Klóna mörg drif á eitt drif?


Höfundur
falcon1
Gúrú
Póstar: 548
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 54
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Klóna mörg drif á eitt drif?

Pósturaf falcon1 » Mið 01. Des 2021 11:41

Ég er að undirbúa mig fyrir kaup á nýrri tölvu og mér sýnist að besta leiðin til að færa allt dótið yfir sé með því að klóna en núna er ég með gögn dreift á nokkrum drifum sem ég þyrfti þá að sameina í eitt drif á nýju tölvunni.

Hvernig er best að gera það? Maður hefur ekki mikla þekkingu á þessum hlutum enda ekki að gera þetta á hverjum degi. :)

Ps. þarf ég að setja upp öll forrit upp aftur og virkja þau?
Síðast breytt af falcon1 á Mið 01. Des 2021 11:41, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2697
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 149
Staða: Ótengdur

Re: Klóna mörg drif á eitt drif?

Pósturaf SolidFeather » Mið 01. Des 2021 12:05

Eg held að klónun sé ekki rétta leiðin til að gera þetta. Geturðu ekki bara sett diskana í nýju vélina? Hvað er á þessum diskum?




Höfundur
falcon1
Gúrú
Póstar: 548
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 54
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Klóna mörg drif á eitt drif?

Pósturaf falcon1 » Mið 01. Des 2021 12:26

SolidFeather skrifaði:Eg held að klónun sé ekki rétta leiðin til að gera þetta. Geturðu ekki bara sett diskana í nýju vélina? Hvað er á þessum diskum?
Aðallega ljósmyndir, myndbönd, tónlist og hljóðskrár. :)
Þessir diskar myndu bara taka óþarflega margar tengingar (held ég) í nýju tölvunni þar sem þetta eru 500 - 750gb drif. :) Ég stefni líka á að halda gömlu tölvunni í einhverri virkni áfram, t.d. sem file server eða eitthvað slíkt.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Tengdur

Re: Klóna mörg drif á eitt drif?

Pósturaf Klemmi » Mið 01. Des 2021 13:44

Sko... ef þú ert alveg harður á því að þetta sé það sem þú viljir gera, þá ætti þetta alveg að vera hægt.
Þá myndirðu byrja á því að klóna stýriskerfisdiskinn yfir á nýja, og skoða svo tól til að klóna partitionin af restinni af diskunum yfir á nýja.

HINS VEGAR, þá mæli ég ekkert sérstaklega með þessu. Þetta verður vinna hjá þér og ekki gefið að það gangi vel.
Ég veit að það er leiðinlegt að setja upp öll forrit og virkja þau aftur, en ég mæli samt með því að fara þá leið. Ef DRM vörnin á þessum forritum er þokkaleg, þá mun hún hvort eð er pikka upp breytinguna á vélbúnaði og þá gæti orðið erfiðara að virkja aftur því kerfið gæti farið í baklás.

Sjálfur er ég forritari með alls kyns gagnagrunna, forritunarumhverfi og tól uppsett hjá mér, og það getur verið algjör hausverkur að setja það upp á nýtt og færa gögn á milli, en ég myndi samt gera það ef ég væri að fara í alls herjar uppfærslu.

Sem sagt... Það að ætla að klóna gömlu diskana á nýja verður örugglega bara meira vesen þegar upp er staðið.

Settu bara upp hreint stýrikerfi og afritaðu svo gögnin af diskunum yfir á nýja.
Síðast breytt af Klemmi á Mið 01. Des 2021 13:45, breytt samtals 1 sinni.




Diddmaster
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 351
Skráði sig: Fös 19. Júl 2013 20:55
Reputation: 62
Staðsetning: Reykjanesbæ
Staða: Ótengdur

Re: Klóna mörg drif á eitt drif?

Pósturaf Diddmaster » Mið 01. Des 2021 14:39

ef þetta eru 2 windows tölvur geturu afritað allt á milli í gegnum netið eftir á þarft ekki að rífa neitt í sundur hefur þær bara netteingdar báðar á sama tíma í sama router með home network sem er innbigt í windows ,þarft samt að virkja það í báðum og stilla það sem þú vilt deila fínt að gera þetta svona víst þú ætlar að láta gömlu ganga leingur auðvelt og þægilegt


Asus Z390-A Prime i7 9700k CPU Thermaltake 3.0 Extreme Corsair 16GB (2x8) 3000MHz CL15 500 GB Samsung 970 EVO Plus m.2 palit 2080 super seasonic 760w 80+ platinum


Höfundur
falcon1
Gúrú
Póstar: 548
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 54
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Klóna mörg drif á eitt drif?

Pósturaf falcon1 » Mið 01. Des 2021 16:01

Takk fyrir svörin...

ég hef verið að finna fáeinar skrár á einu af gömlu drifunum sem eru orðnar corrupted og vilja ekki kóperast yfir á backup drif, er það aðvörunarmerki að það drif sé að komast að endimörkum?




Höfundur
falcon1
Gúrú
Póstar: 548
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 54
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Klóna mörg drif á eitt drif?

Pósturaf falcon1 » Mið 01. Des 2021 16:07

Klemmi skrifaði:Settu bara upp hreint stýrikerfi og afritaðu svo gögnin af diskunum yfir á nýja.

Já, líklega er það bara besta lausnin og taka kannski smá til í þessum gögnum í leiðinni haha... ;) :D Sé það núna að maður virðist vera dáldill "data hoarder" held ég að það sé kallað. :megasmile



Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1252
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 129
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Klóna mörg drif á eitt drif?

Pósturaf Minuz1 » Fim 02. Des 2021 05:13

Einu diskarnir sem þú ættir að vera að klóna eru stýrikerfisdiskar ef þú ætlar að halda sömu tölvu en vilt skipta um diska.

Afgangin flytur þú yfir annaðhvort með því að færa diska yfir eða afrita gögn á milli.

Getur athugað með heilsu diskana með SMART info reader eins og Crystaldiskinfo frítt (https://crystalmark.info/en/software/crystaldiskinfo/)


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það