Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Skjámynd

Höfundur
kunglao
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 384
Skráði sig: Fös 02. Jan 2015 00:20
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf kunglao » Fös 07. Maí 2021 19:27

Í þessu myndbandi frá Hardware Canucks er verið að nota INDIUM FOIL í staðinn fyrir TIM / Thermal Paste
Notað var MX4 kælikrem sem er mjög gott. Gæti verið að þetta sé Betra ??

https://www.youtube.com/watch?v=57eI7gbl0Lk


Edit. Indium er púði sem er ekki í formi eins og tannkrem eða thermal paste. Það er hægt að endurnýta/nota hann aftur og aftur







Spoiler ; Indium er á Pari við kælikrem
Síðast breytt af kunglao á Sun 09. Maí 2021 10:11, breytt samtals 1 sinni.


Is it aught or is it God ? No its just me who did a MOD

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf jonsig » Fös 07. Maí 2021 23:07

Til hvers í rassgati? Ertu að fara keppa í OC ?

Ef þú ert með góðan flöt eins og t.d. toppinn AM4 þá ertu að græða kannski 1-2c° (105W peak)á 5 W/km og einhverju 82 W/km indium voodoo stuffi. Það eru fleirri þættir sem spila inní, ekki detta í eitthvað $$ BS
Síðast breytt af jonsig á Fös 07. Maí 2021 23:17, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5459
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1007
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf appel » Lau 08. Maí 2021 00:01

Ekki það að ég hafi mikið vit á þessu, en hef alltaf bara keypt fína örgjörvakælingu/viftu, notað kremið sem fylgir með, og bara passað að hafa það þannig að maður nái sem mestri dreifingu og snertingu með sem minnstu kremi og þynnsta laginu. Svo pælir maður ekkert meir í því.

En þetta er samt svosem áhugavert út frá heat-dissipation umræðu almennt. Ef þú pælir í allri orkunni sem er notuð í heiminum til að kæla örgjörva (almennt, t.d. í gagnaverum) þá gæti raunveruleikinn verið sá að hægt væri að spara gríðarlega fjármuni (og co2 losun) bara með því að ná 20% betra heat dissipation.


*-*

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf jonsig » Lau 08. Maí 2021 01:12

Verst að húsið á cpu er bottleneck. Svo eftir vatnskælinguna þarftu kælipressu sem kostar $$$ til að vinna á blessuðum flöskuhálsinum :( og vona að allt saggi ekki í drasl.



Skjámynd

Höfundur
kunglao
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 384
Skráði sig: Fös 02. Jan 2015 00:20
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf kunglao » Lau 08. Maí 2021 13:21

nei það er bara svo þægilegt að sleppa við óþrifnaðinn af Therma paste. + svo getur maður notað Indium púðann aftur og aftur


Is it aught or is it God ? No its just me who did a MOD

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6278
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 434
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf worghal » Sun 09. Maí 2021 13:12

einhver búinn að prófa gold leaf? :lol:


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf jonsig » Sun 09. Maí 2021 16:26

Það er orðið frekar langt síðan eitthvað svona hype fór í gang með graphene paddana,, amk voru þeir fljótir að hverfa.

kunglao skrifaði:nei það er bara svo þægilegt að sleppa við óþrifnaðinn af Therma paste. + svo getur maður notað Indium púðann aftur og aftur


Þeir voru nefnilega ekkert svo mikið að endast mörg cpu swöpp, áður en allt fór norður. Efast um að deigur málmur eins og indium eigi eftir að standa sig eitthvað betur.
Síðast breytt af jonsig á Sun 09. Maí 2021 16:31, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

Baldurmar
FanBoy
Póstar: 780
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 134
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf Baldurmar » Mán 10. Maí 2021 11:27

worghal skrifaði:einhver búinn að prófa gold leaf? :lol:

https://fondurlist.is/verslun/gold-leaf-kit-25-arkir/ :fly


Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - GTX 1070 8gb

Skjámynd

dragonis
Gúrú
Póstar: 574
Skráði sig: Mán 25. Maí 2009 15:46
Reputation: 19
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf dragonis » Mán 10. Maí 2021 17:55

jonsig skrifaði:Til hvers í rassgati? Ertu að fara keppa í OC ?

