Síða 1 af 1

Skjákort byrjuð að lækka í verði og framboð að aukast

Sent: Mán 21. Jún 2021 23:23
af gnarr
Jæja, það er mögulega farið að sjá fyrir endan á þessu rugli :happy

https://videocardz.com/newz/graphics-cards-pricing-beginning-to-decline-availability-improving-as-well

Re: Skjákort byrjuð að lækka í verði og framboð að aukast

Sent: Mán 21. Jún 2021 23:36
af appel
Sennilega mörg ár í að þetta verði samt sem áður ásættanlegt ástand.

Re: Skjákort byrjuð að lækka í verði og framboð að aukast

Sent: Þri 22. Jún 2021 02:16
af jonfr1900
Þetta kemur til vegna þess að Kína bannaði alla crypto gjaldmiðla. Það er spurning hversu lengi þetta varir. Venjulega þegar svona gerist þá einfaldlega færist svona til. Þá verður einfaldlega eitthvað annað ríki miðjan í þessu. Mun væntanlega taka samt einhverja mánuði að gerast.

Now that China has all but banned cryptocurrencies, GPU prices are falling like Bitcoin (The Register)

Re: Skjákort byrjuð að lækka í verði og framboð að aukast

Sent: Þri 22. Jún 2021 11:04
af Dr3dinn
loksins!

Re: Skjákort byrjuð að lækka í verði og framboð að aukast

Sent: Þri 22. Jún 2021 19:00
af jonsig
Svo er Intel iris DG1 komið á stjá. Og helv.3070ti kortið mitt lækka um 19þ síðan á föstudag

Re: Skjákort byrjuð að lækka í verði og framboð að aukast

Sent: Þri 10. Ágú 2021 08:48
af Dr3dinn
Verðin eru að hrynja á overclockers og proshop.

Ég veit að dreifingaraðilarnir eru að halda verðunum uppi til lítila búða, en þeir sem eru að kaupa af framleiðendum ættu að vera búnir að lækka verðin sín verulega. Spurning hvenær við sjáum einhverja lækkun hér heima.

3070ti var auglýst undir 100þ á proshop sem dæmi. (sem mer finnst óeðlilega lágt en ventus kort, sama kort á 130þ í þýskalandi)

Sá 6900xt hjá ingram á 190þ

3060 er komið undir 80þ í þýskalandi.

3070ti fra MSI fra ingram á 100þ með vsk og flutningi!

https://www.3dcenter.org/news/hardware- ... -juli-2021
https://www.pcgamer.com/falling-nvidia- ... g-in-2021/