tölvu?

Re: Nýleg fartölva Disc scanning og endalaust restart. Hjálp

Sent: Mið 30. Nóv 2022 20:35
af Longshanks
Kannski setja nýjan ssd og os install ?

Re: Nýleg fartölva Disc scanning og endalaust restart. Hjálp

Sent: Mið 30. Nóv 2022 22:30
af Archdukemelon
Sælir,

Hljómar rosalega eins og SSD vesen, mæli með að prófa að skipta honum út, líklega er þetta m.2 diskur :) ætti ekki að vera vesen að skipta um. samt helvíti fúlt að lenda í þessu með nýrri tölvu. Getur prófað tala við Raftækjaverkstæðið, síðumúla 4, en finnst ólíklegt að þetta sé tekið í gegnum eitthverja ábyrgð þar sem varan var keypt úti.

Re: Nýleg fartölva Disc scanning og endalaust restart. Hjálp

Sent: Mið 30. Nóv 2022 23:47
af osek27
Eitthvað forrit eða leið til að checka SSD diskinn? þegar ég nota diagnos með MyAsus appinu þá kemur 0 problems. Annars hvaða SSD er bestur fyrir windows?

Re: Nýleg fartölva Disc scanning og endalaust restart. Hjálp

Sent: Fim 01. Des 2022 07:21
af Hlynzi
osek27 skrifaði:Eitthvað forrit eða leið til að checka SSD diskinn? þegar ég nota diagnos með MyAsus appinu þá kemur 0 problems. Annars hvaða SSD er bestur fyrir windows?


Ég hef lent í vandræðum með SSD disk tvisvar þar sem þegar þú skrifaðir gögn inná hann (þegar hann hitnaði aðeins) þá datt hann út, tölvan fraus bara og eftir restart hvarf diskurinn alltaf úr bios, lenti í þessu með 2 Crucial MX500 M.2 (fyrri var gallaður frá upphafi) og síðan endist seinni í ca. 2 ár og byrjaði með leiðindi og versnaði alltaf og var ónýtur ansi fljótt. Þeim var skipt út í Samsung 970 EVO ef ég man rétt.

Þú getur prófað að henda Ubuntu inná USB lykil og bootað upp kerfinu (þarft ekki að installa því) og keyrir það bara af USB, þá allavegana sérðu hvort að vélin hagi sér eðlilega þegar hún þarf ekki að nota SSD diskinn.