Ef þú ert með góðan flöt eins og t.d. toppinn AM4 þá ertu að græða kannski 1-2c° (105W peak)á 5 W/km og einhverju 82 W/km indium voodoo stuffi. Það eru fleirri þættir sem spila inní, ekki detta í eitthvað $$ BS


Til hvers í rassgati?

Er þetta ekki samfélag okkar nördana og samastaður okkar að tala um tölvutengda hluti?
Ekkert skrítið að fólk þori ekki að opna á sér túllan án þess að það sé traktað á honum.

Ef það væri ekki fyrir vesalinga eins og þig sem kaupa allt high end og borga hlutfallslega hundruði % meira fyrir hvert frame rate eða Cinebench benchmark þá væri engin þróun eða lítill markaður fyrir þetta allt saman, ef nokkrar gráður niður kveikja ekki í þér. Dæmi: (En samt keyptiru Noctua NH-D15 fyrir tæpan 20þús þegar þú getur fengið svipaða samt lakari kælingu á innan við 10þús) við erum að tala um nokkrar gráður.

Þetta er góð viðbót í flóruna að mínu mati. Min Max.




Sinnumtveir
spjallið.is
Póstar: 473
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 149
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf Sinnumtveir » Mán 10. Maí 2021 20:01

jonsig skrifaði:Það er orðið frekar langt síðan eitthvað svona hype fór í gang með graphene paddana,, amk voru þeir fljótir að hverfa.

kunglao skrifaði:nei það er bara svo þægilegt að sleppa við óþrifnaðinn af Therma paste. + svo getur maður notað Indium púðann aftur og aftur


Þeir voru nefnilega ekkert svo mikið að endast mörg cpu swöpp, áður en allt fór norður. Efast um að deigur málmur eins og indium eigi eftir að standa sig eitthvað betur.


Graphene er allt annars eðlis en mjúkur málmur. Það er þess vegna enginn fótur fyrir því að yfirfæra reynslu af endurnotkun graphenes yfir á endurnotkun indium til örgjörvakælingar. Kannski er það í raun svipað en ég yrði nkl ekkert hissa þó endurnotkunarmöguleikarnir væru mjög mismunandi. Að auki er indium ekki tiltakanlega dýrt ef maður kaupir bút sem dugir fyrir nokkra örgjörva. Semsagt, skemmtileg tilraun sem án vafa er víða í gangi akkúrat núna :)



Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1252
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 129
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf Minuz1 » Mán 10. Maí 2021 21:05

Baldurmar skrifaði:
worghal skrifaði:einhver búinn að prófa gold leaf? :lol:

https://fondurlist.is/verslun/gold-leaf-kit-25-arkir/ :fly


Gull er verra en kopar, bara silfur er betri í málmi og það munar um 10%


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf jonsig » Mán 10. Maí 2021 21:40

Sinnumtveir skrifaði:Graphene er allt annars eðlis en mjúkur málmur. Það er þess vegna enginn fótur fyrir því að yfirfæra reynslu af endurnotkun graphenes yfir á endurnotkun indium til örgjörvakælingar. Kannski er það í raun svipað en ég yrði nkl ekkert hissa þó endurnotkunarmöguleikarnir væru mjög mismunandi. Að auki er indium ekki tiltakanlega dýrt ef maður kaupir bút sem dugir fyrir nokkra örgjörva. Semsagt, skemmtileg tilraun sem án vafa er víða í gangi akkúrat núna :)


Lestu þetta og skildu, rökstutt með léttum útreikningi ! Eftir það ertu ónæmur fyrir öllu 10000 W/mK BS sem þú finnur á youtube hjá einhverjum RGB viftu plebba með gel.
https://www.igorslab.de/en/the-myth-of- ... ilessly/2/



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf jonsig » Mán 10. Maí 2021 22:03

dragonis skrifaði:
jonsig skrifaði:Til hvers í rassgati? Ertu að fara keppa í OC ?

