Gömul tölva - hvaða möguleikar?


Höfundur
falcon1
Gúrú
Póstar: 548
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 54
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Gömul tölva - hvaða möguleikar?

Pósturaf falcon1 » Þri 05. Júl 2022 16:19

Jæja, ég er loksins búinn að kaupa nýju tölvuna sem ég er búinn að hugsa um örugglega núna í margar vikur eða mánuði haha... :D

En þá vaknar spurningin hvaða not get ég haft af gömlu tölvunni?

Pælingin er að breyta henni í NAS með tíð og tíma en er eitthvað fleira sniðugt sem ég gæti nýtt hana í? Hún verður líklegast staðsett nálægt sjónvarpinu mínu, eru einhverjir möguleikar þar? :)

Gamla tölvan spec:

Intel i5-3570K
AMD Radeon HD 6700
32gb RAM
5 HDD (en þarf eiginlega að skipta þeim út þar sem þeir eru orðnir gamlir og litlir. :) )
1 SSD stýrikerfisdrif (Win10)



Skjámynd

einarhr
Of mikill frítími
Póstar: 1977
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 252
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Gömul tölva - hvaða möguleikar?

Pósturaf einarhr » Þri 05. Júl 2022 16:24

Gagnageymska og Plex server


| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |


TheAdder
Tölvutryllir
Póstar: 667
Skráði sig: Mið 09. Des 2020 11:22
Reputation: 187
Staða: Tengdur

Re: Gömul tölva - hvaða möguleikar?

Pósturaf TheAdder » Þri 05. Júl 2022 16:45

Skelltu TrueNAS Scale inn á hana og fiktaðu aðeins, getur notað hana þannig sem gagnageymslu og Plex server í það minnsta.


NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo