Síða 1 af 1

Stækka harða diska eða kaupa nýja tölvu

Sent: Mið 13. Okt 2021 17:00
af falcon1
Ég er að lenda í skorti á plássi á tölvunni sem ég er að nota þannig að ég þarf að fara að gera eitthvað í því. :) Þessi tölva er að verða 10 ára gömul á næsta ári en virkar fínt ennþá þó hún sé eflaust ekki sú sprækasta lengur.

Ég er að velta fyrir mér hvort sé gáfulegri leið að skipta út diskum í gömlu fyrir nýja og stærri diska eða hreinlega fara í að kaupa nýja tölvu og setja gömlu í eitthvað annað verkefni.

Mér skilst reyndar að diskar séu dýrari núna en venjulega vegna COVID - ætti maður kannski að bíða eitthvað ef ég get?

Re: Stækka harða diska eða kaupa nýja tölvu

Sent: Mið 13. Okt 2021 17:12
af ElvarP
Ertu með SSD? Myndi klárlega mæla með því að fá þér SSD ef ert ekki með svoleiðis.

Re: Stækka harða diska eða kaupa nýja tölvu

Sent: Mið 13. Okt 2021 17:18
af falcon1
ElvarP skrifaði:Ertu með SSD? Myndi klárlega mæla með því að fá þér SSD ef ert ekki með svoleiðis.

Já, ég er með nýlegan SSD sem stýrikerfisdrif og er nægt pláss á honum fyrir stýrikerfið. :)

Það er aðallega ljósmynda/myndbanda- og hljóðsafnið sem er að sprengja allt utan af sér. :D

Ég er að nota tölvuna mest í ljósmyndir, myndbandavinnslu og svo hljóðupptökur.

Re: Stækka harða diska eða kaupa nýja tölvu

Sent: Mið 13. Okt 2021 19:50
af Hannesinn
Lendir alveg í sömu vandræðum með diskapláss á nýrri tölvu eins og þeirri gömlu ef þú skiptir. Annars er þetta bara spurning um hversu mikið þú vilt eyða. Þú kemst örugglega af með því að kaupa bara nýjan geymsludisk, eins og þennan, en þú verður betur settur með þennan disk í nýrri tölvu.

Ef þetta er að skapa þér tekjur, myndi ég hiklaust skipta, þar sem tími í óþarfa ves minnkar. Fyrir casual framleiðslu... jú, ég myndi líklega skipta líka, en það eru eflaust ekkert allir sammála því.

Re: Stækka harða diska eða kaupa nýja tölvu

Sent: Mið 13. Okt 2021 20:06
af TheAdder
Ég myndi í þínum sporum athuga með NASbox, með gagnaöryggi eins og RAID 5 t.d.
Persónulega líkar mér mjög vel við Synology.

Re: Stækka harða diska eða kaupa nýja tölvu

Sent: Mið 13. Okt 2021 21:34
af SolidFeather
Splæsa í nýja vél og nota gömlu vélina sem fileserver, eina vitið.

Re: Stækka harða diska eða kaupa nýja tölvu

Sent: Fim 14. Okt 2021 13:38
af falcon1
SolidFeather skrifaði:Splæsa í nýja vél og nota gömlu vélina sem fileserver, eina vitið.

Þannig að ég myndi kaupa nýja vél og uppfæra diskana í gömlu og nota sem fileserver - er ég að skilja þig rétt? :)

Re: Stækka harða diska eða kaupa nýja tölvu

Sent: Fim 14. Okt 2021 13:58
af SolidFeather
falcon1 skrifaði:
SolidFeather skrifaði:Splæsa í nýja vél og nota gömlu vélina sem fileserver, eina vitið.

Þannig að ég myndi kaupa nýja vél og uppfæra diskana í gömlu og nota sem fileserver - er ég að skilja þig rétt? :)


Já eitthvað í þá áttina.

Re: Stækka harða diska eða kaupa nýja tölvu

Sent: Fim 14. Okt 2021 16:44
af netkaffi
Ég keypti 6,5TB Western Digital flakkara á ca 22 þúsund á Amazon Prime sölu frá USA hérna fyrir 2 árum kannski. Reddaði mér.