Ef þú ert með góðan flöt eins og t.d. toppinn AM4 þá ertu að græða kannski 1-2c° (105W peak)á 5 W/km og einhverju 82 W/km indium voodoo stuffi. Það eru fleirri þættir sem spila inní, ekki detta í eitthvað $$ BS


Til hvers í rassgati?

Er þetta ekki samfélag okkar nördana og samastaður okkar að tala um tölvutengda hluti?
Ekkert skrítið að fólk þori ekki að opna á sér túllan án þess að það sé traktað á honum.

Ef það væri ekki fyrir vesalinga eins og þig sem kaupa allt high end og borga hlutfallslega hundruði % meira fyrir hvert frame rate eða Cinebench benchmark þá væri engin þróun eða lítill markaður fyrir þetta allt saman, ef nokkrar gráður niður kveikja ekki í þér. Dæmi: (En samt keyptiru Noctua NH-D15 fyrir tæpan 20þús þegar þú getur fengið svipaða samt lakari kælingu á innan við 10þús) við erum að tala um nokkrar gráður.

Þetta er góð viðbót í flóruna að mínu mati. Min Max.


Áður en þú drullar á þig úr öfund þá er ég með NH-U12a sem kostaði 12þ á útsölu í DE fyrir nokkru síðan. Ef ég þarf performance þá er ég ekki með eitthvað loft apparat með indium púða.




Sinnumtveir
spjallið.is
Póstar: 473
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 149
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf Sinnumtveir » Mán 10. Maí 2021 22:45

jonsig skrifaði:
Sinnumtveir skrifaði:Graphene er allt annars eðlis en mjúkur málmur. Það er þess vegna enginn fótur fyrir því að yfirfæra reynslu af endurnotkun graphenes yfir á endurnotkun indium til örgjörvakælingar. Kannski er það í raun svipað en ég yrði nkl ekkert hissa þó endurnotkunarmöguleikarnir væru mjög mismunandi. Að auki er indium ekki tiltakanlega dýrt ef maður kaupir bút sem dugir fyrir nokkra örgjörva. Semsagt, skemmtileg tilraun sem án vafa er víða í gangi akkúrat núna :)


Lestu þetta og skildu, rökstutt með léttum útreikningi ! Eftir það ertu ónæmur fyrir öllu 10000 W/mK BS sem þú finnur á youtube hjá einhverjum RGB viftu plebba með gel.
https://www.igorslab.de/en/the-myth-of- ... ilessly/2/


Þetta er gott og blessað en segir bara nkl ekkert um hvort indium sé góð endurnýjanleg og skilvirk hitlaleiðnipakkning fyrir örgjörva. Tilraun sker úr um það og sú sem ég sá var þess eðlis að mér finnst ástæða til að skoða efnið betur.



Skjámynd

Dropi
FanBoy
Póstar: 770
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 223
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf Dropi » Þri 11. Maí 2021 08:51

Ég veit ekki með ykkur en þegar það kemur að skjákortum er ég til í að prófa hvað sem er til að skafa nokkrar selsíus tölur af og ná hærra boost lengur (nema liquid metal hef áhyggjur af því hvað það getur verið tærandi). Sérstaklega núna þegar ég ætla að bæta 1-2 árum við líftíma Vega kortsins míns, sem átti að vera tímabundinn staðgengill.

Aftur á móti er ég svo sjaldan að kreista greyið örgjörvana mína, þeir fá ekkert að njóta sín nema ef ég er að encoda video eða eh þessháttar sem er sjaldgæft.
Síðast breytt af Dropi á Þri 11. Maí 2021 08:53, breytt samtals 1 sinni.


