PLEX vesen


Höfundur
fhrafnsson
Ofur-Nörd
Póstar: 241
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 14:00
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

PLEX vesen

Pósturaf fhrafnsson » Mán 04. Júl 2022 20:52

Jæja Plex gúrúar!

Þegar ég opna Plex á símanum mínum með mobile data sé ég allt efni fyrir utan postera en þegar ég reyni að opna eitthvað kemur strax "Something went wrong". Ef ég tengist Wifi virkar allt eins og í sögu hins vegar.

Einhver hugmynd um hvað gæti verið að?



Skjámynd

Dropi
FanBoy
Póstar: 772
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 224
Staða: Ótengdur

Re: PLEX vesen

Pósturaf Dropi » Þri 05. Júl 2022 09:07

Er alveg sama hvaða wifi neti þú ert á? Eða ertu að tala um wifi netið heima hjá þér þar sem plex er hýst?

Mig grunar strax port vesen, ertu að forwarda rétt?


34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - ASRock B450M-Pro4 - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS


Höfundur
fhrafnsson
Ofur-Nörd
Póstar: 241
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 14:00
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: PLEX vesen

Pósturaf fhrafnsson » Þri 05. Júl 2022 10:21

Plex virkar í símum vina minna og hjá konunni svo ég held að þetta hljóti að vera vandamál með símann minn (virkar heldur ekki að opna Plex í vafra, þó ég velji desktop mode). Ég held því að ég hafi forwardað rétt þó það gæti auðvitað verið bandvitlaust hjá mér.



Skjámynd

russi
FanBoy
Póstar: 731
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 176
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: PLEX vesen

Pósturaf russi » Þri 05. Júl 2022 11:44

fhrafnsson skrifaði:Plex virkar í símum vina minna og hjá konunni svo ég held að þetta hljóti að vera vandamál með símann minn (virkar heldur ekki að opna Plex í vafra, þó ég velji desktop mode). Ég held því að ég hafi forwardað rétt þó það gæti auðvitað verið bandvitlaust hjá mér.

Plex innanhús er alltaf á porti 32400, þó þú hafir breytt portinu í Manually specify public port er innahúsport talan alltaf 32400. Það sem þú þarft að gera þarna er gera þá NAT-forward á töluna sem þú skilgreinir.

Semsagt svona er þetta default:
Private 192.168.1.10 : 32400 <- Public 1.2.3.4 : 32400 <- Internet

Ef þú hefur breytt Manually specify public port í til dæmis 33500
Private 192.168.1.10 : 32400 <- Public 1.2.3.4 : 33500 <- Internet
Þá þarft að gera eins NAT-forward í router.

Þú segir þegar þú tengist WiFi þá virki allt, ertu þá að tala um WiFi heima hjá þér eða líka annarsstaðar?
Síðast breytt af russi á Þri 05. Júl 2022 11:45, breytt samtals 2 sinnum.




Höfundur
fhrafnsson
Ofur-Nörd
Póstar: 241
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 14:00
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: PLEX vesen

Pósturaf fhrafnsson » Þri 05. Júl 2022 12:20

Virkar ekki á wifi hjá öðrum heldur, en virkar hjá öðrum bæði á wifi og 5g (nema tengdó reyndar).

Hér eru svo network stillingarnar:
Viðhengi
plex2.JPG
plex2.JPG (32.98 KiB) Skoðað 1054 sinnum
plex1.JPG
plex1.JPG (24.95 KiB) Skoðað 1054 sinnum




TheAdder
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Mið 09. Des 2020 11:22
Reputation: 190
Staða: Tengdur

Re: PLEX vesen

Pósturaf TheAdder » Þri 05. Júl 2022 12:37

Sæll, ég hef átt við sama vandamál að stríða, virðist fylgja sim kortinu, er með síma og spjaldtölvu, vandamálið til staðar á símanum en ekki spjaldinu þó bæði séu tengt á 4G hjá sama þjónustuaðila.
Skipti um síma um daginn og annað sim fór í gamla símann, Plex virkar núna á gamla símanum en gerði ekki áður, en virkar ekki á nýja símanum með sim kortinu sem var í þeim gamla.

Edit: Við að tengjast í gengum VPN, þá smellur þetta í gang. Hjá hvaða aðila ertu með gsm þjónustuna?
Síðast breytt af TheAdder á Þri 05. Júl 2022 12:39, breytt samtals 1 sinni.


NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo


Höfundur
fhrafnsson
Ofur-Nörd
Póstar: 241
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 14:00
Reputation: 33
Staða: Ótengdur

Re: PLEX vesen

Pósturaf fhrafnsson » Þri 05. Júl 2022 13:09

Er hjá Nova. Virkar hjá konunni sem er líka þar en sakar svosem ekki að prufa nýtt sim.




TheAdder
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Mið 09. Des 2020 11:22
Reputation: 190
Staða: Tengdur

Re: PLEX vesen

Pósturaf TheAdder » Þri 05. Júl 2022 13:32

Vill svo til að ég er einnig hjá Nova, en hef ekki prófað nýtt sim sjálfur.


NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo


beggi83
Fiktari
Póstar: 62
Skráði sig: Fim 04. Mar 2010 21:52
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: PLEX vesen

Pósturaf beggi83 » Þri 05. Júl 2022 16:05

Ég er hjá hringiðjunni og hef verið að lenda í þessu síðustu 3 mánuði enn um leið og ég tengist Wifi á öðrum stöðum dettur plex inn. Hef prófað ótal stillingar og ekkert virkað hingað til :/