Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.

Skjámynd

Höfundur
Onyth
Græningi
Póstar: 49
Skráði sig: Lau 10. Okt 2015 20:33
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.

Pósturaf Onyth » Fim 02. Des 2021 18:41

Daginn kæru vaktarar.

Mig langar að uppfæra hjá mér CPU. Er með i5 9600kf eins og er og því alveg kominn tími til. Er með flott GPU og gott 32gb DDR4 minni svo CPU er bottleneck eins og er. Langar að fá smá ráðleggingar um hvað fólk myndi kaupa með tvennt í huga: best bang for buck og future-proofing. Hef alltaf verið team blue en svo sem alveg opinn fyrir AMD.

Ætti ég að kaupa 1700 socket mobo og Alder Lake örgjörva?

Eða Rocket Lake? En það er þá ekki nærri því jafn future proof?

Eða fara í AMD?

Allar ráðleggingar vel þegnar. Budget er ekki heilagt en þó ekki mikið yfir 100k.
Síðast breytt af Onyth á Fim 02. Des 2021 22:01, breytt samtals 1 sinni.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Ótengdur

Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.

Pósturaf Klemmi » Fim 02. Des 2021 23:24

Ekkert vit í að fara í Rocket Lake í dag, þar sem það virðist ekki vera mikið mál að komast í Alder Lake örgjörva.

Veit ekki með AMD... fyrir Alder Lake, þá hefði mátt skoða það, en Alder Lake virðist bara vera að koma svo vel út, með fyrirvara um orkunotkun og þar með hitamyndun, fer eftir því í hvernig vinnslu þú ert að fara í.

Ég keypti i5-12600K nýlega og ætla svo bara að bíða spakur eftir B660 móðurborðunum.




Sinnumtveir
spjallið.is
Póstar: 473
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 149
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.

Pósturaf Sinnumtveir » Fös 03. Des 2021 04:31

Ertu ekki heldur snemma í því, að fara að leggja i5-9600kf akkúrat núna?

Auðvitað skiptir máli hvað þú ert að gera og hverskonar skjákort þú ert með en ég giska á að uppfærslan sem þú ert að spá verði heldur rýr, td í leikjaspilun.
Síðast breytt af Sinnumtveir á Fös 03. Des 2021 04:31, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2806
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 195
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.

Pósturaf CendenZ » Fös 03. Des 2021 12:01

Myndi allan daginn bíða smá.. fara svo í i5-12600 vél, ddr5 móðurborð og minni. Það gæti verið í kringum 100 kallinn.



Skjámynd

Höfundur
Onyth
Græningi
Póstar: 49
Skráði sig: Lau 10. Okt 2015 20:33
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.

Pósturaf Onyth » Fös 03. Des 2021 12:43

Takk fyrir góð svör. Ég held ég bíði þá aðeins :)