Síða 1 af 2
Backligth í Lcd
Sent: Lau 22. Okt 2005 23:12
af Mr.Jinx
Jæja keypti mér Viewsonic VX924 fyrir stuttu og hann er með þetta Backligth vandmál sem er víst mjög algengt með Lcd skjáum.
Alveg þvílikt pirrandi þegar ég er að horfa á myndir í fullscreen--(Wide)
En hvernig er þetta aftur á ég rétt á nýjum skjá eða er hægt að laga þetta?
og þetta gerist bara þegar það er svartur bakgrunur. Blæðir inn í skjánum uppi og niðri.
Tók tvær myndir af þessu. Jæja hvað skal gera?
Sent: Lau 22. Okt 2005 23:52
af Veit Ekki
Ef hann er í ábyrgð áttu að fá nýjan þar sem þetta er vel þekkt vandamál, veit reyndar ekki hvort að það sé hægt að gera við svona.
Sent: Lau 22. Okt 2005 23:55
af SolidFeather
Mig minnir að ég hafi lesið að það eigi að vera hægt að laga þetta, en það væri frekar erfitt. Ég myndi skila.
Sent: Sun 23. Okt 2005 00:26
af Mr.Jinx
Já hann er í ábyrgð Jæja þá verð ég bara að skila honum og fá nýjan.
Takk fyrir mig.

Sent: Sun 23. Okt 2005 00:52
af hahallur
Fékkstu nýjan ?
Sent: Sun 23. Okt 2005 01:00
af Veit Ekki
hahallur skrifaði:Fékkstu nýjan ?
Hann skaust bara út í búð rétt áðan.

Er ekki annars opið á næturnar?

Sent: Sun 23. Okt 2005 01:06
af Mr.Jinx
Veit Ekki skrifaði: Er ekki annars opið á næturnar?

hehe Það væri kúl.
Sent: Þri 01. Nóv 2005 15:02
af Mr.Jinx
Já ég fór með hann í Start og þeir kíktu á hann. og Ég fékk ekki nýjan þeir sögðu að allir þessir skjáir væru svona. Og að þetta eru skjáir í ódyrari kantinum. Sýníngar skjárinn þeirra var líka svona. Svo þetta er ekkert sem þeir geta bætt.

Sent: Þri 01. Nóv 2005 15:07
af zream
Ég fékk mér líka þennan skjá fyrir stuttu, það er svona einmitt hjá mér.
Það er ekki svo mikið að það pirri mig, þannig sætti mig við það.
Samt ömurlegt að vera að eyða peningi í eitthvað sem pirrar mann.
Sent: Þri 01. Nóv 2005 15:18
af hahallur
Viewsonic er að skýta í buxurnar með því að gefa út svona skjá.
Venjulega eru skjáirnir frá þeim mjög góðir (og dýrir)
Sent: Þri 01. Nóv 2005 15:18
af Veit Ekki
Mr.Jinx skrifaði:Já ég fór með hann í Start og þeir kíktu á hann. og Ég fékk ekki nýjan þeir sögðu að allir þessir skjáir væru svona. Og að þetta eru skjáir í ódyrari kantinum. Sýníngar skjárinn þeirra var líka svona. Svo þetta er ekkert sem þeir geta bætt.

Þú hefur ekkert viljað fá endurgreitt og fá þér bara einhvern annan betri skjá? Þeir eiga allavega að endurgreiða þér að fullu ef það er svona galli sem þeir geta ekkert gert í. Framleiðslugalli. Þeir hefðu líka átt að segja við þig þegar þú keyptir hann að allir þessir skjáir væru með backlight vesen.
Edit: Var að sjá að hann kostar 40.000 kr. Ef ég væri þú myndi ég bara fara þarna og heimta að fá endurgreitt í peningum og fara og fá þér annan betri skjá annarsstaðar. Þeir eiga ekki að vera að selja gallaða vöru. Þetta finnst mér mjög lélegt hjá þeim að vera að selja skjá á 40.000 kr. sem er með backlight vesen á öllum skjáum sem þeir hafa verið að selja og segja þér ekki einu sinni frá því.

Sent: Þri 01. Nóv 2005 16:10
af Mr.Jinx
Já ég geri það. Á líka eftir að koma þarna við.
Hvaða skjá eru þið annars að mæla með annars? Lcd 19" -17" budget 40 þús.
Sent: Þri 01. Nóv 2005 16:14
af Veit Ekki
Mr.Jinx skrifaði:Já ég geri það. Á líka eftir að koma þarna við.
Hvaða skjá eru þið að mæla með annars? Lcd 19" -17" budget 40 þús.
Ég er með þennan hérna skjá
http://www.prentarar.is/?show=detail&fl ... 766aa&sid=
Hann er mjög góður. Ákvað að fá mér frekar 17" þar sem það er sama upplausn í 17" og 19".
Veit reyndar ekki alveg með hvernig hann er í þessum nýju leikjum.
Sent: Þri 01. Nóv 2005 16:30
af SolidFeather
Sleppa þessu LCD kjaftæði og fá sér 24" Sony Widescreen CRT

Sent: Þri 01. Nóv 2005 16:34
af Veit Ekki
Er þessi 24" skjár ekki aðeins dýrari en 40.000 kr.

Sent: Þri 01. Nóv 2005 16:38
af SolidFeather
Ódýrari ef eitthvað er:
http://cgi.ebay.com/HP-SONY-24-CRT-MONI ... dZViewItem
Kominn hingað á rúman 30.000 kall í gegnum ShopUSA með sendingarkostnaði
í USA
*Veit samt ekki hvort að þyngdin á honum breyti þessu eitthvað

Sent: Þri 01. Nóv 2005 17:25
af Mr.Jinx
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1861
17" Acer 8ms. 27.950.kr Dvi -Vga
Eða
19" Samsung 913N 8ms. 33.130.kr Vga
http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view& ... D_SAM_913N
Eða eitthvað annað?
Mér lýst líka mjög vel á AG Neovo.
Sent: Þri 01. Nóv 2005 21:13
af zaiLex
Að vera með widescreen CRT er bara of nördalegt eitthvað

Sent: Þri 01. Nóv 2005 22:26
af SolidFeather
zaiLex skrifaði:Að vera með widescreen CRT er bara of nördalegt eitthvað

It's called being a MAN!
Sent: Þri 01. Nóv 2005 22:38
af Veit Ekki
SolidFeather skrifaði:zaiLex skrifaði:Að vera með widescreen CRT er bara of nördalegt eitthvað

It's called being a MAN!
Tekur bara alltof mikið borðpláss.
Sent: Þri 01. Nóv 2005 22:52
af Mr.Jinx
True dat
Sent: Þri 01. Nóv 2005 23:04
af Snorrmund
Sent: Mið 02. Nóv 2005 15:56
af SolidFeather
Veit Ekki skrifaði:SolidFeather skrifaði:zaiLex skrifaði:Að vera með widescreen CRT er bara of nördalegt eitthvað

It's called being a MAN!
Tekur bara alltof mikið borðpláss.
Not if you have a macho desk like a MAN!
Sent: Mið 02. Nóv 2005 16:03
af CraZy
a Man needs his giant Jerker!
Sent: Mið 02. Nóv 2005 16:34
af Cascade
Ég hafði aldrei trúað því fyrr en ég fékk mér lcd skjá, en ég mér finnst miklu þægilegra að horfa á lcd skjá og lesa texta og allt það af þeim en túpuskjánum