34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - ASRock B450M-Pro4 - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf jonsig » Þri 11. Maí 2021 18:09

Dropi skrifaði:Ég veit ekki með ykkur en þegar það kemur að skjákortum er ég til í að prófa hvað sem er til að skafa nokkrar selsíus tölur af og ná hærra boost lengur (nema liquid metal hef áhyggjur af því hvað það getur verið tærandi). Sérstaklega núna þegar ég ætla að bæta 1-2 árum við líftíma Vega kortsins míns, sem átti að vera tímabundinn staðgengill.

Aftur á móti er ég svo sjaldan að kreista greyið örgjörvana mína, þeir fá ekkert að njóta sín nema ef ég er að encoda video eða eh þessháttar sem er sjaldgæft.


Skefur amk 25c°+ af vega 64 referance korti með vatnsblokk. Annars gæti það verið meira því þau thermal throttla endalaust á loftkælingunni. Svo ég veit ekki raunverulega lækkun.
Ég var með 2stk stundum 3x vega 64 í loopu 24/7 sem voru að keyra á uþb 56c með engu power limit í 100% keyrslu og stillt á turbo sem ég þorði aldrei að stilla á þegar þau voru á loftkælingu. Amk eru þau lifandi uþb 3 árum seinna.

Að setja liquid metal er bara engan vegin gáfulegt nema á t.d. 7700k delid þar sem die er mjög smátt og þar gætiru séð feita breytingu, efast um það með stóran die eins og vega 56/64 ég myndi skjóta á 0,5c° delta . Amk Það yrði eitthvað mjög lítið. Þú getur fact chekkað þetta með einfaldri formúlu á síðunni sem ég setti inn hlekk inn að ofan.
Síðast breytt af jonsig á Þri 11. Maí 2021 18:12, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

Dropi
FanBoy
Póstar: 770
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 223
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf Dropi » Mið 12. Maí 2021 09:16

jonsig skrifaði:Skefur amk 25c°+ af vega 64 referance korti með vatnsblokk. Annars gæti það verið meira því þau thermal throttla endalaust á loftkælingunni. Svo ég veit ekki raunverulega lækkun.

Ég keypti þetta kort með reference blower og setti á það Morpheus Vega með 2stk Noctua viftum, flassaði það með 64 bios og undervoltaði hressilega, skar gömlu vrm kæliblokkina til og notaði hana frekar en draslið sem kom með Morpheus (gerði þráð um ferlið hér viewtopic.php?t=79653) . Það boostar mikið hærra, eða um 300MHz hærra en það gerir á stock 56 bios án undervolt. Minnið náði ég upp úr 800MHz í 1100MHz sem er líka fáránlegt. En ég er svo mikill aumingi ég fæ verk í sálina ef hitinn fer yfir 80° þessvegna keyri ég þetta svona rólega. Svo spila ég bara smá wow, beat saber og path of exile núna og ekkert annað ](*,)

En auðvitað er vatn allt annar heimur. Ég hef bara ekki haft mig í það með alla flutningana sem tölvan mín hefur þurft að þola síðustu 4 árin.
Síðast breytt af Dropi á Mið 12. Maí 2021 09:17, breytt samtals 1 sinni.


34UC98 3440x1440p80Hz Curved - Logitech G5 mkII - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - ASRock B450M-Pro4 - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Indium í stað Thermal Paste !!! Kælikrem

Pósturaf jonsig » Mið 12. Maí 2021 18:24

Dropi skrifaði:
En auðvitað er vatn allt annar heimur. Ég hef bara ekki haft mig í það með alla flutningana sem tölvan mín hefur þurft að þola síðustu 4 árin.


Nett WC kæling þyngir vélina aðeins ein þú mátt snúa henni á hvolf og hrista án þess að neitt gerist.
Síðast breytt af jonsig á Mið 12. Maí 2021 18:24, breytt samtals 1 sinni.